Morgunblaðið - 08.03.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021
opið
alla daga
kl. 10–21
25. febrúar - 14. mars
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nokkuð var um öfluga skjálfta á
Reykjanesskaga yfir helgina, en sá
stærsti varð klukkan 2:02 aðfaranótt
sunnudags. Hann mældist 5,0 að
stærð og voru upptök hans við
Fagradalsfjall. Einungis tuttugu
mínútum áður varð jarðskjálfti að
stærð 4,1 á sömu slóðum, og klukku-
tíma fyrir þann skjálfta reið yfir ann-
ar minni, 3,8 að stærð.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkur, segir skjálftahrinuna
sem skók bæinn yfir sunnudagsnótt-
ina hafa verið afar áberandi. „Ég held
að það hljóti nú langflestir fullorðnir
Grindvíkingar að hafa vaknað við
þennan skjálfta, hann var öflugur og
svo komu margir skjálftar í kjölfar-
ið,“ sagði Fannar við mbl.is.
Þórólfur varð
ekki skjálftans var
Kröftugur jarðskjálfti varð svo
klukkan 17:06 í gær, en hann mældist
4,2 að stærð. Svo vildi til að upplýs-
ingafundur almannavarna stóð sem
hæst þegar skjálftinn reið yfir, en að-
spurður af blaðamanni mbl.is sagðist
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir,
sem hélt fundinn ásamt Víði Reynis-
syni yfirlögregluþjóni, ekki hafa orðið
var við hann, enda var hann í miðju
svari við spurningu sama blaða-
manns.
Þá mældust sex skjálftar yfir 3 að
stærð á skaganum aðfaranótt laug-
ardags, en stærstur þeirra var 3,6 og
reið yfir klukkan 4:11. Undanfarið
hefur virknin verið bundin við Fagra-
dalsfjall að mestu. Á laugardag
mældust rúmlega 2.600 skjálftar á
svæðinu og rétt áður en blaðið fór í
prentun í gær höfðu þeir mælst 2.564
þann daginn. Heildarfjöldi skjálfta
frá því hrinan hófst fyrir tólf dögum
er kominn upp í rúmlega 25 þúsund.
Áframhaldandi skjálftahviður
Aukin dreifing jarðskjálfta á svæð-
inu gerði það að verkum að elds-
uppkomunæmi breyttist talsvert á
milli laugardags og sunnudags. Þann-
ig fjölgaði mögulegum gossvæðum,
og eru nú sjö svæði nefnd sem hugs-
anleg upptök ef til goss kemur. Öll
eru svæðin fjarri íbúðabyggð, en
langmestar líkur eru taldar á því að
eldur kæmi upp á Fagradalssvæðinu
komi til goss. Önnur gossvæði eru
Trölladyngja-Djúpavatn, austan við
Fagradalsfjall og Þorbjörn, Sýlinga-
fell og Stóraskógfell vestan við fjallið.
Í tilkynningu frá almannavörnum,
sem birt var í gær, segir að kvika
flæði nú inn í jarðlög undir Fagra-
dalsfjalli, sem myndar þannig spennu
í norður-suðursprungum austan og
vestan við umbrotasvæðið. Þegar
næg spenna hefur myndast, þá
hrökkva sprungurnar og við það
koma skjálftahrinur, segir enn frem-
ur. Eftir þær kemur slökun og tíma-
bil minni skjálfta þar til spennan
verður aftur of há og svipuð hrina
kemur. Því megi gera ráð fyrir
áframhaldandi jarðskjálftahviðum, ef
gangurinn heldur áfram að myndast.
jonn@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Keilir Björgunarsveitarmenn horfa í átt að Keili. 25 þúsund skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst fyrir 12 dögum.
Stórir skjálftar og fjölgun
mögulegra gossvæða
Enn mælist gríðarlegur fjöldi skjálfta á Reykjanesskaga
Oddur Þórðarson
Jóhann Ólafsson
Mögulegt hópsmit af völdum breska
afbrigðis kórónuveirunnar er í upp-
siglingu eftir að tveir greindust síð-
ustu tvo daga utan sóttkvíar með
það afbrigði, sem talið er meira
smitandi en fyrri afbrigði veirunnar
hér á landi.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á upplýsingafundi al-
mannavarna í gær að farþegi hefði
komið hingað til lands 26. febrúar
með neikvætt PCR-próf og nei-
kvæða fyrri skimun á landamærum.
Seinni skimun, fimm dögum eftir
komuna til landsins, hefði hins veg-
ar verið jákvæð og viðkomandi með
breska afbrigði veirunnar.
Sá sem kom að utan virðist hafa
smitað tvo í sóttkvínni en Þórólfur
segir þrátt fyrir það að ekki sé að
sjá í rakningu að viðkomandi hafi
brotið sóttvarnareglur. Fólkið hafi
búið í sama stigagangi í fjölbýli.
