Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 29
Lestu nánar á midflokkurinn.is Frjálslyndi Frjálslyndi og önnur grunngildi samfélagsins eiga undir högg að sækja. Tjáningarfrelsi og opin skoðanaskipti hafa farið halloka fyrir nýjum rétttrúnaði þar sem yfirborðsmennska og ímyndarsköpun ráða för. Miðflokkurinn telur að frjáls tjáning og opin skoðanaskipti séu forsenda framfara. Við erum óhrædd við að fara gegn hóphugsun stjórnmálanna og berjast fyrir því sem við teljum að þurfi að breyta en verja það sem hefur reynst vel. Öryggi Það er frumskylda ríkisvaldsins að vernda öryggi borgaranna.Miðflokkurinn hefur beitt sér fyrir því að lögregla og landamæraeftirlit fái úrræði og fjármagn til að beita sér gegn skipulagðri glæpastarfsemi og að gerðar verði ráðstafanir til að bregðast við skýrslu Ríkislögreglustjóra um stóraukin umsvif afbrotahópa á Íslandi. Liðsmönnum erlendra glæpagengja á að vísa úr landi. Eldri borgarar Árið 2014 var eldri borgurum veitt fyrirheit um að þegar búið væri að endurreisa efnahagslíf landsins fengju þeir að njóta þess í bættum kjörum. Endurreisnin náðist hraðar og betur en flestir bjuggust við en eldri borgarar bíða enn og búa við ósanngjarnar skerðingar sem draga úr vilja til að spara og vinna. Miðflokkurinn hefur frá upphafi lagt áherslu á að staðið verði við fyrirheitin við eldri borgara. Ísland allt Miðflokkurinn berst fyrir stórtækustu áætlun sem kynnt hefur verið til að efla byggðir landsins alls. Þar helst allt í hendur, heilbrigðismál, menntun og önnur þjónusta ríkisins, samgöngur, skattalegir hvatar, atvinnuuppbygging, orkumál, fjarskipti og annað sem varðar daglegt líf fólks. Grunnhugmyndin er sú að allir landsmenn eigi rétt á sömuþjónustu og lífsgæðumóháð búsetu. Með heildaráætluninni „Ísland allt“ verjum við byggðir landsins og aukum værðmætasköpun samfélaginu öllu til hagsbóta. Það sem við segjumst ætla að gera gerum við - vertu í okkar liði, vertu með í Miðflokknum Þetta snýst allt um heimilin Allt snýst þetta um að verja heimilin og bæta hag þeirra. Við stórtækar aðgerðir á borð við skuldaleiðréttinguna og uppgjör föllnu bankana var markmiðið alltaf að verja og bæta kjör alls almennings. Það sama á við um baráttu Miðflokksins nú. Hún miðar öll að því að nýta tækifæri samfélagsins og tryggja að ávinningurinn skili sér á sanngjarnan hátt til allra landsmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.