Morgunblaðið - 08.03.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú í morgunsárið fer Mývatn, þota
Icelandair af gerðinni Boeing 737
MAX, frá Keflavíkurflugvelli til
Kaupmannahafnar í fyrsta áætl-
unarflugi félagsins á vélum þess-
arar gerðar eftir að um það bil
tveggja ára kyrrsetningu þeirra
var aflétt. Önnur vél sömu gerðar,
Búlandstindur, verður tilbúin á
næstu dögum, en þessar vélar og
þrjár aðrar til viðbótar voru frá
haustinu 2019 í geymslu suður á
Spáni. Þeim var flogið til Íslands í
síðasta mánuði og hafa síðan þá
farið í gegnum ítarlega skoðun og
prófanir sem gáfu grænt ljós. Því
er allt til reiðu og flugtak heimilt!
Þrjár vélar í framleiðslu
Alls verða Max-vélarnar í flota
Icelandair 12 talsins. Þrjár bíða
áfram á Spáni og aðrar þrjár hjá
verksmiðjum Boeing í Seattle í
Bandaríkjunum. Þrjár eru í fram-
leiðslu og verða afhentar síðar.
Fyrir Kaupmannahafnarflugið í
dag var farið í undirbúningsferð á
laugardaginn, þar sem ýmsir stjórn-
endur og starfsmenn Icelandair, auk
fulltrúa fjölmiðla, voru um borð.
Ferðin sem var útsýnisflug yfir Suð-
urland gekk að óskum og var meðal
annars notuð til þess að prófa ýmsa
þjónustu, svo sem nettengingar og
afþreyingarkerfi. Flugstjóri í ferð-
inni var Kári Kárason og Eiríkur
Haraldsson flugmaður.
Hljóðlátar vélar og
hreyfingar mjúkar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair, var með í för og segist
bjartsýnn á framhaldið. MAX-
vélarnar séu af tveimur stærðum,
það er 160 og 178 farþega, og henti
vel fyrir leiðakerfi félagsins. Með
nýjum reglum á landamærum Ís-
lands frá og með 1. maí næstkom-
andi vonist hann til þess að um-
fang leiðakerfisins og
starfseminnar aukist á vordögum.
Þá komi sér vel að vera með Bo-
eing MAX sem séu hagkvæmar
vélar með lægri rekstrarkostnað
en eldri vélar í flota Icelandair.
Slíkt geti búið til ný tækifæri, svo
sem nýja áfangastaði inn í leiða-
kerfið, þótt engar ákvarðanir hafi
verið teknar um slíkt.
„Ég hef kynnst MAX í flug-
hermi og sem farþegi. Þetta eru
hljóðlátar vélar og hreyfingarnar
allar mjög mjúkar, svo sem í
ókyrrð,“ segir Linda Gunnars-
dóttir, yfirflugstjóri Icelandair.
Hún segist vel geta sett sig í spor
þeirra sem bera kvíðboga fyrir
flugi með MAX-vélunum, sbr.
ástæðu kyrrsetningar vélanna á
sínum tíma. „Boeing 737 eru mest
flognu flugvélar í heiminum og
reynslan er góð. Nú hafa MAX-
vélarnar farið í gegnum ítarlega
skoðun færustu sérfræðinga í flugi
og gerðar hafa verið breytingar á
hugbúnaði vélanna og kröfum um
þjálfun flugmanna. Því er engin
ástæða til að óttast að fljúga með
þessum flugvélum. Sennilega eru
þetta öruggustu flugvélar heimsins
í dag.“
Alls 12 flugfélög í heiminum hafa
þegar tekið Boeing MAX í rekstur
og frá afléttingu kyrrsetningar hafa
yfir 9 þúsund ferðir verið flognar,
samtals hátt í 19 þúsund flugtímar.
Rekstur vélanna hefur gengið vel
hjá öllum flugfélögunum.
Öruggustu flugvélar heimsins
Boeing MAX á grænu ljósi Kyrrsetningu aflétt Flogið til Kaupmannahafnar í dag Hag-
kvæmar vélar skapa ný tækifæri í rekstri Breyttur hugbúnaður og kröfur um þjálfun flugmanna
Vestmannaeyjar Undirbúningsflugið sl. laugardag var einstakt. Horft yfir Heimaey og flugvöllurinn fremst.
Flugstjóri Engin ástæða til að ótt-
ast, segir Linda Gunnarsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lending MAX-inn kom yfir miðborgina inn á Reykjavíkurflugvöll. Tólf flugfélög í heiminum hafa þegar tekið Boeing MAX í rekstur og allt gengur vel.
Forstjóri Hagkvæmar vélar, segir
Bogi, sem talaði við farþega.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skipulags- og byggingarráð Hafnar-
fjarðarbæjar hefur ákveðið að aug-
lýsa breytingu á deiliskipulagi við
Krýsuvíkurberg, á þann veg að út-
sýnispalli sem til stendur að setja upp
á bjargbrúninni verður hliðrað til um
tíu metra og gönguleiðir sem að pall-
inum eiga að liggja verða færðar til
samræmis við það.
Þessu ræður helst að skoðun og
greining á svæðinu kallaði meðal ann-
ars á tilfærslu á palli og breytingar í
hönnun til að tryggja megi öryggi
mannvirkisins á þessum stað. Við
jarðskjálftann í október sl., sem
markaði upphaf yfirstandandi hrinu,
hrundi fylla úr bjarginu, ekki langt
frá þeim stað þar sem pallurinn á að
vera, auk þess sem sprungur mynd-
uðust við bjargið. Í kynningu á vef
Hafnarfjarðarbæjar er breyting
þessi sögð óveruleg, en auki öryggi.
Mikið fuglalíf í bjarginu
„Þessi breyting verður auglýst og
svo þarf að tryggja fé til fram-
kvæmda. Við erum í undirbúnings-
fasa og ekki er ákveðið hvenær fram-
kvæmdir hefjast. Framhaldið verður
svo að sjálfsögðu metið út frá þeim
aðstæðum sem verða þegar fram-
kvæmdir geta hafist. Við vonum að
jarðskjálftar og umræða um mögu-
legt eldgos á svæðinu verði yfirstaðin
þá,“ segir Árdís Ármannsdóttir, sam-
skiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar.
Örstutt er frá Suðurstrandarvegi
fyrir austan Grindavík að Krýsuvík-
urbergi, þó fara verði um ruddaveg
fram á bjargbrún. Þetta er einn fárra
staða við suðurströndina þar sem er
formsterkt bjarg; sem á þessum stað
er um 7 km langt. Mikið fuglalíf er í
bjarginu. Krýsuvíkursvæðið er innan
landamæra Hafnarfjarðar, slitið að
öðru leyti frá Hafnarfjarðarbæ, sem
eignaðist staðinn árið 1941.
sbs@mbl.is
Útsýnispallurinn
færður á skipulagi
Tryggja öryggi á Krýsuvíkurbergi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Krýsuvíkurbergið Horft til vesturs,
út eftir 7 kílómetra löngu bjarginu.