Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti á blaða- mannafundi nýverið þá ákvörðun rík- isstjórnarinnar að kaupa nýtt varð- skip í stað Týs, sem þarfnast svo dýrra viðgerða að ekki er talið for- svaranlegt að ráðast í þær þegar mið er tekið af aldri skipsins. Áslaug Arna hefur sýnt í verki að hún leggur áherslu á jafnrétti og því kom ekki á óvart að hún gerði tillögu um að nýja skipið fengi nafnið Freyja. Í sögu Landhelgisgæsl- unnar hefur að- eins eitt skip bor- ið kvennafn, María Júlía. Öll önnur varðskip hafa borið karlanöfn úr norrænni goða- fræði. Eins og fram hefur komið í frétt- um hér í Morgunblaðinu kom nýlega í ljós alvarleg bilun í vél Týs. Fram kom í tilkynningu dómsmálaráðu- neytisins að Landhelgisgæslan eigi ekki nauðsynlega varahluti, smíði þeirra sé tímafrek og ekki yrði um varanlega viðgerð að ræða. Einnig kom í ljós við slipptöku Týs í janúar að tveir af tönkum skipsins eru ónýt- ir sökum tæringar og sjókælikerfi skipsins lekur. Slíkur leki ógni ör- yggi skips og áhafnar. „Varðskipið Týr er 46 ára gamalt og ástand þess orðið bágborið. Ómögulegt er að sjá fyrir næstu al- varlegu bilanir. Kostnaður við að gera skipið siglingarhæft er talinn nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um 100 milljónum króna,“ segir á vef ráðuneytisins. „Það er ekki forsvaranleg meðferð á opinberu fé að eyða mörg hundruð milljónum í viðgerð á svona gömlu skipi,“ segir Áslaug Arna. Staða á mörkuðum fyrir kaup á nýlegum skipum, t.d. þjónustuskipum úr olíu- iðnaðinum, er talin einkar góð um þessar mundir. Um er að ræða skip sem henta vel til að sinna verkefnum Landhelgisgæslunnar með mikla dráttargetu, góða stjórnhæfni, gott dekkpláss og fullkominn slökkvibún- að. Skip þessi eru vel útbúin til björgunarstarfa og til aðstoðar við almannavarnir. Þá eru þau mun um- hverfisvænni en eldri skip. Talið er að hægt verði að fá gott skip fyrir 1- 1,5 milljarða króna. Ekki er talið forsvaranlegt að Landhegisgæslan búi aðeins yfir einu nothæfu varðskipi, Þór. Í ljósi þess um hve brýnt mál er að ræða sem varðar þjóðaröryggi, almanna- varnir, öryggi sjófarenda og auð- lindagæslu samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum 5. mars sl. tillögu dóms- málaráðherra þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skipi. Starfshópur þriggja sérfræð- inga, sem skipaður verður fulltrúum dómsmálaráðuneytis, Landhelgis- gæslunnar og Ríkiskaupa, mun vinna að undirbúningi og framkvæmd kaupanna. Starfshópurinn mun hefja störf fljótlega enda er stefnt að því að nýtt varðskip verði komið í þjónustu Landhelgisgæslunnar í vetrarbyrjun 2021. Sem fyrr segir hafa nöfn karla ver- ið nánast allsráðandi á varðskipum Íslendinga. Undantekningin er María Júlía, sem var í þjónustu Landhelgisgæslunnar frá 1950 til 1969. Þetta var eikarskip smíðað í Frederikssund í Danmörku og er 137 tonn að stærð. María Júlía var fyrsta björgunar- skip Vestfirðinga og fékk sömuleiðis hlutverk sem eitt af varðskipunum í landhelgisstríðinu við Breta, sem hófst árið 1958. Stærðarmunurinn var gríðarlegur þegar siglt var í ná- munda við breskar freigátur, eins og meðfylgjandi mynd Ólafs K. Magn- ússonar, ljósmyndara Morgunblaðs- ins, sýnir glöggt. María Júlía var keypt með söfn- unarfé Vestfirðinga og stærsta gjöfin kom frá hjónunum Maríu Júlíu Gísla- dóttur og Guðmundi Br. Guðmunds- syni, kaupmanni á Ísafirði. Þegar kom að því að gefa skipinu nafn þótti vel til fundið að nefna það eftir Maríu Júlíu. Fyrst eftir að skipið var selt 1969 var það gert út til fiskveiða. Undanfarin ár hefur það legið í Ísa- fjarðarhöfn og þarfnast það mikilla viðgerða. Um síðustu helgi var stofn- fundur Hollvinasamtaka um Maríu Júlíu haldinn á Ísafirði. Markmiðið er að María Júlía öðlist endurnýjun lífdaga og verði táknmynd hugsjóna sem einkenndu upphafi lýðveldisins. Saga skipsins er merkileg, t.d. er talið að áhafnir þess hafi bjargað um tvö þúsund manns. Leit hefst að varðskipinu Freyju  Starfshópi falið að finna heppilegt þjónustuskip  María Júlía það eina sem borið hefur kvennafn Morgunblaðið/sisi Varðskipið Týr Miklar skemmdir komu í ljós þegar skipið var tekið upp í Slippinn í Reykjavík. Óljóst er hvort það fari til gæslustarfa á nýjan leik. Mynd/Atlantic Shipping Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Mikill stærðarmunur Varðskipið María Júlía og bresk freigáta á Íslands- miðum í september 1959. Þá stóð yfir fyrsta þorskastríðið við Breta. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Þjónustuskip Eitt skipanna sem boðin eru til sölu hjá skipasölum erlendis. Myndin sýnir dæmigert útlit slíkra skipa. Allt frá því fyrsta varðskip Íslend- inga, Þór, var tekið í notkun árið 1920 hafa varðskipin verið kennd við karla. Eina undantekningin er María Júlía. Hins vegar hafa flug- vélar og þyrlur Landhelgisgæsl- unnar aðallega verið kenndar við konur. Gæslan á skráð einkaleyfi á skipanöfnunum Þór, Týr, Ægir, Baldur og Óðinn hjá Samgöngu- stofu. Hún á hins vegar ekki skráð einkaleyfi á nafninu Freyja. En með heimild einkaleyfishafa á nöfnum er hægt að gefa öðrum skipum sama nafn, samkvæmt upplýsingum Ás- geirs Erlendssonar, upplýsingafull- trúa Gæslunnar. Í skipaskrá er ekki að finna skip með nafninu Freyja. Skráð loftför Gæslunnar eru: TF- EIR, TF-GRO, TF-LIF og TF-SIF. TF-GNA er svo væntanleg um mán- aðamótin. Dæmi eru um að loftförin hafi verið nefnd karlnöfnum, t.d. TF-HUG og TF-MUN (Huginn og Muninn), segir Ásgeir. Þetta voru Bell-þyrlur sem notaðar voru á ár- unum 1973 og 1974. Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskipin þrjú Þór er eina varðskipið sem er sjóhæft nú um stundir. Varðskipin kennd við karla en loftför konur  Gæslan á einkaleyfi á fimm nöfnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.