Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 50
starfi er að okkur líði vel. Vellíðan er forsenda vel-
gengni. Við stjórnum ekki öðru fólki eða heiminum,
við stjórnum bara okkur sjálfum. Þess vegna er
svo mikilvægt að viðhafa ævilanga sjálfsrækt með
reglulegri sjálfsskoðun.“
Mikilvægt að vera sérfræðingur í sér
„Sem markþjálfi er hlutverk mitt að stuðla að
valdeflingu skjólstæðinga minna, það er að virkja
innri visku og styrk þeirra þannig að viðkomandi
geti tekið fulla ábyrgð á eigin lífi og líðan. Upplifa
svo í kjölfarið persónulegan vöxt og stjórn á eigin
lífi; sem eru grunnþarfir okkar.“
Aldís Arna segir lokamarkmið með vald-
eflingunni þríþætt.
„Tilgangur, tilhlökkun og sátt er mikilvæg. Það
er að skjólstæðingar mínir vakni með skýran til-
gang um hvað þeir komu til að læra í
lífinu og hvað þeir ætla að skilja eft-
ir.
Svo er það að hafa tilhlökkun í
hjarta sér fyrir viðfangsefnum dag-
legs lífs.
Síðan er mikilvægt að geta sofnað
að kveldi sáttur við sjálfan sig og
umhverfi sitt.“
Hún segir þetta mögulegt með því
að spyrja fjögurra áleitinna spurn-
inga.
„Hver er ég raunverulega? Hvað vil ég raun-
verulega? Af hverju vil ég þetta? Hvernig næ ég
markmiðum mínum? Með þessum spurningum
finnum við út hvað við þurfum að gera en fyrst og
fremst hver þurfum við að vera sem manneskjur.
Ég vinn fyrst og fremst út frá persónuleika fólks
því það er persónugerð okkar sem ræður úrslitum
um það hvort við njótum velgengni í lífinu eða ekki.
Þegar fólk finnur hvers megnugt það er: Að það
getur verið sérfræðingur í „sjálfu sér“, sérfræð-
ingur sem þekkir sig vel, virðir sig, viðurkennir,
elskar sig og treystir, þá eykst sjálfsvirðingin og
sjálfstraustið. Um leið fjölgar sigrunum og ham-
ingjustundunum og þakklæti eykst.“
Aldís Arna segir að hvernig sem á það er litið
verðum við alltaf verðmætari makar, foreldrar, vin-
ir og starfsmenn þegar okkur líður vel.
„Við höfum alla daga allt val og vald sem við tök-
um okkur til að stuðla að innri valdeflingu og vel-
líðan.
Vandamál fólks er ekki að það sé ekki nóg hæft
til þess að gera þetta eða hitt því við erum óend-
É
g tók áhrifaríka ákvörðun árið
2016 sem var að hlusta á hjartað
og vinna eingöngu við það sem ég
hef ástríðu fyrir. Þar við situr.
Ekkert starf hefur gefið mér
meira en að vera fyrirlesari, mark-
þjálfi og streituráðgjafi. Það eru
hrein forréttindi að fá að vinna
með og fyrir fólk að því mikilvæga verkefni að
hjálpa því að bæta líf sitt og líðan.“
Aldís Arna er í grunninn með próf í viðskipta-
fræði, verðbréfaviðskiptum og frönsku auk þess
sem hún er með kennararéttindi í líkamsrækt og
dansi. Aldís Arna er gift Sigurði Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra UMSB, og eiga þau saman
fjögur börn.
Hvað getur þú sagt okkur um valdeflingu og vel-
líðan?
„Forsenda þess að okkur vegni vel í lífi, leik og
„Streita
veldur
heilsutjóni“
Aldís Arna Tryggvadóttir er fyrsti og eini markþjálfinn
sem starfar hjá Heilsuvernd. Hún er ACC-vottaður
markþjálfi frá ICF – International Coaching Federation,
stærstu óháðu fagsamtökum markþjálfa í heiminum,
og vinnur með og fyrir fólk á öllum stigum samfélags-
ins við að hjálpa því að bæta líf sitt og líðan.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Aldís Arna að undirbúa
streitunámskeið fyrir foreldra.
Ég tók áhrifaríka
ákvörðun árið
2016 sem var að
hlusta á hjartað og
vinna eingöngu við
það sem ég hef
ástríðu fyrir. Þar
við situr
50 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Hallveigarstíg 10a • 101 Reykjavík • Sími 551 2112
www.ungfruingoda.is
Dásamlega fallega kjól og sa festinga
finnurðu hjá Ungfrún i góðu