Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 28
Gleymumekki hinum stóru málunum Baráttan við báknið Báknið vex stjórnlaust og kerfisvæðingin eykst. Afleiðingin er sú að það verður sífellt erfiðara að stofna eða reka lítil fyrirtæki og skapa ný verðmæti. Lítil fyrirtæki þurfa að ráða sérfræðinga til að fást við kerfið. Fólk þarf svo að borga hærri skatta til að standa undir stækkandi bákni. Miðflokkurinn berst fyrir því að minnka báknið, lækka álögur á almenning og einfalda lífið. Verjum fullveldið Nú þarf að verja fullveldið. Fullveldi Íslands hefur skilað samfélaginu gífurlegum árangri. Á síðustu árum hefur það reynst ómetanlegt við að leysa gríðarstór mál á borð við Icesave og uppgjör bankanna sem gjörbreytti efnahagsstöðu landsins. Í bóluefnamálum hefði beiting fullveldis skipt sköpum. Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldið og gegn aukinni ásælni ESB til áhrifa m.a. í orkumálum. Samgöngubætur um allt land, ekki Borgarlínu Þörfin fyrir samgöngubætur er knýjandi bæði á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Í stað þess að forgangsraða rétt setur ríkisstjórnin 50 milljarða í Borgarlínu semmun svo valda eilífðarútgjöldum fyrir ríkissjóð og er til þess fallin aðþrengja að annarri umferð og ýta burt Reykjavíkurflugvelli. Fjármálakerfið Stóru aðgerðirnar sem fylgdu uppgjöri föllnu bankanna og endurreisn efnahagslífsins árið 2015 hafa enn ekki verið kláraðar. Mikilvægur liður í að hámarka ávinning samfélagsins var að byggt yrði upp sterkt og heilbrigt fjármálakerfi á Íslandi til að þjónusta almenning og fyrirtæki á góðum kjörum. Miðflokkurinn lagði fram heildaráætlun um fjármálakerfið og lífeyrissjóðina. Málefni hælisleitenda Málefni hælisleitenda eru í ólestri á Íslandi og áform stjórnvalda munu gera okkur enn erfiðara að aðstoða sem flesta þeirra sem þurfa mest á hjálp að halda. Hlutfallslega eru hælisumsóknir nú orðnar sexfalt fleiri en í Noregi og Danmörku. Miðflokkurinn vill nýta reynslu annarra Norðurlanda og skynsamlega stefnu danskra jafnaðarmanna. Atvinnulíf Íslenskt atvinnulíf hefur verið vanrækt. Landbúnaður var lentur í verulegum vanda áður en faraldurinn hófst. Iðnaður býr við viðvarandi óvissu. Ferðaþjónustufyrirtæki eiga mörg á hættu að verða sett á brunaútsölu og nýsköpunarfyrirtæki og annar minni rekstur mætir íþyngjandi regluverki sem er sniðið að stórfyrirtækjum. Miðflokkurinn hefur kynnt róttækar lausnir fyrir atvinnulífið. Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins hefur umræðaummörg stærstu viðfangsefnistjórnmálanna verið í lamasessi ímeira en ár. Þó voru þau orðin aðkallandi löngu áður en faraldurinn hófst. Forðum frekara tjóni. Vanrækjumekki hin stórumálin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.