Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Pétur H. Ármannsson hlaut í gær
viðurkenningu Hagþenkis - Félags
höfunda fræðirita og kennslugagna
fyrir bók sína Guðjón Samúelsson
húsameistari sem Hið íslenska bók-
menntafélag gaf út. Í umsögn viður-
kenningaráðs Hagþenkis segir að
um sé að ræða vandað og ítarlegt
yfirlitsrit um ævi og verk Guðjóns
og sé það „verðugur minnisvarði um
manninn sem mótaði byggingarlist
og skipulagsmál hins nýsjálfstæða
Íslands.“
Hagþenkir hefur frá árinu 1986
veitt viðurkenningu fyrir fræðirit og
námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs
efnis til almennings. Frá árinu 2006
hafa verið tilnefndir tíu höfundar og
rit sem þykja framúrskarandi og til
greina koma. Viðurkenningarráð
skipað fimm félagsmönnum ákvarð-
ar þessar tíu tilnefningar, hvaða rit
og höfundur hlýtur viðurkenn-
inguna. Verðlaunaupphæðin er
1.250.000 kr.
Einnig voru tilnefnd að þessu
sinni til verðlaunanna Ásdís Lovísa
Grétarsdóttir og Erna Jessen fyrir
námsefni í dönsku á grunnskólastigi;
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir fyrir
Fræðaskjóða - Bókmenntafræði fyr-
ir forvitna; Gísli Pálsson fyrir Fugl-
inn sem gat ekki flogið; Gunnar Þór
Bjarnason fyrir Spænska veikin;
Hjörleifur Hjartarson og Rán Fly-
genring fyrir Hestar; Jón Hjaltason
fyrir Fæddur til að fækka tárum.
KÁINN - Ævi og ljóð; Kjartan
Ólafsson fyrir Um Kommúnista-
flokkinn og Sósíalistaflokkinn.
Draumar og veruleiki - Stjórnmál í
endursýn; Kristján Leósson og Leó
Kristjánsson fyrir Íslenski kristall-
inn sem breytti heiminum; og Sig-
urður Ægisson fyrir Íslensku fugl-
arnir og þjóðtrúin.
Í ávarpi sagði fulltrúi viðurkenn-
ingarráðs Hagþenkis, Auðunn Arn-
órsson, að kominn hafi verið tími til
að hinum merku verkum Guðjóns
væri reistur verðugur minnisvarði,
og það hafi Pétur H. Ármannsson
svo sannarlega gert í þessu riti. „Það
fer ekki framhjá neinum sem flettir
þessari bók og les að hér er á ferð-
inni gríðarlega vandað verk, sann-
arlega byggt á „víðtækum og vönd-
uðum rannsóknum og djúpum
skilningi á viðfangsefninu“,“ sagði
Auðunn og vitnaði í umsögn ráðsins
um verk Péturs.
Mikilvæg söguleg þekking
Pétur H. Ármannsson nam arki-
tektúr og byggingarsögu í Kanada
og Bandaríkjunum. Auk þess að
starfa sem arkitekt hefur hann verið
deildarstjóri byggingarlistardeildar
Listasafns Reykjavíkur, kennt við
LHÍ og er nú sviðsstjóri hjá Minja-
stofnun Íslands. Hann er höfundur
blaða- og fræðigreina, fyrirlestra,
sýningartexta, bóka og dagskrár-
efnis um íslenska byggingarlist.
Hann var á dögunum kjörinn heið-
ursfélagi í Arkitektafélagi Íslands.
Í ávarpi sagði Pétur viðurkenn-
ingu Hagþenkis vera sér mikils
virði, ekki síst í ljósi þess að vinna
hans að rannsóknum og bókaskrif-
um hafi lengstum verið aukabúgrein
með öðrum og krefjandi störfum.
„Því er oft haldið fram að bækur um
söguleg efni segi eins mikið um höf-
und ritsins og viðfangsefnið sjálft.
Bókin um Guðjón húsameistara ber
þess vissulega merki að vera rituð
frá sjónarhóli starfandi arkitekts,
sagnfræðingar eða listfræðingar
hefðu án vafa nálgast verkefnið með
ólíkri sýn. Það hefur lengi verið
skoðun mín að íslenskir arkitektar
mættu gera betur í því að halda á
lofti merki byggingarlistar, rann-
saka og miðla merku framlagi eigin
fagstéttar til íslenskrar menningar
og samfélags á 20. öld,“ sagði Pétur
og hann bætti við: „Afstaða mín hef-
ur alla tíð verið sú að söguleg þekk-
ing og yfirsýn sé grundvöllur skap-
andi hugsunar í arkitektúr og öðrum
listgreinum. Að enduruppgötva sé
það sama og skapa, að nýsköpun eigi
sér aldrei stað í tómarúmi, án sam-
hengis við stað og tíma, að þekk-
ingarforði sögunnar sé mikilvægasta
byggingarefni arkitektsins.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verðlaunaður Pétur H. Ármannsson hlaut viðurkenninguna fyrir veglega bók sína um Guðjón Samúelsson.
Pétur hlaut viðurkenningu Hagþenkis
Hlaut viðurkenninguna fyrir bók sína um Guðjón Samúelsson húsameistara Verkið er „verð-
ugur minnisvarði um manninn sem mótaði byggingarlist og skipulagsmál hins nýsjálfstæða Íslands“