Morgunblaðið - 08.03.2021, Side 6

Morgunblaðið - 08.03.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Karítas Ríkharðsdóttir Jón Sigurðsson Nordal „Ég myndi segja að mjög margir foreldrar séu að vakna við vondan draum núna og átta sig á því að veik- indi sem börnin þeirra hafa verið að glíma við eru út af þessari myglu,“ segir Magnús Pálmi Örnólfsson, fað- ir stúlku í Fossvogsskóla, í samtali við Morgunblaðið. Hann segist sjálf- ur nýlega hafa áttað sig á því að dóttir sín væri lasin vegna myglunn- ar og hefur þegar gert kröfu um að dóttur sinni verði ekki kennt í ákveðnum stofum skólans. Foreldrar stilla saman strengi „Við höfum kannski gert allt of lít- ið af því hingað til að stilla saman strengi og tala saman. Nú er búið að virkja alla árganga, foreldrar eru að safna saman upplýsingum um þessi veikindi, vegna þess að borgin hefur aldrei verið til í það að kanna um- fang veikindanna,“ segir Magnús. Hann segir skólann ekki hafa vilj- að gefa foreldrum upplýsingar um veikindi barna sem liggja fyrir og bera fyrir sig persónuverndarsjón- armið. „Sjöfaldaðu fjöldann“ „Foreldrar safna nú saman þess- um upplýsingum og ég myndi halda að það liggi fyrir frekar fljótlega í þeirri viku sem er að fara af stað. Hingað til hefur verið talað um ör- fá börn – fimm til tíu – ég myndi halda að miðað við það sem ég hef séð muni koma í ljós að þetta séu um fimm til tíu í hverjum árgangi, þann- ig að sjöfaldaðu fjöldann.“ Magnús segir ljóst að sú álma skólans sem heitir Austurland sé langsamlega verst farin af myglu. „Ef þú lest greiningar Náttúru- fræðistofnunar Íslands á þessu ógeði sem er í þessum skóla, þá getur þú ekki komist að annarri niðurstöðu en bara að innsigla skólann núna og finna lausn. Þú bara getur ekki sett 350 börn í þetta ógeð á hverjum degi. Það á að loka í skólanum núna – hvernig við leysum málið síðan, í samhengi hlutanna, er nánast auka- atriði,“ segir Magnús. Enn einn „samráðsfundurinn“ Í dag er fyrirhugaður samráðs- fundur skólaráðs Fossvogsskóla, fulltrúa skóla- og frístundasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar um mál Foss- vogsskóla. Í skólaráði eiga sæti skólastjóri, tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara og tveir fulltrúar starfsfólks. Magnús segist ekki vongóður um að slíkur fundur skili neinu, fyrir honum sé þetta „bara enn einn fundurinn“. Karl Óskar Þráinsson, formaður foreldrafélags Fossvogsskóla, segir að kallað hafi verið eftir því að í framhaldi af fundinum verði haldinn annar slíkur fyrir foreldra og skóla- samfélagið til að upplýsa hvað standi til að gera, bregðast við og svara fyrirspurnum. „Borgin hefur ekki nýtt þessa skólaráðsfundi sem raunverulega samráðsfundi. Þetta hafa verið fund- ir þar sem við höfum verið upplýst um hvað þau hafa fundið og hvað þau ætla að gera og við höfum ekki haft mikil áhrif á það nema þeim henti. Samráðið hefur verið algjörlega undir þeim komið og það hafa liðið allt að níu mánuðir á milli þessara svonefndu samráðsfunda vegna þess að það hefur ekki hentað að við séum með í ráðum,“ segir Karl Óskar. Upplýsingum haldið eftir „Skólaráð kallaði eftir samráði vegna vandamála sem voru að grein- ast í skólanum í nóvember 2019. Við fengum fund í lok maí 2020. Þá höf- um við meira að segja fengið lög- fræðing með okkur í lið til þess að kalla eftir upplýsingum frá borginni sem þau neituðu að afhenda,“ segir Karl Óskar. Hann segir að á síðasta skólaráðs- fundi, sem var í febrúar, hafi verið farið á hundavaði yfir stóran glæru- pakka úr skýrslu sem látið var vinna seint og illa. Þegar spurt var hvers vega skýrslan lægi ekki fyrir var því svarað til að hún væri of stór til að birta í heilu lagi en lofað að fundin yrði lausn. „Það er búið að birta brot úr henni á vefnum og við eigum ekki von á að komi mikið meira.