Morgunblaðið - 12.02.2021, Qupperneq 55
Change“. Jóga er fyrir alla algjörlega óháð stærð, getu, aldri eða
bara hvaða ástæðu sem við seljum okkur til að haldast föst innan
þægindarammans.“
Sandra segist aldrei hafa getað ímyndað sér hversu dásamlegt
lífið getur verið.
„Ég er að kenna tvisvar í viku almenna hot jóga hádegistíma í
Sólum ásamt því að vera að fara af stað með námskeiðið mitt „Já-
kvæð líkamsmynd“. Svo er ég líka í áframhaldandi jógakenn-
aranámi og í ylrækt í Landbúnaðarháskólanum. Ég rek einnig
blómabúð í Hafnarfirði, er móðir, kærasta, vinkona, systir og mann-
vinur. Mér finnst best þegar það er brjálað að gera hjá mér. Ég
elska að læra, skapa og er mikil félagsvera í dag svo lífið hefur tek-
ið algjöra u-beygju. Ég hef farið frá því að finnast ég ekki geta
neitt í að finnast ég óstöðvandi og full af lífsgleði.
Sandra segir megintilgang námskeiðsins vera að stíga út fyrir
þægindarammann, mæta sér í þeim líkama sem maður er og læra
að þykja vænt um hann. Finna fyrir styrkleikum sínum og koma
sér jafnvel á óvart því allir geta eitthvað einstakt. Svo vonast ég til
að námskeiðið verði fallegur stökkpallur í áframhaldandi jógaiðkun.
Það er svo ótalmargt fallegt í boði. Svo vona ég að við getum búið
til samfélag kvenna sem styðja og skilja hver aðra. Konur eru kon-
um bestar.“
Sandra segir námskeiðið byggt upp þannig að allir geti tekið
þátt. Fólki er mætt þar sem það er hverju sinni og farið sé rólega
af stað en síðan aðeins gefið í.
Tilgangurinn að vera hamingjusöm og frjáls
Sandra segir að hún sé dæmigerður tvíburi sem hefur áhuga á
mörgum hlutum.
„Ég elska sem dæmi að ferðast og upplifa eitthvað nýtt og fram-
andi. Ég fór sem dæmi til Perú í fyrra í andlegt ferðalag sem var
mögnuð upplifun. Ég elska að hafa fallegt í kringum mig. Málið er
að blóm og jóga fara vel saman.“
Sandra segir að það ánægjulegasta í lífinu hafi verið fæðing dótt-
ur sinnar.
„Þegar ég fékk hana fyrst í fangið var besta augnablik sem ég
hef upplifað. Dóttir mín er æðisleg og ég er ákaflega stolt af henni.
Hvað er góð heilsa að þínu mati?
„Góð heilsa er að mínu mati jafnvægi. Lífið er of gott til að vera
stanslaust í fráhaldi frá því sem manni þykir gott. Megrun er til
dæmis svo 1990! Eins finnst mér að við þurfum að leggja áherslu á
andleg málefni, því það er í raun það mikilvægasta. Ég trúi því að
ef við iðkum heilbrigði í höfðinu þá fylgi hitt eftir. Þannig upplifði
ég hlutina hjá mér þegar tilgangurinn var alltaf að vera mjó en
ekki hamingjusöm og frjáls eins og ég upplifi mig í dag.“
Sandra Dögg fór í
leikfimi til að refsa sér
en öðlaðist meiri sjálfs-
mildi í gegnum jóga.
Ég var tilbúin að taka
út refsinguna sem ég
taldi mig þurfa að sitja.
Ég hafði heyrt að þetta
væri eitthvað allt ann-
að en ég var vön.
þetta viðhorf að mér er sama og lét ég það sem betur fer ekki
stoppa mig í að halda áfram að mæta.
Ég hjó líka eftir því að kennarinn sagði alla vera á sínum hraða,
að við værum ekki í keppni eða samanburði og að jóga væri fyrir
alla.“
Ákvað að treysta jógakennaranum sínum
Sandra segir að jógakennarinn hennar hafi haft áhrif á hana; að
hún hafi verið yndisleg og þess vegna hafi hún ákveðið að treysta
henni.
„Þetta var svo sem síðasta hálmstráið mitt þannig að ég hafði
engu að tapa. Ég hélt áfram að mæta í hverri viku og sem oftast.
Ég fann mér kennara sem ég tengdi við og fyrirmyndir. Ég komst
fljótt að því að ég gat svo ótalmargt og var bara frekar liðug. Það
var þarna sem ég tamdi mér í fyrsta skipti á ævinni að prufa eitt-
hvað áður en ég myndaði mér skoðun um það.
Ég ætlaði að gefa sjálfri mér séns. Vikur og mánuðir liðu og allt-
af þótti mér auðveldara að mæta spegilmynd minni. Ég fór að finna
fyrir áður óþekktri tilfinningu; Ég var orðin stolt af mér! Ég hataði
ekki lengur stelpuna sem starði á mig í speglinum. Mér fannst hún
eiginlega bara svolítið með þetta. Markmiðið hafði breyst, það fór
úr því að verða mjó yfir í að verða jógahermaður (e. warrior).
Ég ætlaði að standa með mér og niðurrifsraddirnar urðu alltaf
lágværari og sjálfsmildi tók við. Síðan þá hefur jóga átt hug minn
og hjarta. Ég væri sennilega ekkert hér ef ekki væri fyrir jóga. Ég
kynntist dásmlegri manneskju sem hafði trú á mér, hún var og er
kennarinn minn, hún sá eitthvað í mér og ég man það eins og það
hafi gerst í gær þegar við sátum saman eftir jógatíma sveittar og
alsælar og hún spurði mig af hverju ég færi ekki í jógakenn-
aranám.“
Sandra segir að tilhugsunin um að verða jógakennari hafi fengið
hana til að svelgjast á.
„Ég fór strax að telja upp ástæðurnar fyrir því að ég ætti að láta
það ógert. Ég var miklu stærri en flestir í tímunum og svo fannst
mér það líka fráleitt að ég gæti verið að kenna jóga þar sem ég var
ekki fullkomin. Hún náði nú samt að kveikja einhvern blossa innra
með mér og ég fór að íhuga þetta. Ég var ekki lengi í íhugun um
þetta áður en ég lagði af stað til Taílands í tvö hundruð klukku-
stunda jógakennaranám.“
Vill vera breytingin
Sandra segir að þarna hafi orðið upphaf að draumi um að vera til
staðar fyrir stelpur eins og hana.
„Það er heldur betur að fara að gerast núna. Ég er meira að
segja búin að húðflúra það á framhandlegginn minn núna, „Be the
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 55
Með allt á hreinu 2021
Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar
Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380
Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir árið
sem er að líða og óskum landsmönnum öllum
farsældar á komandi ári.