Morgunblaðið - 08.03.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.03.2021, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021 ✝ Guðrún HelgaSigurðardóttir fæddist í Reykjavík 16. september 1963. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 20. febr- úar 2021. Guðrún Helga var dóttir hjónanna Sigurðar E. Guðmunds- sonar, fv. fram- kvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar, f. 18. maí 1932, d. 6. janúar 2019, og Al- dísar Pálu Benediktsdóttur, sérfræðings í útlánaeftirliti Landsbankans, f. 8. júlí 1940, d. 12. júlí 2007. Systkini Guðrúnar Helgu eru Benedikt, f. 19. apríl 1965, og Saga Emelía, f. 23. febrúar 1971. Guðrún Helga giftist Friðriki Friðrikssyni 27. desember 2014. Foreldrar hans voru Frið- rik Guðmundsson, f. 22. mars 1917, d. 12. mars 2005, og Elín Kristbergsdóttir, f. 1. nóv- ember 1929, d. 10. apríl 2017. Guðrún Helga og Friðrik kynntust í Finnlandi, bjuggu þar í 10 ár og í Hafnarfirði í tæp 30 ár. Börn þeirra eru: 1) Aldís Eva, f. 26. janúar 1990, sambýlismaður hennar Nebo Kospenda. Dóttir Aldísar er ’04-’09 blaðamaður á Frétta- blaðinu, ’09-’11 ritstjóri sjón- varpsdagskrárinnar Birtu, ’10- ’11 ritstjóri vikublaðsins Reykjavík og byggði hún blaðið upp frá grunni. ’11 ritstjóri frí- blaðsins Hafnarfjörður, Garða- bær, Álftanes. ’12 fréttamaður á fréttastofu RÚV, ’09 til dags- ins í dag var hún blaðamaður Arbeidsliv i Norden, sjálfstætt starfandi blaðamaður og öku- leiðsögumaður. Árið 2014 kem- ur út bókin Traditional Ice- landic Food: A Gastronomic Guide to Iceland eftir Guðrúnu Helgu á spjaldtölvu og síðar í kilju. Guðrún Helga tók einnig virkan þátt í félagsmálum, ’93- ’98 var hún stjórnarmaður í Suomifélaginu, vináttufélagi Ís- lands og Finnlands, ’96-’02 var hún ritari í stjórn Blaðamanna- félags Íslands, ’02-’03 varafor- maður Blaðamannafélags Ís- lands, ’03-’07 blaðafulltrúi Sundfélags Hafnarfjarðar, ’09- ’10 stýrði hún þjóðmálahópnum í Deiglunni í Hafnarfirði. ’09- ’11 var hún formaður Félags fjölmiðlakvenna (FFK). ’10-’15 var hún í kjörnefnd Blaða- mannafélags Íslands, ’14-’16 í ritnefnd Félags leiðsögumanna. Útför Guðrúnar Helgu fer fram í dag, 8. mars 2021, klukk- an 13. Aðstandendur og vinir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Slóð á streymi: https:// promynd.is/gudrunhelga Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ Emelía Rut Viðars- dóttir. 2) Dagur Páll, f. 6. desember 1991, sambýlis- kona hans Timeea Durubala. Guðrún Helga starfaði lengst af sem blaðamaður og leiðsögumaður. Hún útskrifaðist frá Mennta- skólanum í Reykja- vík 1983, fer í kjölfarið í fjöl- miðlafræði og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands í eitt ár. Frá ’85-’89 var hún í finnsk- unámi í háskólanum í Helsinki samhliða námi í blaðamennsku. Árið 1987 fær hún gráðu í so- cionom-blaðamennsku frá Svenska social- och komm- unalhögskolan við Helsingfors Universitet. Árið 1991 fær hún pol. kand.