Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 58

Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 ✝ Hulda Ágústs-dóttir fæddist á Akranesi 30. júlí 1948. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 1. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru þau Ágúst Sigurður Guð- jónsson húsasmíða- meistari, f. 28. ágúst 1912, d. 3. september 1995, og Elísabet Þorbjörns- dóttir húsmóðir, f. 4. júní 1920, d. 1. september 1995. Systur Huldu eru þær Inga Sólveig, fædd 1941, Ólöf, fædd 1942, Þorbjörg Edda, fædd 1944, og Elsa Sigrún, fædd 1947. Hulda ólst upp hjá foreldrum sínum á Sunnubraut 10 á Akra- nesi. Hulda giftist Jóhanni Erni Matthíassyni, f. 2. september 1945, d. 20. ágúst 2012. For- eldrar hans voru Matthías Jó- hannsson kaupmaður, f. 24. júlí 1923, d. 8. sept- ember 1995, og Jóna Vilborg Pét- ursdóttir húsmóðir, f. 21. nóvember 1927, d. 25. sept- ember 2005. Börn Huldu og Jóhanns eru: 1) Sigurbjörg, f. 1969, maki hennar Ómar Traustason, eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 2) Kristjana Jóna, fædd 1971, maki hennar Höskuldur Kr. Guðmundsson, d. 2019. Eiga þau tvö börn, fyr- ir átti Kristjana einn dreng sem Höskuldur gekk í föðurstað. 3) Sigurður. 4) Árni. Hulda gekk í grunn- og gagnfræðaskóla á Akranesi. Eftir að skólagöngu lauk vann hún ýmis störf, m.a. á Skála- túnsheimilinu sem dagmamma og við fiskvinnslu og sitthvað fleira. Útför Huldu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 11. mars 2021, klukkan 13. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku mamma og amma, takk fyrir allt. Saknaðarkveðjur, Kristjana, Jóhann, Hafliði og Hulda. Hulda Ágústsdóttir Elsku amma. Þegar ég hugsa til þín er umhyggju- semi, gleði, traust og nægjusemi það fyrsta sem kemur upp í hugann. Gott var að koma til ykkar afa sem barn og vera umvafin öllum þessum kostum þínum. Þegar maður gisti hjá ykkur lögðust þið bæði með mér og sunguð þar til maður sofnaði, umvafin ást og umhyggju. Að búa hjá ykkur mennta- skólaárin veitti mér öryggi og góðan stuðning. Þú átt líka tölu- vert í mínu stúdentsprófi, vaktir með mér í prófalestri, laumaðir að mér súkkulaði og kvöldkaffi með heimabökuðu. Mjög margt hef ég tekið með mér og haldið áfram að gera fyrir mín börn. Endalaus hjálp þín og ykkar afa þegar við Helgi eignuðumst börnin okkar þrjú en við áttum því láni að fagna að búa rétt hjá ykkur í Bólstaðarhlíðinni. Alltaf voruð þið dugleg að hvetja okkur áfram og hrósa þeg- ar orkan var minni. Það gerði það að verkum að allt varð auðveld- ara og léttara. Eftir að við fluttum til Hol- lands áttum við löng samtöl sem hjálpuðu mikið þegar heimþráin og söknuðurinn voru mér erfið. Mikið gátum við alltaf hlegið. Á einhvern undraverðan hátt tókst þér að gera fjarlægðina að engu og hefur gert það öll þessi ár, maður upplifir sig minna langt í burtu. Þú náðir að heimsækja mig tvisvar á tvö heimili mín í Hollandi og upplifa það líf sem við ræddum oft símleiðis. Dásamlegt ferðalag okkar fyr- ir nokkrum árum, þú þá orðin 95 ára, norður á Akureyri í bústað að heimsækja foreldra mína um haust, var mikið ævintýri. Afi hafði kvatt okkur þá um vorið en við hlustuðum á hann syngja fyr- ir okkur alla leið norður og við rifjuðum margar skemmtilegar minningar frá ykkar ferðalögum innanlands og erlendis. Við skemmtum okkur