Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 30
„Ætli uppáhaldsflíkin mín um þessar mundir sé
ekki sloppurinn sem ég gaf sjálfri mér í afmælisgjöf.
Ég fíla mig eins og drottningu í honum og núna finnst
mér bara fullkomlega eðlilegt að setjast niður við
snyrtiborð og bursta hárið fyrir svefninn. Það er
flauelsbekkur á honum með gylltum útsaumi í, svo eru
gylltir þræðir í efninu öllu. Þetta er afskaplega „regal“
flík.“
Hvað getur þú sagt mér um hrifningu þína á sólgler-
augum?
„Þegar ég var barn fannst mér allt fólk mjög töff
með sólgleraugu en ég hafði einhvern veginn bitið í
mig að ég væri sjálf mjög asnaleg með þau. Ég var
örugglega með vott af þráhyggju gagnvart þessu á
tímabili, alveg súpergröm, fimm ára, yfir því að geta
ekki gengið með sólgleraugu. Svo byrjaði ég fyrir til-
viljun að vinna í gleraugnabúð og kynntist alls konar
gleraugnaumgjörðum náið í því starfi. Í dag er það
bara staðreynd í mínum huga að rétt gleraugna-
umgjörð er einn fallegasti fylgihlutur sem hægt er að
eignast. Ég tala nú ekki um þegar búið er að skella
sólglerjum í hana. Ég kaupi mjög mikið af sólgler-
augum, oftast í ódýrari kantinum en inn á milli splæsi
ég í eitthvað aðeins vandaðra.“
Er eitthvað sem þig dreymir um að kaupa sem til-
heyrir vortískunni? „Ég væri alveg til í brún Tavis-
sólgleraugu frá Jimmy Choo eða eitthvað annað djúsí
og dýrt. Annars er mun líklegra að ég panti mér loks-
ins rauða Adidas-sundbolinn sem mig hefur langað í
lengi.“
Ég sé að þú ert mikið fyrir fallegar yfirhafnir, hvað
geturðu sagt mér um það?
„Ég elska yfirhafnir. Megnið af þeim hef ég fengið á
mörkuðum hingað og þangað um heiminn. Yfirhafnir
eru svo auðveldar. Þær þurfa ekki að passa 100% og
maður þarf ekki að fara inn í mátunarklefa til að skella
sér í þær og spegla sig. Það er fátt verra en að vera
sveittur og þreyttur að troða sér í eitthvað inni í
þröngum mátunarklefa. Ég á fleiri yfirhafnir en buxur
og boli til samans.“
Hvort ertu meiri kjóla- eða buxnakona?
„Ég er alltaf í buxum. Íslenskt veðurfar er ekki
beinlínis kjólavænt, buxurnar hins vegar fjúka ekki
upp um þig.“
Ertu sammála því að við tjáum okkur með klæða-
burði?
„Auðvitað, við tjáum okkur á svo marga mismun-
andi vegu. Fatnaður er einn tjáningarmáti og þess
vegna finnst mér sem dæmi mikilvægt að leyfa börn-
um að leika sér með hann. Þetta er svo góð og einföld
leið til að styrkja sjálfsmyndina.“
Ef þú ættir alla peninga í veröldinni, hvað myndirðu
kaupa þér í fataskápinn?
„Ég myndi láta sérsníða á mig skóna sem ég er allt-
af að leita að en hef aldrei fundið og jakkaföt. Ég væri
mjög til í að eiga sérsaumuð jakkaföt.“
Áttu þér tískufyrirmyndir sjálf?
„Já, ég held að fyrsta tískufyrirmyndin mín hafi ver-
ið Dirty Harry.“
H
vað ertu að fást við þessa dagana?
„Ég keypti mér íbúð í sumar sem ég hef
verið að dunda við að koma í stand meðfram
öðrum verkefnum. Það gengur ágætlega. Ég
málaði baðherbergið túrkísblátt á meðan
sundlaugarnar voru lokaðar, svona til að díla
við fráhvörfin. Svo er ég búin að koma upp ágætisaðstöðu
fyrir plötur og spilara. Næst á dagskrá er að komast í bólu-
setningu svo ég geti farið til Svíþjóðar að pakka saman bú-
slóðinni minni. Það er heldur fátæklegt í húsgagnadeild
heimilisins um þessar mundir.