-próf í stjórn- málafræði með áherslu á al- þjóðastjórnmál frá háskólanum í Helsinki. ’86-’93 starfaði hún sem fréttaritari RÚV í Finn- landi, ’93-’97 var hún blaða- maður á DV, ’97-’00 starfaði hún á Degi/Tímanum síðan Degi sem vaktstjóri, ’02-’04 hafði hún umsjón með vefsíð- unni heimur.is, ’00-’04 var hún blaðamaður á Frjálsri verslun, Elsku mamma mín. Þá er þessari stuttu en erfiðu baráttu lokið. Þú sagðir við mig að þú vildir góðar minningargreinar og ég efast ekki um að það verði raunin. Þetta er mitt framlag. Ég hef notið þeirra forréttinda að vera alin upp af þér. Bestu vin- konu minni og mömmu sem hægt er að finna. Þú studdir við mig á allan hátt, ég fékk að njóta þess besta en líka þess versta með þér. Þú varst með mér þegar ég náði ýmsum áföngum í lífinu. Þú varst líka með mér í fæðingum beggja barnanna minna. Sóttir mig til London þegar ég endaði á spítala. Þú hefur syrgt með mér í mínum verstu raunum. Elskaðir mig af öllu hjarta, með tilheyr- andi kossum og knúsum. Stund- um svo mikið að litla barnið ég fékk nóg en fullorðna dóttirin fékk aldrei nóg. Ég átta mig á hvað ég hef verið með eindæm- um heppin. Að fá að vera alin upp af svo sanngjarnri og góðri konu. Að vita af heilum hug og hjarta að foreldri manns er stolt af manni. Ég er líka stolt af þér. Ég er stolt af öllu sem þú hefur gert og af öllu sem þú hefur fórnað. Þú hefur alltaf hlegið mikið og var það í miklu uppáhaldi hjá mér þegar við hlógum saman og þá þegar önnur hvor okkar hafði sagt einstaklega lélegan brand- ara. Þá hlógum við mest. Eða þá þegar við mættum í frænku- klúbbinn og hlógum að látunum í restinni af frænkunum. Þú hefur alltaf sýnt öllum svo mikla hjartahlýju og skilning, al- veg óháð því hvaðan fólk kemur. Ég er nokkuð viss um að ég fæ það beint frá þér hvaða starfs- vettvang ég valdi mér. Við höfum alltaf verið nánar en þá sérstak- lega eftir að Emelía Rut kom í heiminn og varð hún fljótt uppá- haldsmanneskjan þín. Emelía segir stolt frá því að þú sért lífið hennar og hún elski þig. Þú kenndir mér að vera frábær mamma og mun ég stefna að því í lífi mínu að komast með tærnar þar sem þú hefur hælana í móð- urhlutverkinu. Mér hefur alltaf þótt vænt um þennan sálm sem þú fórst með fyrir mig sem barn þegar þú svæfðir mig á kvöldin og ég held áfram að fara með fyrir Emelíu Rut. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Takk fyrir að styðja alltaf við mig. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Takk fyrir allan tíma okkar saman, þótt alltof stuttur hafi verið. Takk fyrir allt elsku mamma mín. Kysstu og knúsaðu Júlíönu og hugsaðu vel um hana fyrir mig. Hún er í öruggum höndum hjá þér. Hvíldu í friði. Þín dóttir, Aldís Eva Friðriksdóttir. Elsku mamma, þetta var erfitt ár, örugglega erfiðasta ár ævi minnar en það ár sem ég óskaði að myndi aldrei ljúka. Ég sakna þín svo sárt, sakna þess að fara í bíltúr með þér og kjafta enda- laust á meðan þú hlustaðir í hljóði og varst besta vinkona ein- mana unglings. Ég sakna þess að horfa á handboltaleiki með þér og bregða þegar spennan tók yf- ir. Ég sakna þess að heyra kóngulóar-ópið þitt. Ég sakna þess að koma heim og finna lykt- ina af bananabrauðinu sem