Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
20-25%
Sparadu-
af öllum ljósum
11. - 22. mars
20%
af perum
& kertum
Sparadu-
NýttVIVA
RÚM
120x200 cm.149.900 kr.NÚ 104.900 kr.
160x200 cm. 179.900 kr.NÚ 125.900 kr.
180x200 cm.199.900 kr.NÚ 139.900 kr.
HÖFUÐGAFL
132 cm. 44.900 kr.NÚ 31.400 kr.
172 cm. 49.900 kr.NÚ 34.900 kr.
192 cm. 54.900 kr.NÚ 38.400 kr.
30%
kynningarafsláttur
11. - 22. mars
LOGINA LOFTLJÓS reyklitað. Ø18 x H 19,5 cm. 12.995 kr.NÚ 9.746 kr.
SPAraðu 3.249
Nú 9.746
Emilía Rós Sigfúsdóttir
leikur tvö litrík frönsk
flautuverk með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands undir
stjórn Eivinds Aadland á
tónleikum í Eldborg Hörpu
í kvöld kl. 20. Þetta eru
verkin Rómansa eftir
Camille Saint-Saëns, sem
er eitt kunnasta verk tón-
skáldsins, og Concertino
eftir Cécile Chaminade,
sem færri hafa heyrt um
en hún naut mikilla vinsælda á sinni tíð. Chaminade
samdi yfir 400 verk á langri ævi og var fyrsta kven-
tónskáldið sem hlaut riddaraorðu franska lýðveldisins.
Concertino fyrir flautu var lykilverk á ferli hennar, sam-
ið fyrir einleikarakeppni Tónlistarháskólans í París árið
1902 og hefur verið fastur liður á efnisskrám flautu-
leikara allar götur síðan. Auk þessa leikur sveitin
Sinfóníu nr. 4 eftir Johannes Brahms. Tónleikunum er
útvarpað beint á Rás 1.
Leikur tvö litrík frönsk flautuverk
FIMMTUDAGUR 11. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Hvort maður sé tilbúinn að standa á eigin fótum þarf
bara að koma í ljós en ég tel mig vera tilbúna að taka
þetta skref í handboltanum,“ segir Ásdís Þóra
Ágústsdóttir, nítján ára gömul handboltastúlka úr Val
sem yfirgefur Hlíðarenda í sumar og reynir fyrir sér í
atvinnumennsku í sænsku úrvalsdeildinni. »63
Tilbúin til að taka þetta skref
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Leikskólakennarinn Berglind Mjöll
Jónsdóttir í Hafnarfirði tálgar ýms-
ar manneskjur í frístundum, fyrst
og fremst til gamans en einnig fyrir
vini og vandamenn og aðra sem vilja
njóta þeirra. „Nú er ég að byrja á
fermingarstyttum,“ segir Bella, eins
og hún er kölluð, en hún tálgar líka
brúðarstyttur, stúdentsstyttur og
fleira auk þess sem hún kennir
börnunum í skólanum meðal annars
listina.
Fyrir um 12 árum fóru Óskar,
eiginmaður Bellu, og Eyþór Orri, 11
ára sonur þeirra, á tálgnámskeið.
Hún segir að þeir hafi komið heim
mjög glaðir eftir skemmtilegt nám-
skeið og þar sem þetta hafi verið
skömmu fyrir páska hafi þau notað
frítímann og tálgað. „Þeir ætluðu að
finna sér sameiginlegt áhugamál og
urðu frekar fúlir þegar ég náði réttu
handtökunum á undan þeim, sneru
sér meira aftur að því sem þeim
þótti skemmtilegast, að dunda í bíl-
skúrnum, og hafa meðal annars gert
við bíla síðan, en ég hélt áfram að
tálga,“ segir Bella, sem hefur farið á
mörg tálgnámskeið undanfarin ár.
„Þeir taka svo sem í hníf af og til,
rétt eins og dóttirin Hjördís Anna,
og því má segja að þetta sé fjöl-
skylduáhugamál.“
Ætíð verið iðin í höndunum
Í æsku var Bella iðin í höndunum
og segir að saumaskapur hafi
snemma heillað. „Ég saumaði öll
dúkkufötin mín og öll föt sem ég var
í á unglingsárunum,“ rifjar hún upp.
Bætir við að hún hafi ekki saumað
eins mikið að undanförnu og oft áð-
ur en hún sé samt alltaf með eitt-
hvað á prjónunum og nú sé tálgunin
í svolitlum forgangi.
„Sköpunarþörfin hefur alltaf verið
rík hjá mér, ég er stöðugt að skapa
eitthvað, enda valdi ég að vera leik-
skólakennari þar sem ég kenni
börnunum að tálga auk þess sem
tónlist er líka mikilvægur þáttur í
kennslu minni.“ Hún segir að leik-
skólinn Norðurberg sé hálfgerður
skátaleikskóli. „Við erum með eld-
stæði úti og sjóðum okkur meðal
annars súpu. Við erum stundum all-
an daginn úti í skógi, þar sem við
gerum ýmislegt skemmtilegt, náum
okkur meðal annars í efnivið í tálg-
unina. Við erum óttaleg náttúru-
börn.“
Bella segir að hún hafi fljótlega
dottið niður á að tálga manneskjur.
„Fyrst tálgaði ég bara börkinn af
greininni, bjó kannski til hnífa eða
eitthvað annað létt og auðvelt,“ seg-
ir hún um byrjunina. „Ég er með 40
fjögurra til sex ára börn í skólanum
og tálgaði 40 hnífa, sem þau fá að
leika sér með. Það var ágætis æfing,
en vegna fermingar drengsins okkar
tálgaði ég fermingarstyttu og síðan
hef ég gert slíkar styttur fyrir dótt-
urina, vini og vandamenn og aðra
sem hafa dottið inn á facebook-
síðuna mína [Bella tálgari].“
Framleiðslan hefur verið misjafn-
lega mikil á hverju ári en náði há-
marki í fyrra. „Það voru engar veisl-
ur vegna kórónuveirufaraldursins
en fólk í kringum mig vildi samt fá
styttur vegna ferminga og annarra
tímamóta,“ segir Bella. Hún segist
finna fyrir meiri bjartsýni í ár, að
veiran sé á undanhaldi og vinir og
vandamenn hugsi sér til hreyfings.
„Ég hef fengið margar pantanir og
hef alveg nóg að tálga á næstunni.“
Bella tálgari í ham
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í vinnustofunni heima Berglind Mjöll Jónsdóttir nýtir frístundirnar vel.
Sköpunarþörfin alltaf verið rík hjá leikskólakennaranum
Kennir börnunum í Norðurbergi rétta handbragðið
Sýnishorn Bella tálgari tálgar það sem henni dettur í hug.