konunglega og stundum með nokkrum tárum en mikið var þetta notalegt. Íslensk náttúra út um gluggann, kaffi á brúsa og nesti með. Eftir góðar stundir á Akureyri héldum við heim á leið og sungum alla leiðina suður íslensk dægurlög sem þið afi höfðuð raulað þegar þið ferð- uðust um landið. Mikið er ég þakklát fyrir okk- ar einstaka vinskap þar sem allt hefur verið rætt sem okkur lá á hjarta hverju sinni. Stundum Kristín Bjarnadóttir ✝ Kristín Bjarna-dóttir fæddist 14. apríl 1922. Hún lést 28. febrúar 2021. Útförin fór fram 10. mars 2021. spjölluðum við með kaffibolla á notalega heimilinu ykkar afa, stundum í bústaðn- um, stundum í sím- ann milli landa en alltaf vorum við að gera handavinnu á meðan. Þú varst alltaf dugleg að fylgjast með öllu sem var að gerast í kringum þig og fylgjast með heimsmálunum. Því urðum við aldrei uppiskroppa með umræðuefni sem voru handavinna, fjölskyldan, bók- menntir og ýmis heimsins mál, sorg og gleði en hláturinn var aldrei langt undan. Eftir sam- verustund með þér var maður alltaf ríkari, sterkari og glaðari. Þakka þér elsku amma mín fyrir allt og ég mun leggja mig fram um að gefa samferðafólki mínu áfram allt það sem ég hef lært og tileinkað mér frá þér og ykkur afa. Ég samgleðst þér af öllu hjarta að vera komin til elsku afa en mikið á ég eftir að sakna þín en líf mitt er ríkara að hafa fengið að eiga þig. Þín Fjóla. Elskulega amma er nú gengin á braut eftir langa og gæfuríka ævi. Minningarnar streyma fram í hugann og raða sér upp eins og perlur á festi, hver einasta svo falleg og dýrmæt. Ég hef alla tíð notið þess að eiga ömmu að, en eftir því sem tíminn líður átta ég mig sífellt betur á því hvað það eru mikil forréttindi að eiga góða ömmu sem leiðir mann ljúflega í gegnum barnæskuna, styður og styrkir mann inn í fullorðinsárin og býr þannig til samband sem byggt er á kærleika og vináttu. Amma var mér þannig kær og góð vinkona sem alltaf var til staðar, sýndi mér og mínum ein- lægan áhuga, hrósaði og hvatti og veitti mér góð og nytsöm ráð þeg- ar á þurfti að halda. Amma hafði gaman af lestri góðra bóka og hafði oft frá mörgu að segja sem var líka svo fróðlegt því fyrir mér var hún stundum eins og spegill inn í fyrri tíma. Amma var fróð- leiksfús og opin sem gerði það að verkum að kynslóðabilið hvarf og það var auðvelt að ræða við hana um margbreytileika lífsins. Amma og afi voru söngelskt fólk, afi skemmti landinu öllu og jafn- vel víðar með sinni fallegu söng- rödd en heima við raulaði amma síst minna. Maður vissi að ömmu leið vel þegar hún sönglaði – og hún sönglaði mjög oft. Það er fallegt veganestið sem amma skilur okkur eftir með, og með djúpu þakklæti og ást kveð ég mína elskulegu ömmu að sinni. Kristín. Unnur Ágústsdóttir Vináttan hennar Unnar, vin- konu minnar, á sér langa sögu. Ég kveð hana með þakklæti er hún heldur til sumarlandsins eft- ir langa og farsæla ævi. Margs er að minnast allt frá þeim tíma er konur á Seltjarn- arnesi boðuðu til fundar og Kvenfélagið Seltjörn var stofnað 3. apríl 1968, þar var Unnur fremst í flokki. Ég naut þess að mæta og vera með og okkar vinátta myndaðist og hélst fram á síðasta dag. Það var hugur í konum, fljótlega var stofnaður sönghópur er var fyrsti vísir Selkórsins er enn starfar. Stoltar konur sungu við vígslu félagsheimilisins, dans- kennari var fenginn svo engum yrði fótaskortur á nýja dansgólf- inu. Þarna héldum við stórar há- tíðir til margra ára. Leikfimi- kennari leiðbeindi í vatnsleikfimi eftir að við fengum sundlaugina og er hún kennd enn þann dag í dag. Ekki má gleyma að við hjón ásamt Unni og Páli stjórnuðum marsi og dönsum er allir tóku þátt í á 1. des.