þú bakaðir af því að þú vissir að það væri uppáhaldið mitt. Ég sakna þess að koma með þér að þrífa stóra bílinn fyrir ferð. Ég sakna þess að liggja hjá þér og kjafta. Ég sakna brandaranna þinna, sama hvað aðrir segja, ég hló alltaf. Ég sakna þess að sama hvaða vitleysa mér datt í hug, þá stóðst þú alltaf við bakið á mér. Ég sakna þess að þú talaðir aldr- ei undir rós, þú sagðir bara sann- leikann. Það er svo ótal margt í þessu lífi sem þú gerðir fyrir mig sem ég mun sakna, þú varst besta vinkona mín og enginn mun geta komið í þinn stað. Þú varst yndisleg mamma, þú varst blíð og góð en hafðir líka aga þegar þurfti. Ég get ekki ímyndað mér neitt sem þú gætir hafa gert betur. Þú varst ekki bara móðir mín, þú varst líka vin- kona mín, þegar illa gekk eða ég var einmana, þá varst þú alltaf tilbúin í spjall. Hvíldu í friði elsku mamma, ég veit ekki hvað ég geri án þín. Dagur Páll Friðriksson. Stóra systir mín er fallin frá langt fyrir aldur fram eftir stutta og snarpa viðureign við illvígan sjúkdóm – horfin á vit mæðra sinna, sem henni varð oft hugsað til í baráttu sinni undanfarna mánuði, móður og ömmu, sem báðar fengu einnig banvænan sjúkdóm. Hún var ekki nema einu og hálfu ári eldri en ég, og við geng- um saman í gegnum súrt og sætt í uppvextinum í Breiðholtinu – og oft var þá gott að geta skýlt sér á bak við hana þegar veröldin varð framandi og óskiljanleg litlum dreng. Hún stjórnaði þá ferðinni og henni var treyst fyrir því að hafa vit fyrir okkur báð- um, og stóð undir því eins og öðru í sínu lífi. Hún var vel gefin og góð manneskja og vinsæl í stórfjöl- skyldu okkar og á meðal vina. Hún hafði ríka réttlætiskennd og var skapmikil og tilfinningarík eins og hún átti kyn til, bæði hið reykvíska og hið þingeyska. Hún var kærleiksrík við sína nánustu og vinsamleg í garð annarra. Hún var ákveðin, dugleg og þol- góð – og dálítið þrjósk – og gafst ekki upp þótt á móti blési eins og sannaðist vel í baráttunni við sjúkdóminn. Strax á menntaskólaárunum fékk hún brennandi áhuga á að starfa við blaðamennsku, fúskaði ekkert við það en hélt að loknu stúdentsprófi til Finnlands á skóla og lærði fagið, og starfaði svo lengst af við það á ýmsum fjölmiðlum. Í Finnlandi kynntist hún eig- inmanni sínum, Hafnfirðingnum Friðriki Friðrikssyni, og er heim kom frá námi stofnuðu þau heim- ili sitt „suðrí Firði“, en svo kall- aði Reykvíkingurinn pabbi heit- inn Hafnarfjörð. Hún var lánsöm að eiga góða fjölskyldu, traustan og vandaðan mann, og tvö vel gerð og efnileg börn – það var hennar ríkidæmi. Hún var mér ætíð góð og skilningsrík systir, og sýndi væntumþykju sína bæði í orði og verki. Það er mér ómetanlegt og því mun ég aldrei gleyma. Benedikt Sigurðsson. Guðrún Helga verður alltaf minnisstæð okkur frændfólki hennar, enda sönn kjarnakona og leiðtogi sem skilur eftir sig stórt skarð meðal allra sem þekktu hana. Hún var lífsglöð og fjörug kona sem var heilbrigðið og hreyfingin uppmáluð. Guðrún Helga var fyrsta barnabarn Guðmundar Kristins- sonar og Guðrúnar Elímundar- dóttur og sem elsta barnið var hún