Morgunblaðið - 08.03.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. MARS 2021
Lengjubikar karla
Valur – HK................................................ 2:2
Afturelding – KA...................................... 1:7
Grindavík – Víkingur Ó............................ 3:2
FH – Þór ................................................... 4:0
KR – Kórdrengir ...................................... 3:1
Selfoss – Vestri ......................................... 1:0
Fylkir – Leiknir R. ................................... 0:1
Lengjubikar kvenna
Keflavík – ÍBV.......................................... 2:1
Tindastóll – FH ........................................ 4:5
Þór/KA – Breiðablik................................. 0:2
England
Burnley – Arsenal ................................... 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 68
mínúturnar með Burnley.
Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
Sheffield United – Southampton ............ 0:2
Aston Villa – Wolves ................................ 0:0
Brighton – Leicester................................ 1:2
WBA – Newcastle .................................... 0:0
Liverpool – Fulham.................................. 0:1
Manchester City – Manchester Utd....... 0:2
Tottenham – Crystal Palace.................... 4:1
Staðan:
Manch. City 28 20 5 3 56:19 65
Manch. Utd 28 15 9 4 55:32 54
Leicester 28 16 5 7 48:32 53
Chelsea 27 13 8 6 42:25 47
Everton 26 14 4 8 39:33 46
Tottenham 27 13 6 8 46:28 45
West Ham 26 13 6 7 40:31 45
Liverpool 28 12 7 9 47:36 43
Aston Villa 26 12 4 10 38:27 40
Arsenal 27 11 5 11 35:28 38
Leeds 26 11 2 13 43:44 35
Wolves 28 9 8 11 28:37 35
Crystal Palace 28 9 7 12 30:47 34
Southampton 27 9 6 12 33:44 33
Burnley 28 7 9 12 20:36 30
Newcastle 27 7 6 14 27:44 27
Brighton 27 5 11 11 27:35 26
Fulham 28 5 11 12 22:33 26
WBA 28 3 9 16 20:56 18
Sheffield Utd 28 4 2 22 16:45 14
West Ham – Chelsea................................ 0:2
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
B-deild:
Millwall – Blackburn............................... 0:2
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn
með Millwall.
Þýskaland
Freiburg – Bayern München.................. 1:5
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á
sem varamaður hjá Bayern á 76. mínútu.
Hoffenheim – Eintracht Frankfurt....... 2:0
Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Eintracht á 25. mínútu.
Ítalía
Inter Mílanó – Napoli .............................. 0:0
Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
Napoli, Lára Kristín Pedersen kom inn á
sem varamaður á 59. mínútu.
B-deild:
Venezia – Brescia .................................... 0:1
Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tím-
ann á varamannabekk Venezia, Óttar
Magnús Karlsson var ekki í hópi.
Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Brescia og Hólmbert Aron Friðjónsson
kom inn á sem varamaður á 77. mínútu.
Frakkland
Fleury – Le Havre ................................... 1:0
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Anna
Björk Kristjánsdóttir og Andrea Rán
Hauksdóttir léku allan leikinn með Le
Havre.
Rússland
CSKA Moskva – Akhmat Grozní ........... 2:0
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson
kom inn á sem varamaður á 71. mínútu.
Holland
Vitesse – AZ Alkmaar............................. 2:1
Albert Guðmundsson lék fyrstu 76. mín-
úturnar með AZ Alkmaar.
Pólland
Pogon Szczecin – Lech Poznan ............. 0:1
Aron Jóhannsson lék fyrstu 73 mínút-
urnar með Lech Poznan.
Katar
Al-Arabi – Qatar SC ................................ 1:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Danmörk
Midtjylland – AGF ................................... 0:1
Mikael Anderson kom inn á sem vara-
maður hjá Midtjylland á 81. mínútu.
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 83.
mínúturnar með AGF.
Bröndby – FC Köbenhavn ...................... 2:1
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
Vejle - OB.................................................. 2:0
Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 79. mín-
úturnar með OB, Sveinn Aron Guðjohnsen
var ekki í hóp.
Hvíta-Rússland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
BATE Borisov – Vitebsk......................... 2:1
Willum Þór Willumsson lék allan leikinn
með BATE Borisov.
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Dominykas Milka var stigahæstur
Keflvíkinga þegar liðið heimsótti
Þór frá Þorlákshöfn í toppslag úr-
valsdeildar karla í körfuknattleik,
Dominos-deildarinnar, í Icelandic
Glacial-höllina í Þorlákshöfn í gær.
Milka skoraði 21 stig og tók sex
fráköst en leiknum lauk með sex
stiga sigri Keflavíkur, 94:88.
Mikið jafnræði var með liðunum
allan leikinn og leiddu Þórsarar með
einu stigi í hálfleik, 41:40.
Keflvíkingar unnu þriðja leikhluta
með sex stiga mun og náðu að halda
út í fjórða leikhluta.
