Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 26
veg toppurinn ef flíkin á sér sögu og ég finn
hana í „vintage“-búðum eða verslunum sem
selja vandaðan notaðan tímabilsfatnað.“
Harpa Þórunn Péturs-
dóttir lögfræðingur
„Ég myndi segja að það væru miklar and-
stæður í mínum fatastíl, allt frá mikilli klassík
yfir í rokkaðan stíl sem mér finnst líka gaman
að blanda saman. Með aldrinum hef ég lært
að meta gæðin meira og reyni að vanda valið
við fatakaup frekar en kaupa fleiri flíkur. Mér
finnst líka mjög gaman að vera í einfaldari
flíkum og nota aukahluti og skartgripi til að
klæða þær upp eða niður.“
Sólveig Þórarinsdóttir
eigandi Sóla
„Hlutirnir eru afskaplega einfaldir mín meg-
in; ég vel þægindi umfram allt. Þess vegna
hafa kjólar og pils tekið
yfir allt en fatnaðurinn
þarf að endurspegla
mína innri konu og vera
birtingarmynd þess
sem mig langar að láta
skína dag hvern.“
Edda Guðrún
Andrésdóttir
fréttaþulur
„Aðalatriðið er að föt
séu þægileg, í takt við
mann sjálfan og ekki of
þröng. Annars er þetta
einfalt hjá mér; skyrta,
rúllukragapeysa og
góður jakki – og þá er
ég í góðum gír!“
Helga Ólafs-
dóttir fata-
hönnuður og
framkvæmda-
stjóri
„Að eiga klassískar
flíkur úr fallegum efn-
um og blanda þeim
með einhverju
óvæntu.“
Alma D. Möll-
land-
læknir
„Fötin þegar ég
sinni mínu starfi
þurfa að vera
þægileg, sígild og
stílhrein.“
Katrín
Jakobs-
dóttir for-
sætisráð-
herra
„Fyrir mig skiptir
mestu máli að líða
vel í því sem ég
klæðist sem er
nátengt því að
líða vel í eigin
skinni. Ég fer þá
einföldu leið að
eiga nóg af svörtum flíkum sem hægt er að nota með litum.
Annars hef ég orðið æ minna spennandi í fatavali eftir því
sem ég eldist og er þá minna flippuð!
Lilja Sigurlína Pálmadóttir
hrossabóndi
„Að klæða sig snýst um að raða saman formum, lit-
um og áferð. Bara eins og í allri listsköpun og hönn-
un,“ segir Lilja.
Dóra Júlía Agnarsdóttir
plötusnúður
„Ég er alltaf samkvæm sjálfri mér í fatavali og hef
ekki áhyggjur af því að falla inn í hópinn! Litagleði
gerir mikið fyrir mig og mér finnst ótrúlega gaman
að setja saman skemmtilegar flíkur í þessa listrænu
heild sem fatnaðurinn skapar! Ég elska skemmti-
lega fylgihluti, skart, klúta og töskur sem poppa
upp heildarútlitið!
Það skiptir mig langmestu máli að líða vel í fötunum
og hafa gaman af því að dressa mig.“
Guðlaug Ingibjörg Bjarnadóttir
sölufulltrúi
„Föt eru frá toppi til táar og mikilvægt er að klára „outfittið“ alla
leið, ekki bara fara í flottan kjól heldur spila skór, yfirhöfn og
fylgihlutir mjög stórt hlutverk í því að fullkomna útlitið.“
Elísabet
Gunnarsdóttir
bloggari á
Trendnet
„Það skiptir mestu máli
að fylgja eigin sannfær-
ingu og klæða sig í föt
sem manni líður vel í
frekar en að fylgja alltaf
næsta manni eða tísku-
straumum. Það er hægt
að fá innblástur úr öllum
áttum, ekki bara frá
tískupöllum eða af blogg-
um eða samfélagsmiðlum.
Líka með því að sitja á
góðu horni með kaffibolla
í hendi og fylgjast með
mannlífinu – vel klæddir
gamlir karlar geta alveg
eins gefið mér innblástur
eins og hin mesta Par-
ísarskvísa.
Með aldrinum læri ég betur á
eigin stíl og veit hvaða
stefnum og straumum ég vil
fylgja. Ég nota flíkur lengi og
oft en dressa þær á mismun-
andi hátt eftir tilefnum. Fata-
val er góð leið til að túlka og
skapa persónuleika og því
finnst mér fólk eiga að vera
óhrætt við að nýta sér það og
leggja megináherslu á eigin
vellíðan í klæðum.“
Birna Rún Gísla-
dóttir viðskipta-
fræðingur
„Ásetningurinn um að manni
líði vel í fötunum sama hvert
tilefnið er og ekki er verra ef
flíkurnar gleðja augað.“
Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis
„Að fötin klæði mig og að ég fíli þau, komi með smá aukaorku inn í daginn eða
kvöldið – fórna alveg pínu þægindum fyrir það stöku sinnum!“
Sara Lind Þrúðardóttir framkvæmdastjóri
„Það sem skiptir mig mestu máli eru gæði, góð hönnun og efni. Svo finnst mér al-
Ljósmynd/Saga Sig
Alma D.
Möller.
Ljósmynd/Egill Aðalsteinsson.
Ragna
Árnadóttir.
Lilja
Sigurlína
Pálmadóttir.
Sólveig
Þórarinsdóttir.
Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson.
Birna Rún
Gísladóttir.
Guðlaug
Ingibjörg
Bjarnadóttir.
Elísabet
Gunnarsdóttir
Harpa Þórunn
Pétursdóttir.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Dóra Júlía
Agnarsdóttir.
Edda Guðrún
Andrésdóttir.
Helga
Ólafsdóttir.
Ljósmynd/Saga Sig
Katrín
Jakobsdóttir.
Sara Lind
Þrúðardóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021