Morgunblaðið - 08.03.2021, Side 12

Morgunblaðið - 08.03.2021, Side 12
Mörg stærstu fjármálafyrirtæki Bandaríkjanna gætu hagnast tölu- vert á kuldakastinu sem gekk yfir suðurhluta landsins í febrúar. Bloomberg greinir frá að heppnir og naskir fjárfestar hafi farið vel út úr vogunarviðskiptum með raf- magn og eldsneyti en orkuverð rauk upp meðan á kuldakastinu stóð. Þegar verst lét var t.d. gas- verð í Oklahoma 300 sinnum hærra en í venjulegu árferði. Í Texas kost- aði kílóvattstundin af rafmagni um 9.000 dali en kostar alla jafna undir 30 dölum. Áætlar Bloomberg að bæði Gold- man Sachs og Morgan Stanley kunni hvor fyrir sig að græða um 200 milljónir dala á slíkum við- skiptum. Er þó óvíst að fjármálarisarnir geti innleyst allan hagnaðinn enda voru öfgarnar sem sköpuðust á orku- markaði slíkar að líkur eru á að mörg fyrirtæki í orkugeira verði gjald- þrota. Eins er talið sennilegt að von sé á inngripum stjórnvalda og dóms- málum þar sem reynt verður að af- skrifa eða minnka greiðslur til þeirra sem uppskáru ofsahagnað vegna ástandsins sem skapaðist. Hefur Bloomberg eftir stjórnendum innan Goldman að þeir áætli að takast muni að innleysa um helming þess hagnaðar sem varð til í bókum bank- ans vegna kuldakastsins. ai@mbl.is Bandarískir fjármálarisar stórgræða á kuldakasti AFP Röskun Kuldakastið olli miklum vandræðum á sumum svæðum.  Dómsmál og inngrip stjórnvalda munu saxa á hagnaðinn 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf STUTT ● Nýjustu tölur sýna að mikill vöxtur var í útflutningi frá Kína í febrúar- mánuði miðað við sama tímabil í fyrra. Mælt í bandaríkjadölum var virði kín- versks útflutnings 154,9% hærra í febrúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Reuters segir þessar tölur m.a. litast af þeirri röskun sem varð á framleiðslu í Kína í byrjun síðasta árs vegna út- breiðslu kórónuveirunnar. Þegar fyrstu tveir mánuðir ársins eru taldir saman er vöxtur útflutnings 60,6% miðað við sama tímabil í fyrra. Er þetta langt um- fram spár sérfræðinga sem væntu að jafnaði 38,9% aukningar. Að sögn kínverskra tollayfirvalda njóta útflytjendur þar í landi m.a. góðs af því að framleiðslugeirar bæði í Evr- ópu og Bandaríkjunum hafa náð sér á strik, s.s. vegna örvunaraðgerða, og þurfi á kínverskum aðföngum að halda. Einnig benda kínversk stjórnvöld á að meirihluti verksmiðjustarfsfólks lét það vera að taka sér frí frá störfum sín- um þegar kínverska nýárið gekk í garð í febrúar og gátu framleiðendur því af- hent fyrr pantanir sem alla jafna hefði ekki verið hægt að afgreiða fyrr en að nýárshátíðinni lokinni. Innflutningur í janúar og febrúar jókst um 22,2% miðað við sama tímabil fyrir ári en sérfræðingar höfðu reiknað með 15% vexti. Kínverska hagkerfið óx um 2,3% á síðasta ári og hefur ekki vaxið hægar í 44 ár. Á þessu ári stefna ráðamenn í Peking að a.m.k. 6% hag- vexti. ai@mbl.is Kippur varð í útflutningi frá Kína í febrúar Verksmiðja Mikil eftirspurn hefur t.a.m. verið eftir kínverskum andlitsgrímum. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Að mati Víkings Grímssonar er allt of algengt að íslensk fyrirtæki sinni ekki stjórnun viðskiptatengsla sem skyldi og hætt við að það muni valda þeim verulegu tjóni til lengri tíma litið. Víkingur er verkefnastjóri við- skiptatengsla hjá bílaumboðinu Öskju en hann lauk MBA-námi frá Háskóla Íslands þar sem hann skrif- aði lokaritgerð sína um stjórnun við- skiptatengsla (e. CRM – Customer Relationship Management). Víkingur segir stjórnun viðskipta- tengsla ekki síst snúast um að við- halda sambandi við viðskiptavin- inn og halda áfram að sinna þörfum hans eftir að viðskipti hafa farið fram svo að hann leiti síður til keppinautanna og að viðskiptasam- bandið vari jafn- vel fyrir lífstíð. „Gott dæmi um stóran geira í íslensku atvinnulífi þar sem virðist mega sinna viðskipta- tengslum betur er tryggingageirinn og vel þess virði að skoða hvers vegna það er útbreiddur vani hjá Ís- lendingum að hafa samband við öll tryggingafélögin á nokkurra ára fresti til að leita tilboða. Ég er viss um að tryggingafélögin eru öll með CRM-kerfi en stjórnun viðskipta- tengsla virðist samt sem áður ábóta- vant ef viðskiptavinurinn er reiðubú- inn að færa sig annað með nokkurra ára millibili. Kannski er allt sem þarf að þjónustufulltrúi hringi í þá sem þegar eru í viðskiptum hjá viðkom- andi félagi, athugi hvort þeir séu ánægðir með tryggingarnar sínar og leiti leiða til að koma enn betur til móts við þarfir þeirra.