“ Þá segir Karl Ólafur að fyrirfram ákveðin verkáætlun hafi verið lesin upp og skólaráð ekkert fengið um hana að segja, né hafi hún verið birt svo að hægt sé að rýna hana. „Meirihlutinn í borginni hefur þagað þunnu hljóði við okkur fram á þennan dag og við höfum bara verið í samskiptum við skóla- og frístundasvið. Fyrir okkur lítur þetta þannig úr að umhverfis- og skipulagssvið sé að draga lapp- irnar og vilji ekki mæta þessu vandamáli á forsendum barnanna.“ Minnihlutinn ósáttur Marta Guðjónsdóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og aðalmaður í skóla- og frístundaráði borgarinnar, segir skýrslu Verkís um niðurstöður sýna- taka ekki hafa verið kynnta ráðinu fyrr en minnihlutinn óskaði sérstak- lega eftir því. „Okkur leið eins og það ætti að draga það að kynna skóla- og frí- stundaráði skýrsluna,“ segir Marta við Morgunblaðið. „Það er verulega ámælisvert að sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hafi ekki sent kjörn- um fulltrúum ráðsins þessa skýrslu. Þrátt fyrir að skýrslan hafi borist 5. febrúar síðastliðinn var málið ekki sett á dagskrá fundar skóla- og frí- stundaráðs 9. febrúar og ekki minnst einu orði á að skýrslan um Fossvogs- skóla væri tilbúin,“ segir hún. „Það er engan veginn viðunandi að kjörnir fulltrúar fái upplýsingar um jafn al- varlegt mál fyrst í fjölmiðlum.“ Skóla- og frístundaráð starfar í umboði borgarráðs, og er skóla- og frístundasviði falið að annast fram- kvæmd stefnu og verkefna ráðsins. „Við í skóla- og frístundaráði berum náttúrlega ábyrgð á öllu skólastarfi í Reykjavík og höfum ríka eftirlits- skyldu með því starfi. Okkur ber að tryggja börnum heilsusamlegt hús- næði, svo það hefði átt að boða til fundar strax til að kynna skýrsluna og niðurstöður hennar fyrir okkur,“ segir Marta. Ekki náðist í Skúla Helgason, for- mann skólaráðs, Helga Grímsson, sviðsstjóra skólasviðs borgarinnar, eða Diljá Ámundadóttur Zoega, full- trúa Viðreisnar í skólaráði, við vinnslu fréttarinnar. Elín Oddný Sigurðardóttir og Alexandra Briem, fulltrúar VG og Pírata, afþökkuðu að tjá sig um málið. Það gerði skóla- stjóri Fossvogsskóla sömuleiðis. Þolinmæði foreldra á þrotum  Foreldrar í Fossvogsskóla safna nú upplýsingum um umfang veikinda barna  Formaður foreldra- félagsins segir borgina bjóða upp á sýndarsamráð  Kjörnir fulltrúar fengu fréttirnar í fjölmiðlum Morgunblaðið/Eggert Fossvogsskóli Ráðist hefur verið í miklar framkvæmdir í Fossvogsskóla til þess að reyna að uppræta myglu í húsi skólans. Enn finnast þó myglugró. Fossvogsskóli tók til starfa í október 1971 og fagnar því 50 ára afmæli í ár. Hann skiptist í þrjár álmur; Austurland, Meg- inland og Vesturland en Aust- urland var tekið í notkun fyrir 20 árum. Skólinn er hverf- isskóli fyrir 6-12 ára börn (1.-7. bekk) í Blesugrófar- og Fossvogshverfi. Í skólanum eru um 360 börn og 50 starfs- menn. Í febrúar varð ljóst að enn greinast skaðleg myglugró í húsnæði skólans þrátt fyrir að ráðist hafi verið í gríðarlega miklar framkvæmdir síðasta sumar þar sem kostnaður hleypur á hundruðum milljóna. Náttúrufræðistofnun Íslands greindi sýni sem tekin voru í desember og lágu niðurstöður fyrir í janúar en hvorki birtar foreldrum né opinberlega. Fossvogsskóla var fyrst lokað vegna myglu árið 2019. Skólinn 50 ára í ár FOSSVOGSSKÓLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.