Þessir tveir gætu hafa smitað nokk-
urn fjölda, innan Landspítala og á
tónleikum í Hörpu, en annar þeirra
sem smituðust fór á tónleika hjá
Víkingi Heiðari Ólafssyni í Hörpu á
föstudagskvöld.
Í dag býðst tónleikagestum að
mæta í sýnatöku gegn því að þeir
bóki tíma. 800 gestir voru á tónleik-
unum, en salurinn tekur venjulega
1.600 manns í sæti.
Í núgildandi samkomutakmörk-
unum segir um sviðslistir, bíósýn-
ingar og aðra menningarviðburði að
heimilt sé að taka á móti allt að 200
sitjandi gestum í bókuð sæti, en
börn fædd 2005 og síðar teljast ekki
með þeim fjölda. Skyldugt er að
hafa eins metra bil hið minnsta á
milli ótengdra aðila. Gestum er
skylt að nota andlitsgrímu í sæti.
Hlé er leyfilegt, en áfengissala er
óheimil.
Framhaldið ræðst á þriðjudag
Þórólfur segir þetta sýna hversu
lítið þurfi til að ný bylgja fari af stað
en mikilvægt sé að bregðast hratt
við og reyna að kæfa dreifileiðir
smits.
Sóttvarnalæknir segir enn fremur
að næstu tveir sólarhringar skipti
sköpum varðandi stöðuna. Í fram-
haldinu verði hægt að sjá hversu út-
breitt smitið er og hvort þá þurfi að
grípa til harðari aðgerða.
„Ég held að við þurfum að sjá
hvað skimunin á Landspítalanum
leiðir í ljós og það hafa verið fleiri
svona úti í bæ sem sendir hafa verið
í skimun og svo er fólk sem var í
Hörpu að fara í skimun.
Þannig að eftir morgundaginn
munum við sjá betur hvernig staðan
er. Þannig að ef enginn greinist í því
þá getum við bara verið ánægð með
það en þetta sýnir hvað þetta er við-
kvæm staða og hvað einn einstak-
lingur getur verið fljótur að dreifa
þessu út um allt,“ sagði Þórólfur við
blaðamann Morgunblaðsins að fundi
loknum.
Þórólfur segir að ekkert bendi til
þess að innanlandssmitin sem
greindust í fyrradag megi rekja til
gáleysis einhverra sem komu nýlega
til landsins. Þó sé ljóst að breska af-
brigði veirunnar hafi smogið í gegn-
um landamærin. „Og það sem við
gerum núna, þegar fólk greinist
með þetta breska afbrigði, er að það
er sent í farsóttarhús. Í mörgum til-
fellum munum við aldrei vita hvað
fór úrskeiðis, hvað gerðist.“
Niðurstöður skimana ráða úrslitum
Á morgun ræðst hvort Ísland sé á barmi nýrrar faraldursbylgju Fjöldi fólks skimaður fyrir veir-
unni í dag og í gær Sóttvarnalæknir segir ekkert benda til gáleysis þeirra sem áttu að vera í sóttkví
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónleikar 800 manns voru á tónleikum Víkings Heiðars á föstudagskvöldið, en annar hinna smituðu sótti þá.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Halldór Jónsson, formaður kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, hefur sagt af
sér, en kjördæm-
isráðið hefur það
hlutverk að velja
á lista flokksins
og bera hann
fram fyrir kom-
andi alþingis-
kosningar í haust,
en það hefur jafn-
framt kosninga-
baráttuna með
höndum. Erillinn í starfi þess er því
einna mestur um þessar mundir, en
talið er að flokkurinn viðhafi próf-
kjör í kjördæminu í vor.
Afsögnina tilkynnti Halldór í bréfi
og skýrði tildrög hennar, en ástæðan
er tilkynning Þórdísar Kolbrúnar
Reykfjörð Gylfadóttur, varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins og ráð-
herra, um að hún sæktist eftir 1. sæti
á lista flokksins í kjördæminu. Það
gerir einnig þingmaðurinn Haraldur
Benediktsson, sem hreppti það sæti
þegar haldið var prófkjör fyrir næst-
síðustu kosningar.
Halldór er stuðningsmaður Har-
aldar, sem hann telur „óumdeildan
leiðtoga sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu“, og leggst gegn því að vara-
formaðurinn felli þingmanninn úr
sæti.
Í bréfinu kemur fram að hann tel-
ur slík átök um efsta sætið geta fellt
annað hvort þeirra af þingi og veikt
vígstöðu flokksins fyrir kosningar.
Afsögn í aðdrag-
anda prófkjörs
Hiti færist í oddvitaslag í NV-kjördæmi
Halldór Jónsson