Hörður Axel Vilhjálmsson átti
einnig mjög góðan leik fyrir Kefla-
vík, skoraði 19 stig og gaf tólf stoð-
sendingar, en hjá Þórsurum var
Styrmir Snær Þrastarson stiga-
hæstur með 15 stig.
Tyler Sabin átti enn einn stór-
leikinn fyrir KR þegar liðið heim-
sótti Tindastól á Sauðárkrók.
Sabin gerði sér lítið fyrir og skor-
að 36 stig fyrir Vesturbæinga, ásamt
því að gefa sjö stoðsendingar en
leiknum lauk með 104:99-sigri KR.
KR-ingar voru sterkari í fyrri
hálfleik en Tindastóll leiddi með
tveimur stigum fyrir fjórða leik-
hluta, 75:73.
Sabin kom KR yfir 79:77 með
þriggja stiga körfu þegar níu mín-
útur voru til leiksloka og Stólarnir
náðu ekki að snúa leiknum sér í vil
eftir það.
Matthías Orri Sigurðarson skor-
aði 14 stig fyrir KR en Nikolas
Tmsick var stigahæstur í liði Tinda-
stóls með 22 stig.
Stjarnan slapp með skrekkinn
þegar liðið heimsótti Hött á Egils-
staði en Austin Brodeur tryggði
Garðbæingum eins stigs sigur þegar
fjórar sekúndur voru til leiksloka.
Hattarmenn leiddu með sjö stig-
um í hálfleik, 52:45, en Garðbæing-
um tókst að jafna metin í þriðja leik-
hluta og var staðan 71:71 fyrir fjórða
leikhluta.
Liðin skiptust á að skora á loka-
mínútunum og Matek Karlovic fékk
tækifæri til að vinna leikinn fyrir
Hött með flautukörfu en brást boga-
listin.
Ægir Þór Steinarsson var stiga-
hæstur Garðbæinga með 23 stig og
ellefu fráköst en Karlovic var at-
kvæðamestur í liði Hattar með 27
stig.
Þór frá Akureyri vann sinn
fjórða leik í deildinni í vetur þegar
liðið fékk Grindvík í heimsókn í Höll-
ina á Akureyri.
Lokatölur urðu 101:98, Þórsurum
í vil, Ivan Aurrecoechea átti stórleik
fyrir Þórsara, skoraði 36 stig og tók
fimmtán fráköst.
Þórsarar leiddu með einu stigi í
hálfleik, 53:52, og þeir juku forskot
sitt í fimm stig í þriðja leikhluta.
Grindavík leiddi með þremur stig-
um þegar tvær mínútur voru til
leiksloka, 93:91, en þá hrukku Þórs-
arar í gang á nýjan leik og innbyrtu
sigur.
Ingvi Þór Guðmundsson skoraði
19 stig gegn sínum gömlu félögum
en Dagur Kár Jónsson var stiga-
hæstur Grindvíkinga með 24 stig.
Keflavík vann
toppslaginn
Stjarnan þurfti að hafa fyrir sigrinum
Morgunblaðið/Þórir Tryggvaso
Öflugur Grindvíkingar réðu illa við Ivan Aurrecoechea á Akureyri.
Nevena Tasic úr Víkingi gerði sér
lítið fyrir og varð þrefaldur Íslands-
meistari í borðtennis þegar Íslands-
mótið 2021 var haldið í TBR-
íþróttahúsinu í gær.
Nevena bar sigur úr býtum í ein-
liða-, tvíliða- og tvenndarleik.
Nevema lagði Sól Mixa, BH, að
velli í úrslitaleik í einliðaleik kvenna
og í tvíliðaleik höfðu hún og Agnes
Brynjarsdóttir, Víkingi, betur gegn
Harriet Cardew og Sól Mixa úr BH.
Í tvenndarleik unnu hún og Ingi
Darvis sigur gegn Magnúsi Gauta
Úlfarssyni og Sól Mixa.
Í einliðaleik karla varð Magnús
Gauti Úlfarsson hlutskarpastur eft-
ir sigur gegn Inga Darvis úr Vík-
ingi.
Magnús Gauti varð einnig Ís-
landsmeistari í tvíliðaleik karla þar
sem hann og Birgir Ívarsson höfðu
betur gegn Inga Darvis og Magnúsi
J. Hjartarsyni.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Þrenna Nevena Tasic varð þrefaldur Íslandsmeistari í TBR-húsinu.
Þrefaldur meistari
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
átti stórleik fyrir ÍBV þegar liðið
fékk Fram í heimsókn í stórleik úr-
valsdeildar kvenna í handknattleik,
Olísdeildarinnar, í Vestmannaeyjum
í elleftu umferð á laugardaginn.
Leiknum lauk með 26:24-sigri ÍBV
en Hanna skoraði átta mörk.
