Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Í dag er alþjóðlegi
nýrnadagurinn en
markmiðið með honum
er að vekja athygli á
mikilvægi nýrnanna,
helstu áhættuþáttum
nýrnasjúkdóma, for-
vörnum og þeim áhrif-
um sem nýrnabilun
hefur á líf sjúklinga og
aðstandendur þeirra.
Nýrun gegna stærra
hlutverki en margir gera sér grein
fyrir. Flestir vita að þau hreinsa úr-
gang úr blóðinu og mynda þvag en
auk þess aðstoða þau við að stýra
blóðþrýstingi, mynda D-vítamín og
rauð blóðkorn, taka þátt í að stýra
sýrustigi líkamans, viðhalda vökva-
jafnvægi ásamt því að stýra magni
ýmissa mikilvægra steinefna í blóð-
inu.
Ef nýrun bila fer ýmis önnur starf-
semi líkamans úr skorðum sem hefur
alvarlegar afleiðingar á heilsufar
sjúklingsins. Ein algengasta ástæða
nýrnabilunar á lokastigi á Íslandi er
of hár blóðþrýstingur en það er
ástand sem er tiltölulega auðvelt að
greina og grípa inn í áður en há-
þrýstingur fer að hafa áhrif á starf-
semi nýrnanna.
Að greinast með nýrnabilun
Greining á alvarlegum sjúkdómi
er að sjálfsögðu áfall en í kjölfar
greiningar tekur heil-
brigðiskerfið utan um
sjúklinginn og fylgir
honum eftir. Heilbrigð-
isstarfsfólk fylgist náið
með þróun sjúkdóms-
ins og tryggir reglu-
bundnar mælingar,
lyfjagjafir og stöðuga
aðlögun meðferðar að
ástandi hins veika.
Sjúklingurinn er í góð-
um höndum og getur
treyst því að faglega sé
staðið að meðferð hans.
Hlutverk Nýrnafélagsins
Nýrnafélagið er góðgerðarfélag
sem starfar utan heilbrigðiskerfisins
og kemur sem viðbót við þá þjónustu
sem þar má finna. Markmið félags-
ins er að styðja og styrkja nýrna-
sjúka og aðstandendur þeirra, gæta
að hagsmunum þeirra og stuðla að
fræðslu og öðrum félagsstörfum.
Stjórnar- og félagsmenn hafa per-
sónulega reynslu af sjúkdómnum og
sjá því aðstæður nýrnasjúkra frá
öðru sjónarhorni, sem getur reynst
dýrmæt viðbót við þá faglegu
umönnun sem býðst í heilbrigð-
iskerfinu. Félagið vinnur að ýmsum
málum til hagsbóta fyrir sjúklinga
og fjölskyldur þeirra og hér má sjá
hluta af þeirri þjónustu sem fé-
lagsmönnum stendur til boða.
Upplýsingar og ráðgjöf
Nýrnafélagið gefur út mán-
aðarlegt fréttabréf, heldur úti
heimasíðu (nyra.is), facebooksíðu og
spjallhópi á Facebook (Nýrnaspjall)
og kemur þannig fræðslu á framfæri
til félagsmanna, s.s. fræðslu um
heilsu og næringu fyrir einstaklinga
sem eru með nýrnabilun, í skilun eða
með ígrætt nýra. Félagið heldur
einnig úti fræðslu- og skemmti-
fundum og hefur nýlega hafið að
streyma slíkum fundum fyrir fólk
sem ekki á heimangengt eða býr á
landsbyggðinni.
Fjölskylduráðgjöf
og jafningjastuðningur
Félagið starfar með Gunnhildi
Heiðu Axelsdóttur fjölskylduráð-
gjafa sem veitir stuðning við að
leysa úr málum sem snúa að vellíðan
og daglegri virkni. Hægt er að panta
tíma fyrir sjúklinginn, fjölskylduna
eða pör, allt eftir því hvað hentar
hverjum og einum. Viðtölin eru
gjaldfrjáls fyrir félaga í Nýrnafélag-
inu.
Félagið býður einnig upp á jafn-
ingjastuðning þar sem þjálfaðir að-
ilar sem sjálfir eru nýragjafar, nýra-
þegar eða aðstandendur veita
stuðninginn. Samtal við einstakling
sem hefur verið í sömu aðstæðum
getur gert mikið til að lágmarka
kvíða og draga úr áhyggjum.
