Morgunblaðið - 12.02.2021, Síða 32
P
rofhilo er ein af þeim nýju skemmtilegu
húðmeðferðum sem við bjóðum á Húðlæknastöð-
inni. Meðferðin er búin að vera á markaðnum er-
lendis frá árinu 2015, nýtur sívaxandi
vinsælda og hefur unnið til
fjölda verðlauna.
Profhilo-efnið sjálft er hrein
hýalúrónsýra sem örvar nýmynd-
un kollagens og elastíns í húð-
inni og gefur þannig frísklegra
útlit og stinnir húðina. Með-
ferðin er líka mjög rakagef-
andi fyrir húðina og þar af
leiðandi fær húðin þennan
eftirsótta og heilbrigða
ljóma.
Efninu er sprautað undir
húðina og þar dreifir það sér
vel. Þó svo að Profhilo sé
hýalúrónsýra eins og fylliefnin
sem við notum mest í dag er
Profhilo alveg fljótandi og gefur
þar af leiðandi enga fyllingu eins og
fylliefnin aftur á móti gera. Meðferðin
breytir því ekki andlitsdráttum eða útliti á
nokkurn hátt sem margir geta verið svolítið hræddir
við.
Hægt er að meðhöndla nánast hvaða svæði sem er með
Profhilo, andlit, háls, bringu og handarbök svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Arna Björk.
Aðspurð fyrir hverja meðferðin er segir hún að þetta sé
meðferð fyrir þá sem vilja stinnari húð.
„Meðferðin hentar nánast öllum og er algjörlega bæði fyrir
konur og karla. Þetta er frábær
meðferð fyrir alla þá sem finnst
húðin vera farin að slappast og
vilja ferskara útlit. Meðferðin er
tilvalin með öðrum meðferðum, til
dæmis lasermeðferðum, medical
peel, PRX-T33 peel og örnálameð-
ferð. Til að ná sem bestum árangri
mælum við með tveimur meðferðum með
fjögurra vikna millibili. Meðferðin sjálf tekur
um það bil 30 mínútur og oftast tekur ekki langan
tíma að jafna sig. Fyrst á eftir getur fólk búist við smá
roða og bólgum í húðinni á stungustöðunum en það jafnar sig
yfirleitt á nokkrum klukkutímum.“
Profhilo betra en toxín?
„Þetta eru í raun tvær alveg ólíkar meðferðir. Toxíni er
sprautað á ákveðin svæði og hefur þar staðbundin vöðvaslak-
andi áhrif. Vinsæl svæði til að meðhöndla með toxíni eru til
dæmis milli augabrúnanna og enni. Galdurinn við meðferð
með toxínum er að nota alls ekki of mikið af efninu því flest
viljum við halda andlitshreyfingunum upp að vissu marki og
ekki vera alveg svipbrigðalaus. Profhilo-meðferðin og meðferð
með toxínum vinna mjög vel saman,“ segir hún.
Hvað yngist fólk um mörg ár eftir Profhilo-meðferð?
„Eins og með allar aðrar meðferðir er árangurinn einstak-
lingsbundinn. Þar sem Profhilo-meðferð er ekki að breyta út-
liti eins og til dæmis fylliefnameðferðir og meðferð með tox-
ínum gera er árangurinn kannski ekki eins sýnilegur öðrum.
Húðin verður samt öll þéttari og áferðarfallegri. Hún fær
meiri raka og ljóma og verður því oft eins og við munum hana
þegar við vorum yngri.
Fjarlægir meðferðin bauga?
Þó að Profhilo-meðferðin sé frábær og hafi ýmiskonar góð
áhrif á húðina er meðferðin ekki sérstaklega hugsuð fyrir
augnsvæðið. Meðferðin hefur því ekki bein áhrif á bauga, til
þess eru til aðrar og betri meðferðir.“
Myndir þú segja að þessi meðferð virkaði eins og fótósjopp?