„Þrátt fyrir að vera með tveggja
eða þriggja marka forskot voru leik-
menn ÍBV aldrei í rónni enda Fram-
liðið virkilega sterkt. Eyjakonur
hægðu vel á leiknum og reyndu að
drepa niður hraðann í Framliðinu.
Það gekk ágætlega en ÍBV tapaði
boltanum ekki mikið til Framara án
þess að koma skoti á markið.
Leikurinn var ótrúlegur þó fyrir
þær sakir að engin tveggja mínútna
brottvísun leit dagsins ljós, sem
verður að teljast ótrúlegt í hörkuleik
sem þessum. Oft á tíðum fengu leik-
menn hrindingar en línan hélt þó út
allan leikinn og verður að hrósa
dómurum leiksins fyrir það,“ skrif-
aði Guðmundur Tómas Sigfússon
m.a. í umfjöllun sinni um leikinn.
KA/Þór náði eins stigs forystu í
deildinni þrátt fyrir 27:27-jafntefli
gegn Haukum í KA heimilinu á Ak-
ureyri. Úrslitin réðust á lokamín-
útum leiksins en Rut Jónsdóttir fór
mikin í liði KA/Þórs og skoraði ell-
efu mörk..
„Þrátt fyrir að KA/Þór hafi verið
yfir stærstan hluta leiksins þá geta
Akureyringar þakkað fyrir að hafa
náð stiginu miðað við hvernig loka-
sóknirnar spiluðust. Vörn heima-
kvenna var langt frá sínu besta í
leiknum og markvarslan ekki góð,“
skrifaði Einar Sigtryggsson m.a í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Stjarnan vann sannfærandi sigur
á Val, 30:23, og liðin höfðu því sæta-
skipti í fjórða og fimmta sætinu og
HK vann nauman sigur á FH, 24:23, í
Kaplakrika.
Fyrsti sigur ÍBV gegn
Fram síðan 2018
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Sigurvíma Fagnaðarlæti Eyja-
kvenna voru ósvikin í leikslok.
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda
Hannesdóttir kom fyrst í mark á
sprettþrautarmóti í Clermont í Flórída
í gær. Það var bandaríska þríþrautar-
sambandið sem stóð fyrir mótinu en í
sprettþraut synda keppendur 750
metra, hjóla 20 kílómetra og hlaupa 5
kílómetra.
Guðlaug Edda kom í mark á tím-
anum 58:20,6 mínútum og var tæp-
lega einni og hálfri mínútu á undan
næstu konu. Guðlaug Edda hefur dval-
ið í Flórída að undanförnu þar sem
hún æfir en hún mun keppa í Sarasota
um næstu helgi.
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði
Íslands og leikmaður Barcelona á
Spáni, varð bikarmeistari með liðinu í
gær eftir átta marka sigur gegn Adem-
ar León í úrslitaleik í Madríd fyrir
framan 1.500 manns. Sigur Barcelona
var aldrei í hættu en liðið leiddi með
sjö mörkum í hálfleik, 20:13, og fagn-
aði 35:27-sigri í leikslok. Aron skoraði
eitt mark í leiknum, en þetta var í
fjórða sinn á fjórum árum sem Aron
verður bikarmeistari með liðinu.
Barcelona hefur unnið bikarkeppnina
undanfarin átta ár í röð og hefur alls
orðið bikarmeistari í 25 skipti.
Íslandsmeistarar Breiðabliks gerðu
góða ferð norður á Akureyri þar sem
liðið vann 2:0-sigur á Þór/KA í Bog-
anum í deildabikar kvenna í knatt-
spyrnu, Lengjubikarnum, í gær.
Agla María Albertsdóttir kom Breiða-
bliki yfir á 12. mínútu með skalla af
stuttu færi og varamaðurinn Bergþóra
Sól Ásmundsdóttir skoraði með skoti
úr markteig eftir fyrirgjöf frá Áslaugu
Mundu Gunnlaugsdóttur á 66. mínútu
og þar við sat. Breiðablik er með fjög-
ur stig eftir jafntefli við Fylki í fyrsta
leik. Þór/KA er með þrjú eftir sigur á
FH í fyrstu umferð.
Sverrir Ingi Ingason skoraði fyrra
mark PAOK þegar liðið fékk Aris í
heimsókn í nágrannaslag í grísku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Sverrir Ingi minnkaði muninn fyrir PA-
OK í stöðunni 2:0 á 87. mínútu og það
var svo Vierinha sem jafnaði metin fyr-
ir PAOK í uppbótartíma og lokatölur
2:2. Sverrir hefur skorað fimm deild-
armörk á leiktíðinni, en hann hefur
aldrei áður skorað eins mikið á einu
tímabili í deildakeppni. Fjögur mark-
anna hafa komið eftir áramót. PAOK er
í 3. sæti með 47 stig en Olympiacos er
efst með 64 stig.
Eitt
ogannað
Aron
Pálmarsson
Agla María
Albertsdóttir