Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 46

Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 46
Dior Forever Skin Veil SPF 20. 46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Hársnyrtivörur sem innihalda náttúruleg og lífræn efni sem gera hárið heilbrigðara og fallegra NATURAL BEAUTY Milk Shake Iceland milk_shake Iceland R annveig Borg Sigurðardóttir er starfandi lögfræðingur í Sviss, áhugamanneskja um heilbrigt líferni og nemi í al- þjóðlegri fíknifræði við King’s College. Fordómar í samfélaginu og þekking á fíkn og hverjir geta lent í stjórnleysi hafa lengi vakið áhuga Rannveigar. „Til þess að forðast flóknar skilgreiningar er hægt að segja að fíkn sé í stórum dráttum neysla eða hegðun sem hefur verulega slæm áhrif á líf einstaklingsins og viðkomandi upplifir eða hefur upplifað stjórnleysi gagnvart. Fíkn getur tengst efnum eins og áfengi, eiturlyfjum og lyfseðils- skyldum lyfjum en einnig hegðun eins og spilafíkn, klámfíkn og lotu- græðgi svo einhver dæmi séu tekin. Almennt er talið að orsakir fíknar liggi í erfðum og umhverfi í um það bil jöfnum hlutföllum. Ætlunin er ekki að gera lítið úr kenningum um fíkn sem tengist áfallasögu, eða að fíkn sé heilasjúkdómur. Fyrir þessum kenningum eru góð rök. Ummerki um neyslu er hægt að finna í heila ein- staklinga er glíma við eða hafa glímt við til dæmis áfengisfíkn eða kókaínfíkn. Þá getur neysla raskað boðefnakerfi heilans. Jafnframt er áfallasaga hluti af orsökum sem liggja í umhverfi. Erfðaþátturinn þýðir ekki að „fíknigenið“ sé til. Erfðaþátturinn er mun flóknari og fræðin í stöðugri þróun. Sannað er til dæmis að genaafbrigði ALDH2 veiti ákveðna vernd gegn áfengisfíkn einfald- lega vegna þess að áfengi fer illa í einstaklinga með þetta genaaf- brigði sem finnst aðallega í Asíu. Kenningar eru uppi um að arfgerð af GABRA2-geni geti haft áhrif á tilhneigingu til fíknar. Jafnframt um samspil á milli ástar- snertihormónsins oxýtósíns og fíknar. Að oxýtósínkerfi einstaklinga sem alast upp við mikla áfallasögu sé skaddað og mögulega sé um að ræða víxlverkun á milli dópamíns- verðlaunakerfis heilans og oxýtósíns. Sannað er að því yngri sem einstaklingur byrjar neyslu því lík- legra er að viðkomandi þrói með sér fíkn. Framheilabörkurinn er enn Er meira um fíknisjúkdóma í sumum fjölskyldum en öðrum? Er hægt að vera óheppinn í genalottóinu og erfa fíknigenið? Er það kannski ríkjandi? Elínrós Líndal | elinros@mbl.is „Þetta er auðvitað svo mikið í fjölskyld- unni hjá þeim“ F ranska tískuhúsið Dior er að gera dásamlega hluti þessa dagana í snyrtivöruheiminum. Eitt það mest spennandi þessa dagana er Dior Forever Skin Veil SPF 20 sem er primer. Hann er borinn á húðina áð- ur en hún er förðuð og virkar lengi eða í sólarhring. Primerinn veitir mikinn raka og hann ver húðina ásamt því að auka ljóma húð- arinnar. Þessi pri- mer er mjög léttur og lyktar vel og húð- in verður svolítið eins og hún hafi verið fótósjoppuð eða lýtalaus. Punkt- urinn yfir i-ið fyrir fagurkera þessa lands er að umbúðirnar eru svo ljóm- andi fagrar. Þessi beige-litur lyftir tilverunni upp á hærra stig. Ef þú fílar beige-litinn þá muntu kunna að meta púðurdósina af Dior Forever Cushion Powder. Um er að ræða laust púður sem fær förðunina til að haldast lengur á andlitinu. Púðrið veitir þennan fínlega ljóma sem er svo eftirsóknarverður og samlagast húðlitnum um leið. Einstök upplifun Dior Forever Cushion Powder fæst í Hagkaup.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.