Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 48

Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 OPIÐ fyrir umsóknir Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla á Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Kanada og Bandaríkjunum. Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug- mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku, ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina Nám erlendis opnar þér nýjan heim, að heiman. hlíð ásamt Evu Dís ráðgjafa hjá Stígamótum og nú síðast verið með námskeið á netinu með Ragnhildi Birnu fjölskylduráðgjafa með meiru sem var vel heppnuð frumraun og kallar á framhald að hennar sögn. Hún er þó á því að lífið sé allaf stærsti kennarinn. „Í vetur prófaði ég í fyrsta sinn að vera með námskeið á netinu sem gekk mun betur en ég hefði getað ímyndað mér, vinnan fór mun dýpra en mig hefði getað órað fyrir. Áður hef ég verið í samstarfi við Bjarkar- hlíð og boðið upp á námskeið þar með góð- um árangri en einnig opin námskeið. Þ eir sem hafa verið í eitruðum samskiptum þekkja það af eig- in raun hvernig slíkt getur haft áhrif á heilsuna. Kolbrún Karlsdóttir er á því að umhyggjurík samskipti eða Non Violent Communication (NVC) geti bjargað manns- lífum, en hugmyndafræðinni kynntist hún árið 2013. „Ég var búin að ganga á ótal veggi, fara í kulnun og endurhæfingu vegna þess að gamlir draugar voru að stjórna hvernig sjálfstýringin mín virkaði. Ég rambaði inn í tólfsporasamtök þegar engin leið virtist lengur fær. Þaðan var ég síðan leidd inn á þessa hugmyndafræði. Ég sökkti mér algerlega í að læra þetta, fann að lífið fékk svo mikið meiri dýpt. Ég fór á löng námskeið í fjölmörgum löndum og varði sem dæmi hálfu ári í Afríku að miðla og læra, sem var mjög lærdómsríkt.“ Hún er í viðurkenningaferli til þjálfararétt- inda í faginu í dag og hefur farið á fjölmörg námskeið víða um heiminn því tengt. „Við fórum til Úganda í lok árs 2016 til að kynna NVC í litlu frumkvöðlasamfélagi en einn- ig í sendiráði Íslands í Kampala við góðar undirtektir. Þá lá leiðin til Cape Town þar sem ég hélt ut- an um námskeið fyrir starfsfólk heilsuhælis í þrjá mánuði.“ Hefur skipulagt námskeið í Bjarkarhlíð Hér heima hefur hún skipulagt námskeið með erlendum þjálfurum, haldið námskeið í Bjarkar- Það hafa líka komið til mín einstaklingar í ráðgjöf. Nú er ég einnig að skipuleggja viku- langt ferðalag fyrir íslenskar konur í lok maí með dásamlegum konum sem búa í Rínar- dalnum. Við ætlum að eiga gæðastundir með fræðslu og sjálfstyrkingu í undurfögru um- hverfi þegar vorið er komið í dalinn, en fyrst og fremst að njóta þess að vera og vaxa sam- an.“ Að velja skilning fremur en átök Hvernig eru Umhyggjurík samskipti skil- greind? „Stutt skilgreining er að leitast við að tengja fremur en að fara í mótstöðu þar sem valið er samkennd fremur en sundrung og skilning fremur en átök. Grunnurinn er meðvitund um sammann- legar þarfir okkar sem við erum alltaf að upp- fylla með mismunandi afleiðingum og læra markvissar aðferðir til að uppfylla þær.“ Kolbrún segir magnað að sjá fólk breytast með breyttum leiðum í samskiptum. „Það er magnað að horfa á ein- stakling sem er fastur í mynstr- unum sínum rétta úr sér og tala um sjálfan sig í fyrstu persónu í ferl- inu. Þá fer einstaklingurinn að skína. Að fá að vera með í þannig ferli er stærsta gjöfin.“ Kolbrún segir grunninn að því að vera til staðar fyrir annað fólk að vera vel nærður sjálfur. Þá myndist orka til að gefa eitthvað áfram. Samstarfsfélagar stundum með byssur undir sætum sínum Kolbrúnu dreymir um að fara með að- ferðafræði umhyggjusamra samskipta inn í skólana. „Ég hef trú á að valdefling og tenging geti breytt ástandinu í skólunum verulega. Þessa dagana er ég að vinna í að koma námsefni á íslensku í þannig form að það sé aðgengilegt fyrir alla aldurshópa. Þetta er svo einfalt, þótt það sé flókið að skipta út hugarfarinu. Ég líki þessu við að læra nýtt tungumál. Ég hef þá trú að með því að innleiða þessa hugmyndafræði í skólana muni einelti minnka og meiri samkennd skapast. Umhyggjurík samskipti geta bjargað mannslífum Kolbrún Karlsdóttir er talskona um- hyggjuríkra samskipta. Hún upplifði erfitt tímabil í lífinu þar sem hún fór að vinna í sér og samskiptunum sínum. Hana dreymir nú um að koma umhyggjuríkjum samskiptum inn í skólakerfið á Íslandi. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Kolbrún Karlsdóttir hefur ferðast víða um heiminn að mennta sig í umhyggjuríkum samskiptum. Ég var búin að ganga á ótal veggi, fara í kulnun og endurhæfingu vegna þess að gaml- ir draugar voru að stjórna hvernig sjálfstýringin mín virkaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.