ævinlega mikill foringi og leiðtogi mjög samrýnds frænd- systkinahóps sem eyddi miklum tíma saman í Bökkunum í Breið- holti. Þar fengu allir að vera saman og mikið passað upp á að vel væri séð um hvern og einn af krökkunum. Þegar þessi börn uxu úr grasi hélt þessi frænd- rækni hennar áfram og ávallt mætti hún í öll boð ásamt því að hafa veg og vanda af skipulagn- ingu árlegs jólaboðs fjölskyld- unnar og ýmissa annarra fjöl- skylduviðburða. Þá var Guðrún mjög farsæll blaðamaður áður en hún venti kvæði sínu í kross og gerðist leið- sögumaður. Hún rak fyrirtæki með Friðriki eiginmanni sínum og gekk það mjög vel, enda naut hún sín afar vel í leiðsögumanns- hlutverkinu. Bæði var hún fróður og góður sögumaður en einnig var hún mikil útivistarmann- eskja sem elskaði náttúruna og brann af áhuga að sýna útlend- ingum Ísland. Hún var líka íþróttamanneskja og var lengi vel ansi liðtæk í langhlaupum og tók oft þátt í Reykjavíkurmara- þoninu, m.a. í heilu maraþoni. Við munum alltaf minnast hennar sem manneskju sem allt- af var til í að hjálpa, vildi alltaf halda góðu sambandi innan fjöl- skyldu sinnar og sem ástríkrar móður og eiginkonu. Hugur okk- ar er hjá Friðriki og börnum þeirra, Aldísi Evu, Degi Páli og fjölskyldum. Við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Kristinn R. Guðmundsson, Guðmundur Kristinsson, Guðrún Kristinsdóttir, Ragnar Kristinsson. Látin er kær vinkona og frænka, Guðrún Helga Sigurðar- dóttir, langt fyrir aldur fram. Leiðir okkar lágu saman frá blautu barnsbeini, við vorum systkinadætur og hún einungis ári eldri. Fram undir tvítugt bjuggu fjölskyldur okkar nálægt hver annarri, fyrst á Meistara- völlum og síðan Kóngsbakka í Neðra-Breiðholti. Föðurfjöl- skylda hennar, móðurfjölskylda mín, var samheldin og samgang- ur mikill. Amma okkar og frændi bjuggu einnig á Kóngsbakka og þangað sóttum við öll, þar á með- al þau systkinin þrjú og við syst- urnar tvær. Mér eru minnisstæðar margar góðar stundir, svo sem þegar við gistum hjá ömmu, röltum í bóka- bílinn eða tókum strætó á bóka- safnið, fórum í sund og á skíði. Á sumrin dvaldi Guðrún Helga oft hjá móðurfólki sínu á Grímsstöð- um á Fjöllum. Var hún þá dugleg að skrifa okkur, eins og síðar frá Finnlandi. Guðrún Helga var einstaklega atorkusöm og alla tíð mikil íþrótta- og útivistarkona, æfði ung handbolta og frjálsar íþrótt- ir með ÍR og stundaði á fullorð- insárum líkamsrækt, hlaup og fjallgöngur af miklu kappi. Að loknu stúdentsprófi hélt hún til Finnlands og dvaldist þar í áratug við nám og störf. Það voru heillaspor og tími sem hún minntist með mikilli ánægju. Þá eins og jafnan síðar tókst hún óttalaus á við ný verkefni og áskoranir, enda sérlega víðsýn og fordómalaus manneskja. Í Helsinki aflaði hún sér menntunar á sviði blaða- mennsku, finnsku og stjórnmála- fræði, auk þess að kynnast eig- inmanni sínum, Friðriki Friðrikssyni arkitekt. Þar fædd- ist líka eldra barn þeirra hjóna árið 1990, dóttirin Aldís Eva, sál- fræðingur. Ári seinna voru þau komin til Íslands og eignuðust soninn Dag Pál, lækni. Barna- barnið