Vinnuvikan fer í að breiða út boðskap íslenskrar mál-
tækni. Við erum með gríðarlega spennandi vörur í þróun hjá
fyrirtækinu sem ég vinn fyrir. Meðal annars nýja íslenska
radd-appið hana Emblu, vélþýðingarverkefni milli íslensku
og annarra tungumála og málrýnitól sem getur leiðbeint um
bæði stafsetningu og málfræði.
Annað sem hefur tekið tíma frá mér undanfarið er Poké-
mon Go. Við mæðginin vorum að opna aftur gamla aðgang-
inn okkar þannig að ég hef verið að veiða grimmt af nýjum
Pokémonum sem ekki voru til þegar hann var opinn síðast
fyrir þremur árum. Ég er aðallega að gefa þeim nammi og
hjúkra þeim þegar strákurinn minn er búinn að jaska þeim
út í bardögum. Svo fæ ég mikið hrós hérna heima fyrir
Pokémonana sem ég veiði á skrifstofunni, það eru víst mjög
merkilegir Pokémonar úti á Granda.
Annars bíð ég bara spennt eftir lengri afgreiðslutíma
skemmtistaða svo ég geti farið að spila eitthvað af viti aft-
ur.“
Hvernig lýsir þú fatastílnum þínum?
„Ég elska kögur, leður, blúndur, gegnsætt, bómull, silki
og góða ull. Ég er voða mikið í gallabuxum og lopapeysum
yfir vetrartímann. Mér finnst pínu erfitt að orða stílinn minn
en þegar ég var lítil langaði mig að verða kúreki og það eim-
ir líklega aðeins eftir af þeirri hugmynd. Ég elska enn þá
kögur og snjáðar gallabuxur. Það eru samt margar týpur að
brjótast um í mér. Ég reyni að gefa þeim öllum færi á að tjá
sig. Ég held mig ekki endilega við eina stefnu eða tímabil en
pikka út það sem ég fíla úr hverju og einu. Pínu eins og með
tónlistina. Ég elska sem dæmi 70’s- og 80’s-íþróttaföt og
Thriller-jakkann minn en er ekki jafnheit fyrir sumu öðru
frá þessum tímabilum. Ég er líka mjög veik fyrir jakkaföt-
um og nettu bindi við en svo finnst mér ég líka sæt í kjól og
pinnahælum. Það fer eiginlega mest eftir því í hvaða skapi
ég er og hvernig veðrið er úti hvernig ég kýs að klæða mig.“
Hvað er tíska í þínum huga?
„Einhvern tímann las ég að tíska væri leið fyrir fólk til að
kynna sig án þess að þurfa að gera það með orðum. Mér
finnst það frábærlega vel orðuð hugmynd um hvað tíska er.
Þú getur einhvern veginn borið karakter þinn og jafnvel
hugarástand á borð með því að tjá þig í gegnum klæðaburð.“
Hvað með tónlist?
„Tónlist og tíska eru listform sem eiga margt sameig-
inlegt. Í báðum má finna strauma og stefnur sem eru breyti-
leg eftir tímabilum, menningarheimum og á milli stétta og
aldurshópa. Fyrir mér er tónlist mjög mikill orkugjafi. Ég
reyni að byrja daginn á lagi sem kemur mér í stuð og fær
mig til að brosa; þá verður hann góður.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín í fataskápunum?
Ljósmynd/Kristín Pétursdóttir
Katla er
með fjöl-
breyttan
smekk á
fötum.
Katla er mikil sundkona.
Dj Katla getur
ekki beðið eftir
því að fara að
þeyta skífum
aftur.
Ljósmynd/Kristín Pétursdóttir
Katla segir gaman að
klæða sig í kjól þótt
hún sé meira í buxum.
Katla fann þennan Thriller-
jakka í Beyond Retro í London.
„Ég elska
yfir-
hafnir“
Kötlu Ásgeirsdóttur eða DJ Kötlu
þekkja margir. Færri vita að hún er
með BA-gráðu í trúarbragðafræðum
og viðskiptastjóri Miðeindar þótt
merkilegasta hlutverk hennar sé án
efa að vera mamma Flóka.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Kristín Pétursdóttir
Katla segir
tískuna
ákveðna
tjáningu.
Glæsi-
leg í
pels.
Katla
veit fátt
skemmti-
legra en
að kaupa
sér yfir-
hafnir.
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021