„Að vissu leyti má segja að meðferðin sé svolítið eins og
fótósjopp því allar misfellur eins og til dæmis svitaholur verða
minna áberandi og húðin fær fallegan ljóma sem við sækjumst
eftir. Einnig verður áferð húðarinnar fallegri og fínar línur
ekki eins sýnilegar.“
Hvað er PRX-T33 peel?
„PRX-T33 er ný kynslóð af TCA-sýrum (trichloroacetic
acid). Meðferðin örvar frumur húðarinnar til að endurnýja sig
án þess að nokkur skaði verði á yfirhúðinni. Þetta þýðir að það
verður lítill sem enginn roði eða flögnun í húðinni eftir með-
ferðina.
Meðferðin er frábær fyrir þá sem vilja fá betri áferð á húð-
ina og fyrirbyggja öldrun. Meðferðin vinnur líka á ýmsum
húðvandamálum, til dæmis litabreytingum, örum, svitaholum
og sliti.
TCA-sýrur hafa verið notaðar í mörg ár til að vinna gegn
öldrun húðarinnar og bæta áferð hennar. Gallinn við TCA-
sýrurnar er þó sá að þær eru ertandi fyrir húðina og því getur
tekið langan tíma að jafna sig eftir slíka meðferð. PRX-T33-
meðferðin er sérstaklega hönnuð þannig að hún eigi ekki að
erta húðina. Búið er að blanda saman TCA-sýru, vetnisperox-
íði (H2O2) og Kojic-sýru á sérstakan hátt. Maður fær því öll já-
kvæðu áhrif TCA-sýrunnar án aukaverkananna.
PRX-T33-meðferðin er frábær með öðrum húðmeðferðum,
t.d. Profhilo, fylliefnum, toxínum og örnálameðferð.“
Húðmeðferð sem
breytir ekki andlitinu
Arna Björk Kristinsdóttir, húðlæknir hjá
Húðlæknastöðinni, segir að Profhilo-með-
ferðin njóti vinsælda hjá báðum kynjum en
meðferðin stinnir húðina og veitir meiri ljóma
án þess að breyta útliti fólks.
Marta María | mm@mbl.is
Arna Björk
Kristinsdóttir,
húðlæknir á
Húðlækna-
stöðinni.
Hér sést fyrir
og eftir
meðferðina.
Fyrir og eftir. Myndin
til hægri sýnir húðina
eftir meðferð.
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
La Belle frá Jean Paul Gaultier er skemmtilegur ilmur fyrir
þroskaðar konur sem kunna að meta vanilluilm í bland við
bergamot. Ilmurinn kemur í glasi sem minnir á kvenleikann
og virði konunnar í hvaða formi sem hún er.
Ilmvatnsglasið er búrgúndírautt, skreytt gylltum rósum,
og sýnir margbreytileika kynþokkans og minnir á að konan
er fædd falleg og alls konar. Ilmurinn er sætur og mildur en
einnig dökkur og er grunntónninn íburðarmikill.
Olympea Blossom frá Paco Rabanne
er smart ilmur fyrir konur á öllum aldri
sem þora að láta á sér bera.
Olympea Blossom ilmurinn Paco Rabanne er með sæt-
um yfirtón en dýpri vanillu- og viðargrunntón sem gerir
ilminn fullkominn fyrir þroskuðu unglegu konuna.
Ilmurinn er í fallegu glasi sem minnir á áttunda áratug
síðustu aldar sem laðar yngri konur að ilminum. Hann er
fullkominn fyrir konuna sem elskar dýrar merkjavörur, eða þá
sem finnur gull og gersemar í verslunum sem selja tímabilsfatnað
sem eftir er tekið.
Tímalaus ilmur
sem tekið er eftir
Fyrir þroskaða konu
með meðfætt virði
Jean Paul Gaultier La Belle Eau de
Parfum er fágaður ilmur fyrir þroskaðar
konur sem vita hvað þær vilja.