Emelía Rut kom til sög- unnar árið 2011 og varð sannkall- aður sólargeisli í lífi þeirra allra. Guðrún Helga var stoð og stytta eiginmanns síns, barna og barna- barns og naut gæfuríks fjöl- skyldulífs. Missir þeirra er mikill og systkina hennar einnig. Hún starfaði lengi sem blaða- maður, fréttaritari og ritstjóri hjá ýmsum fjölmiðlum, svo sem Fréttablaðinu og RÚV. Jafn- framt menntaði hún sig og starf- aði sem leiðsögumaður, m.a. ráku þau hjónin ferðaþjónustu- fyrirtæki við góðan orðstír. Já- kvæðni og glaðlyndi voru ríkjandi þættir í skapgerð Guð- rúnar Helgu. Hún var líka hug- myndarík og drífandi, lagði jafn- an gott til mála og varð því fljótt vinmörg og vel látin. Á síðari árum stofnuðum við ásamt fleiri frænkum okkar saumaklúbb og áttum þar góðar samverustundir. Fyrir tveimur árum fórum við Guðrún Helga svo saman til Svíþjóðar og er sú ferð ógleymanleg. Þá voru ófá matarboðin sem við hjónin sátum hjá þeim Friðriki í Kelduhvammi í Hafnarfirði, en nýverið fluttu þau í glæsilega íbúð við Skipalón. Fyrir ári greindist Guðrún Helga með mein sem ekki varð yfirunnið en tókst á við það af sama kjarki og endranær. Í þeirri baráttu naut hún tak- markalausrar umhyggju fjöl- skyldu sinnar. Það er sannarlega skarð fyrir skildi þegar þessarar sterku og hlýju konu nýtur ekki lengur við. Blessuð sé minning vinkonu minnar og frænku, Guðrúnar Helgu Sigurðardóttur. Elín Guðjónsdóttir. Þetta byrjaði allt þegar ég frétti í hvaða landi ég myndi eyða næsta ári lífs míns, Íslandi. Stjörf af ótta og full af vonum samþykkti ég og ævintýrið byrj- aði. Ég hefði aldrei getað ímynd- að mér að þegar ég kæmi til landsins myndi ég hitta konuna sem yrði móðir mín það ár og frá þeim degi, önnur móðir allt mitt líf. Takk kærlega fyrir þolinmæð- ina, kærleikann, fyrir að gefast aldrei upp á þeirri von að ég myndi læra íslensku og allan lærdóminn sem ég fékk frá þér. Það eru alltaf fleiri staðir til að skoða, matur til að smakka og sögur til að segja. Hjarta mitt og hugur er fullt af minningum, hlátri og ást þegar ég hugsa til þín og ég mun geyma það að ei- lífu. Það var í gegnum þig sem ég varð ástfangin af Íslandi, landinu sem er mitt annað heimili og þín vegna á ég aðra fjölskyldu allt mitt líf. Ég geymi minninguna um þig í hjarta mínu þar til við hittumst aftur, því ég veit að þetta er ekki okkar seinasta kveðja. Cecilia Zurita. Blikið í bláum augunum, snögga brosið, hláturinn hennar. Tryggðin við okkur vinkonurnar. Lífsgleðin og eljan, forvitnin um allt milli himins og jarðar, sam- viskusemin og hlýjan. Röggsemi blaðamannsins og með báða fæt- ur á jörðinni. Ekkert vafðist fyrir henni, gekk bara í verkin. Þetta og svo ótal margt annað stendur upp úr í minningunni um ein- staka konu sem fallin er frá langt fyrir aldur fram. „Er ekki kominn tími á hitt- ing?