Ráðgjöf um
hreyfingu og mataræði
Félagið er í samstarfi við Björn
Þór Sigurbjörnsson einkaþjálfara
sem hefur reynslu af starfi með
nýrnabiluðum og tekur að sér að
leiðbeina um mataræði og hreyf-
ingu. Félagið greiðir þriggja vikna
kort hjá World Class fyrir þá sem
þiggja ráðgjöfina og fá meðlimir fé-
lagsins niðurgreidda ráðgjafartím-
ana hjá Birni. Fullt tillit er tekið til
þreytu og orkuleysis í ráðgjöfinni og
áhersla lögð á að mæta hverjum og
einum á þeim stað sem viðkomandi
er. Sú hreyfing sem mælt er með
getur verið allt frá örstuttum göngu-
túrum eða teygjum í heimahúsi upp
í æfingar í sal eða aðra skipulagða
hreyfingu.
Vikulegir göngutúrar
í Grasagarðinum
Reglubundin hreyfing er afar
mikilvæg nýrnabiluðum en vegna
þreytu og orkuleysis reynist mörg-
um erfitt að koma sér í gang eða við-
halda reglubundinni hreyfingu.
Nýrnafélagið stendur fyrir 30 mín-
útna löngum vikulegum göngu-
túrum í Grasagarðinum fyrir fé-
lagsmenn þar sem hægt er að
spjalla við aðra einstaklinga sem eru
í sömu sporum, deila ráðum og
reynslu ásamt því að fá hreyfingu
við hæfi hvers og eins. Þessar göng-
ur hafa legið niðri í kjölfar
samkomubanns vegna Covid en und-
irbúningur er hafinn að því að hefja
þær að nýju.
Styrktarsjóður
Nýrnafélagið heldur úti styrkt-
arsjóði sem ætlað er að aðstoða
nýrnasjúka vegna sértækra vanda-
mála sem ekki fást styrkir fyrir ann-
ars staðar. Úthlutað er úr sjóðnum
árlega og hvetjum við félagsmenn til
að senda inn umsókn eða fá nánari
upplýsingar á skrifstofu okkar.
Kynntu þér starfsemina
Að greinast með alvarlegan sjúk-
dóm er mikið áfall og til viðbótar við
þá meðferð sem sjúklingar fá frá
heilbrigðiskerfinu getur skipt sköp-
um að hitta aðra einstaklinga sem
eru eða hafa verið í sömu stöðu. Hjá
Nýrnafélaginu getur þú fengið
stuðning við að takast á við þær
áskoranir sem fram undan eru. Við í
stjórn Nýrnafélagsins hvetjum
nýrnasjúka og aðstandendur þeirra
til að ganga í félagið og njóta góðs af
því starfi sem þar á sér stað.
Eftir Helgu
Hallgrímsdóttur »Markmið Nýrna-
félagsins er að
styðja nýrnasjúka og
aðstandendur þeirra,
gæta að hagsmunum
þeirra og stuðla að
fræðslu og öðrum fé-
lagsstörfum.
Helga Hallgrímsdóttir
Höfundur er stjórnarformaður
Nýrnafélagsins.
nyra@nyra.is
Stuðningur til nýrnabilaðra og aðstandenda þeirra
Verð: 24.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-203173
Verð: 24.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-203173
Verð: 24.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-203113
Verð: 24.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-203113
ECCO Chunky Sneaker
- NÝ SENDING -
Í grein sem und-
irritaður ritaði í Mbl.
8. apríl 2013 kemur
m.a. þetta fram: „Í
dag er grunnnet fjar-
skipta landsins byggt
á ljósleiðara sem inni-
heldur aðeins átta
þræði en það tak-
markar mjög sam-
keppni, vöruframboð
og síðast en ekki síst
öryggi fjarskipta.“
Í sömu grein legg ég einnig til
að lagðir verði 288 ljósleiðara-
þræðir um landið. Þessi tillaga á
enn við og raunar er slík fram-
kvæmd meira áríðandi í dag en
árið 2013. Hér skal því áréttað
mikilvægi þess að lagður verði
ljósleiðari með 288 ljósleiðara-
þráðum sem nýr stofnstrengur
fyrir grunnnet fjarskipta á Ís-
landi. Framkvæmdin ætti að vera
þannig að plægt yrði ídráttarrör
og ljósleiðara síðan blásið í rörið.