“ Samkvæmt fræðunum er þumal- puttareglan sú að það sé fimmfalt ódýrara að halda í viðskiptavini með vandaðri stjórnun viðskiptatengsla en að laða að nýjan viðskiptavin. „Óskastaðan væri sú að fyrirtæki setti sig í samband við viðskiptavin- inn rétt áður en hann fer að leiða hugann að því að færa viðskipti sín annað og viðhaldi þannig góðu sam- bandi. Þegar viðskiptavinur er aftur á móti byrjaður að svipast um eftir því sem keppinautarnir hafa upp á að bjóða þá er fyrirtækið sem hann hefur átt í viðskiptum við í raun komið á núllpunkt og búið að missa mikið af því forskoti sem það annars hefði haft í baráttunni um viðskipti þessa tiltekna einstaklings.“ Snýst um vinnubrögð frekar en forrit Alls konar hugbúnaðarlausnir eru í boði sem hjálpa fyrirtækjum að nálgast stjórnun viðskiptatengsla með markvissum hætti og t.d. geyma á einum stað viðskiptasögu fólks og fyrirtækja eða setja af stað sérstaka ferla og viðvaranir ef við- skiptavinur lendir oft í vandræðum með vöru eða þjónustu. Víkingur segir það þó útbreiddan misskilning að stjórnun viskiptatengsla snúist um að hafa réttu forritin því hugbún- aðurinn sé aðeins verkfæri og geri lítið gagn ef ekki er gerð breyting á vinnubrögðum. Dýrustu og flottustu kerfi virki ekki vel ef þau eru ekki notuð rétt. „Allt of oft einblína stjórnendur á dýr CRM-kerfi en furða sig svo á að ekkert batni þegar gleymst hefur að ráðast í nauðsyn- lega breytingastjórnun á vinnu- staðnum.“ Eins og með allar breytingar get- ur það verið töluvert átak að innleiða bætta stjórnun viðskiptatengsla og ekki óalgengt að starfsmenn haldi að CRM kalli á að bæta mikilli vinnu við þeirra daglegu verkefni. „Í tilviki míns vinnustaðar þurfti að halda reglulega fundi og fylgja því vand- lega eftir að hver deild væri að nota CRM-kerfið rétt. Vissulega var þetta átak í fyrstu en ávinningurinn kom fljótt í ljós og gerði störfin létt- ari ef eitthvað er,“ segir Víkingur og bætir við að innleiðing stjórnunar viðskiptatengsla sé langhlaup sem kalli á sífellda þróun. Líftímavirði viðskiptavinar Víkingur leggur ríka áherslu á að árangurinn af stjórnun viðskipta- tengsla komi ekki alltaf strax í ljós og að stjórnendur nálgist verkefnið með röngu hugarfari ef þeir vænta mikils gróða strax og CRM-kerfi hefur verið tekið í notkun. „Stjórnun viðskiptatengsla snýst um það að vera með sem besta þjónustu og við- halda viðskiptum, og ávinningurinn ekki endilega sá að salan aukist um leið heldur gæti frekar birst í þeirri mynd að núverandi viðskiptavinir haldi tryggð við fyrirtækið í ár og áratugi. Frekar en að snúast um skammtímaábata snýst stjórnun við- skiptatengsla um líftímavirði hvers viðskiptavinar.“ Að mati Víkings þurfa íslensk fyrirtæki að vera á varðbergi því markaðurinn er að taka hröðum breytingum og samkeppnin við er- lenda aðila harðnar með hverju árinu. Gömlu vinnubrögðin dugi því ekki lengur. „Sum fyrirtæki eru vön því að viðskiptavinirnir hreinlega gangi inn um dyrnar hjá þeim án þess að hafi verið sérstaklega fyrir því haft, en það er reglan í öðrum löndum að seljendur laða til sín kaupendur með mun virkari hætti. Erlend fyrirtæki sem taka stjórnun viðskiptatengsla föstum tökum – með Amazon í broddi fylkingar – ná til íslenskra neytenda sem aldrei fyrr, en að auki er líklegra en ekki að þeir sem huga ekki rétt að stjórnun viðskiptatengsla muni smám saman fara halloka fyrir þeim innlendu keppinautum sem sinna þessum málum rétt.“ „Vön því að viðskiptavinirnir hreinlega gangi inn um dyrnar“  Fyrirtæki dragast aftur úr keppinautum ef stjórnun viðskiptatengsla er ábótavant AFP Langtímasamband Afgreiðslukassar í bandarískri matvöruverslun. Víða erlendis er stjórnun viðskiptatengsla sinnt með miklu markvissari hætti en hefð er fyrir á Íslandi og allt gert til að ríghalda í viðskiptavinina. Víkingur Grímsson 8. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.12 Sterlingspund 177.17 Kanadadalur 100.88 Dönsk króna 20.561 Norsk króna 14.973 Sænsk króna 15.009 Svissn. franki 138.21 Japanskt jen 1.1827 SDR 183.14 Evra 152.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.6503 Hrávöruverð Gull 1696.05 ($/únsa) Ál 2169.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.16 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.