Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 36

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 36
Þ essi farði býr yfir mörgum góðum eiginleikum. Hann er mjúkur og end- ingargóður og er þessi endurbætta útgáfa með meiri ljóma og örlítið mýkri en sá fyrri. Hann verndar húð- ina gegn rakatapi og ver hana gegn umhverfisáhrifum. Farðinn endist í sólarhring og er hann þannig uppbyggður að húðin andar í gegnum hann. Farðinn gefur náttúrulegan ljóma og áferðin er silkimjúk. Farðinn inniheldur SPF 22 / PA++. Þessi farði var hannaður í stíl við hinn vinsæla gullpenna frá YSL en hann hefur verið ein mest selda vara fyrirtækisins í 25 ár. Ef það er eitthvað sem skiptir máli þegar kemur að förðun þá er það að eiga góðan farða. Farðar frá Yves Saint Laurent hafa notið vinsælda en nú er kominn splunkunýr farði, Touche Éclat. Marta María | mm@mbl.is Meiri mýkt og meiri ljómi 36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 La Mer The Hydrating Powder Foundation Um er að ræða nýjan kremkenndan púðurfarða með silkiáferð sem bráðnar við snertingu og fellur vel að húðlitnum. Farðinn gefur ferskt og heilbrigt útlit. Þyngdarlaus áferðin bráðnar inn í húðina og felur strax alla bletti, minnkar svitaholur og dregur úr fínum línum og hrukkum. Hann er líka rakagefandi. Estée Lauder Re-Nutriv Ultra Um er að ræða frábæran farða sem gefur húðinni ljóma. Í hverri flösku má finna gljáorku tveggja peridot-steina sem hjálpar við að efla náttúrulega orku húðarinnar til endurnýj- unar. Milljónir af örfínum einingum gimsteina skila okkur galla- lausri, glitrandi fegurð. Öflug Re-Nutriv-formúlan ljær húðinni mýkri og sveigjanlegri áferð og hún verður jafnari, misfellur og húðop minnka. Silkikennd áferðin endist lengi og heldur húðinni ferskri í dagsins önn. MAC Studio Fix Fluid Það þarf varla að kynna þennan farða en hann er einn sá vin- sælasti frá MAC. Formúlan er létt og gefur nátúrulega matta áferð. Hægt er að byggja formúluna upp í þá þekju sem hver og einn vill. Formúlan andar vel og stíflar ekki húð- holur. Gefur húðinni slétt og náttúrulegt útlit. Guerlain L’essentiel Þessi farði nærir húðina vel og virkar svolítið eins og gott rakakrem. Hann inniheldur 97% náttúruleg innihalds- efni og veitir húðinni náttúrulegan ljóma sem endist lengi eða í allt að 16 klukkutíma. Farðinn gerir húðina matta og gefur henni þessa áferð sem er svo eftirsóknarverð núna. Áferð farðans minnir helst á eigin húð en hann er léttur og veitir miðlungsþekju. Húðlit- urinn verður jafnari með notkun farð- ans en hann gefur einnig góðan raka. Hentar vel fyrir húð með rósroða. Chanel Ultra Le Teint Þær sem elska púðurfarða eiga eftir að dýrka þennan frá Chanel. Hann veit- ir náttúrulegt útlit og mattar andlitið. Þegar þú ert búin að setja hann á þig verðurðu svolítið eins og ofurfyrirsætur níunda áratugarins sem fóru aldrei út úr húsi nema með matt og seiðandi andlit. Farðinn blandast vel inn í húðina og er auðveldur í notkun. Fimm fantagóðir farðar Ef það er eitthvað sem skiptir máli þegar heildarmyndin er annars vegar þá er það að velja réttan farða. Hér eru nokkrir framúrskarandi farðar sem geta breytt tilverunni. Marta María | mm@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.