“ birtist reglulega á fésbók- arsíðu hópsins sem sumar okkar kölluðu „Gáfukvennahópinn“ og aðrar „Dagskonur plús ein und- anvilla“ (þótt það væru reyndar fleiri en ein í hópnum sem aldrei unnu á Degi). Guðrún Helga safnaði okkur í kringum sig, átta blaða- og fréttakonum á öllum aldri sem hún þekkti frá hinum ýmsu fjölmiðlum sem hún vann á í gegnum tíðina. Hún var drif- fjöðrin í hópnum, sú sem hóaði okkur saman í hádegismat, kvöldstundir eða dagsferðir hingað og þangað. Eftirminnileg er ferð okkar um Suðurland í tilefni afmælis Fríðu. Guðrún Helga leiðsögu- maður settist upp í sinn fjallabíl og ók með hópinn fyrst til að sækja Fríðu í Þorlákshöfn og svo vítt og breitt um Suðurlandið, þar sem við m.a. skáluðum óvænt við ferðamenn úti í guðsgrænni náttúrunni. Önnur skemmtileg ferð var þegar Heiður átti af- mæli og þá var skálað í bleiku kampavíni sem Guðrún Helga galdraði fram á einum staðnum sem stoppað var á. Allt varð ein- hvern veginn auðvelt og skýrt þegar Guðrún Helga var við stýrið. Við minnumst Guðrúnar Helgu með aðdáun enda var hún heilsteypt, eldklár og sönn vin- kona vina sinna. Blaðamennskan var henni ástríða sem hún sinnti af fagmennsku. Hún var óhrædd við breytingar og að takast á við nýjar áskoranir, lagði t.d. ein síns liðs í mikla ævintýraferð til Norður-Rússlands í þriggja mánaða leyfi frá blaðamennsku til að ná sér í forvitnilegt efni til að skrifa um. Í kjölfar efnahagskreppunnar fór hún út í ferðamennsku og trú sjálfri sér gerði hún það af heil- um hug, skellti sér í meirapróf og rútupróf og keypti sér fólksflutn- ingabíl. Margir eiga góðar minn- ingar eftir þær ferðir og betri skilning á sögu lands og þjóðar. Guðrún Helga lét þetta ekki duga heldur skrifaði skemmti- lega bók fyrir útlendinga um mataræði Íslendinga. Á föstudagskvöldi í byrjun febrúar bauð hún okkur öllum til sín í nýju fallegu íbúðina þeirra Friðriks. Þrátt fyrir veikindin sótti hún það fast að við mættum, sem við gerðum allar og nutum útsýnisins, góðra veitinga og fé- lagsskaparins. Við skáluðum fyr- ir vináttunni og það var glatt á hjalla og gleði yfir að fá loksins að hittast. Heimsóknin var okkur öllum dýrmæt. Tveimur dögum síðar var hún lögð inn á sjúkra- hús í hinsta sinn. Guðrúnar Helgu verður sárt saknað. Við þökkum fyrir sam- fylgdina með kærri vinkonu og sendum okkar dýpstu samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar. Eygló Stefánsdóttir, Fríða Björnsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Heiður Helgadóttir, Lóa Pind Aldísardóttir, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, Sigrún María Kristinsdóttir, Vigdís Stefánsdóttir. Guðrún Helga Sigurðardóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTMANN KRISTMANNSSON frá Ísafirði, lést sunnudaginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 12. mars klukkan 13. Í ljósi aðstæðna eru þeir sem ætla að vera viðstaddir útförina beðnir að láta fjölskylduna vita. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/wNaAU-yKcW4 Einnig verður hægt að nálgast virkan hlekk á mbl.is/andlat/ Hólmfríður Sigurðardóttir Hulda Kristmannsdóttir Stefán Þór Ragnarsson Arna Kristmannsdóttir Ingvaldur L. Gústafsson Linda Kristmannsdóttir Geir Þorsteinsson Kristmann Kristmannsson Ásgerður H. Ingibergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.