-hátíðum skólans. Farið var í ferðir út um heim og deildum við Unnur oft saman herbergi. Ekki gleymist sigling á skemmtiferðaskipi frá Finnlandi til Pétursborgar, nú var svíta í boði, þetta eru allt ljúfar og góð- ar minningar. Það væri hægt að telja svo ótal margt er átti rætur að rekja til 3. apríl 1968. Þannig vildi til að ég varð for- maður kvenfélagsins, Unnur hvatti mig, var ekki slæmur bak- hjarl, saman sátum við í sóknar- nefnd kirkjunnar og mörgum öðrum ráðum og nefndum og nú síðustu ár vorum við saman í hús- stjórn hér á Skólabrautinni. Eitt aðalsmerki okkar var „lifa, gleðjast og njóta“. 22. febrúar sl. sátum við kaffiboð hér í húsinu, sungum afmælissöng, ræddum hversu gott væri að geta verið saman, gleðjast og njóta. Ég þakka Unni allar góðar og glaðar stundir, alla hvatningu og styrk ef gaf á bátinn. Margar konur er stóðu í stafni í aprílmánuði 1968 eru fluttar í sumarlandið, þeim ber að þakka framsýni og allt það sem þær lögðu til, til að gera bæinn okkar betri, það er trúa mín að minn- ingin lifi um ókomin ár. Alla vega komumst við í annála 3. apríl 1968 er fyrsta félagið var stofnað frá 1935 er Framfarafélagið lagði upp laupana. Merkisviðburður á Seltjarnarnesi. Þessar dugmiklu konur mega ekki gleymast, fót- spor okkar finnast víða í bænum. Kvenfélagið Seltjörn þakkar Unni fyrir störfin í gegnum árin og starfsfólk og íbúar Skólabraut- ar minnast hennar með þakklæti. Hún verður kært kvödd með þökk fyrir allt og allt. Sendi dætrum hennar og henn- ar stóru fjölskyldu bestu samúð- arkveðjur. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Ófeigsdóttir) Erna Kristinsdóttir Kolbeins, fyrrverandi formaður Seltjarnar. Það er er erfitt að velja. Minn- ingarnar fylla hugann, keppast um athyglina. Það einfaldasta er alltaf best. Unnur hans Palla var bæði góð og hjálpsöm. Þar voru þau lík, Palli frændi og Unnur. Þessa mannkosti hafa þau gefið sínum dætrum og þeirra fjölskyldum af gnótt, nokkuð sem allir sjá og margir njóta. Sem strákur í bæjarferð var Unnarbrautin á Seltjarnarnesi sjálfsagður áningarstaður. Full- orðna fólkið ræddi um daginn og veginn og að sjálfsögðu um stjórnmál. Þeir bræður voru ekki alltaf á sama máli um þennan málaflokk og ég held að Unni minni hafi oft leiðst karpið. Við krakkarnir skiptum okkur lítið af þessu, en lékum okkur saman án ofmáta eftirlits. Okkur var treyst. Þannig voru Unnur og Palli. Svona liðu árin og ég tók mín fyrstu skref á menntabrautinni. Þau skrefin voru óviss og margar steinvölurnar í skónum. Ég byrj- aði í skóla í stórbænum, allt var nýtt, en samt ekki. Palli og Unn- ur buðu mér að halda hús á Unn- arbrautinni fyrsta veturinn á mölinni. Þessi vetur markaði tímamót fyrir mig sem hálfvaxinn mann. Ég þroskaðist og óx sem mann- eskja og þar voru Unnur, Palli og stelpurnar mikilvæg. Það sköp- uðust tengsl milli okkar sem ekki rofna. Þennan vetur vorum við tvö, ég og Unnur yngri, unglingarnir á heimilinu. Sem unglingar flestir vissum við allt best. Þar voru þau Unnur og Palli eitt, leiðbeindu og gáfu góð ráð. Ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir. Í veikindum mömmu og seinna pabba var Unnur alltaf nálæg, hjálpsemin var endalaus. Þegar ég útskrifaðist sem stúdent buðu hún og Palli fram Unnarbrautina sem veislustað og að standa fyrir bakstri, sem Unnur var meistari í. Þetta var Unnur í hnotskurn. Eftir háskólanám var það sjálfsagt að hafa náið samband við Unnarbrautina. Að koma í heimsókn var gott og maður fór heim sem betri maður. Þegar mamma dó 1990 var það gott að eiga Unni og Palla að. Ég fór til Noregs í fiskifræði og Unnur og Palli voru sem fyrr upptekin af mínum högum. Það yljaði í ókunnri stórborg. Í Nor- egi stofnaði ég mitt heimili. Ég fann lífsförunautinn minn í Noregi og hún tengdist fjöl- skyldu Unnar og Palla sterkum böndum. Þau heimsóttu okkur til Nor- egs, gengu á skíðum og það var gaman að sjá að skíðaíþróttin var jafn mikilvæg sem fyrr. Við Kirsti eignuðumst son sem fékk nafnið Steinar eftir frænda sínum, Páli Steinari. Unnur og Palli voru ánægð með nafnið, sem og við. Þau komu í skírnina í Sarpsborg, frændrækin sem fyrr. Við litla fjölskyldan höfum haldið sambandinu við frænd- fólkið á Nesinu. Þau eru mikilvægur hluti af okkar lífi. Gistingu fengum við hvenær sem var og barnsgrátur var ekki vandræði. Unnur safn- aði saman stelpunum í matarboð til að hitta okkur. Annað hefði verið skömm. Nú þegar bæði Unnur og Palli eru farin yfir móðuna miklu lifa þau sem kær minning í sorginni. Lífsgildi þeirra, frændsemi og náungakærleikur mun lifa áfram í systrunum og þeirra fjölskyld- um. Það er huggun harmi gegn. Megi friður fylgja ykkur kæra fjölskylda í sorginni. Lárus Þór Kristjánsson, Kirsti Arnesen og Steinar Lárusson-Arnesen, Björgvin, Noregi. Morgunblaðið birtir minningargreinar end- urgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargrein- um til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu grein- ar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar- ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dreg- ist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg- unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviá- grip þegar verið sent er ráðlegt að senda mynd- ina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR ÞORBJARGAR JAFETSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir, Grafarvogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Eir fyrir góða umönnun. Óskar Ólafsson Björg Þorsteinsdóttir Jafet Óskarsson María Sigurjónsdóttir Þórólfur Óskarsson Kristjana Skúladóttir Hrafnhildur Óskarsdóttir Jens Jensson ömmubörn og langömmubörn Innilegar þakkir til ykkar sem sýnduð okkur samúð og vinsemd við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR FINNS HAFBERG. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Höfða Akransesi fyrir hlýhug og einstaklega góða umönnun. Eva Þórðardóttir Margrét Magnúsdóttir Marinó Þór Tryggvason Þórður Magnússon Olga Magnúsdóttir Helgi Ómar Þorsteinsson Þórdís Guðný Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför föður okkar, ELÍASAR GUNNLAUGSSONAR frá Gjábakka í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Hjördís Elíasdóttir Hannes G. Thorarensen Björk Elíasdóttir Stefán Örn Jónsson Viðar Elíasson Guðmunda Áslaug Bjarnad. barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.