Það ætti ekki að
þekkjast að ljósleið-
arar séu plægðir
beint í jörð. Það er
sóun á fé vegna þess
hversu hátt hlutfall
kostnaðar við lagn-
ingu ljósleiðara er
bundið í jarðvinnunni.
Byggja þarf tengihús
á leið ljósleiðarans á
réttum stöðum. Ljós-
leiðarinn og tengi-
húsin eiga að vera í
eigu ríkisins. Ríkið
ætti ekki að reka neinn virkan
búnað, aðeins leigja aðganga að
svokölluðum „dark fibers“. Ástæð-
an fyrir mikilvægi eignarhalds rík-
isins er að tryggja samkeppni á
heildsölumarkaði fjarskipta í
dreifbýli. Aðgangur fyrir ljósleið-
arapar á að vera fastur og óháður
vegalengd (sbr. þegar landið var
gert að einu gjaldsvæði varðandi
símtöl). Ef miðað er við 2000 km
má gera ráð fyrir 2-2,5 milljarða
kostnaði. Það er lág fjárhæð í
samanburði við þá styrkingu
byggðar í dreifbýli sem slík fram-
kvæmd hefði í för með sér. Með
því að gera fjarskiptafyrirtækjum
og öðrum fyrirtækjum kleift að
leigja þræði á föstu verði óháð
vegalengd er samkeppni tryggð til
framtíðar.
Til að reka fyrirtæki í dag, stórt
eða smátt, er aðgangur að ljósleið-
ara forsenda reksturs. Eina heild-
stæða ljósleiðarakerfið á landsvísu
er umræddur NATO-ljósleiðari.
Fimm af átta þráðum eru í eigu
Mílu. Míla hefur nánast einokun á
fjarskiptamarkaði þegar kemur að
heildsölu fjarskiptatenginga utan
suðvesturhornsins. Undirritaður
hefur fengið að reyna hversu
hamlandi það getur verið eftir að
hafa komið að hönnun og bygg-
ingu tveggja ljósleiðarakerfa í
dreifbýli, í Öræfum 2007-2010 og í
Mýrdal 2013-2014.
Vel hefur verið staðið að lagn-
ingu ljósleiðara í dreifbýli landsins
sl. ár. En betur má ef duga skal.
Enn á eftir að ljósleiðaravæða
þéttbýlisstaði utan suðvest-
urhornsins og enn á eftir að
leggja nýjan stofnstreng fjar-
skipta um landið sbr. hér að ofan.
Hinn 28.10. 2007 skrifaði und-
irritaður grein í Mbl. þar sem m.a.
þetta kom fram: „Ég vil benda á
að lagning ljósleiðara utan þétt-
býlissvæðisins á suðvesturhorninu
er ein öflugasta styrking við
byggðir landsins sem hugsast get-
ur.“ Þessi orð eiga enn vel við í
dag. Það tók átta ár frá því að
þetta var skrifað þar til fjar-
skiptasjóður fór að útdeila fé til að
styrkja sveitarfélög til að leggja
ljósleiðara til heimila og fyr-
irtækja í dreifbýli. Vonandi tekur
ekki svo langan tíma fyrir stjórn-
völd að setja fé í nýjan stofn-
streng fjarskipta sem myndi leysa
af hólmi NATO-leiðarann.
Um endurnýjun
svokallaðs NATO-ljósleiðara
Eftir Ingólf
Bruun
Ingólfur Bruun
»Hér skal því áréttað
mikilvægi þess að
lagður verði ljósleiðari
með 288 ljósleiðaraþráð-
um sem nýr stofn-
strengur fyrir grunnnet
fjarskipta á Íslandi.
Höfundur er framkvæmdastjóri Betri
fjarskipta ehf.
ib@betrifjarskipti.is
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendi-
kerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar
leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í
skráningarferlinu. Eftir að viðkom-
andi hefur skráð sig sem notanda í
kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna
svæðið. Hægt er að senda greinar
allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.