Morgunblaðið - 29.03.2021, Side 10

Morgunblaðið - 29.03.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Góð þjónusta í tæpa öld 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Tvær fyrstu verslanirnar í nýjum verslunarkjarna, Norðurtorgi við Austursíðu 2 á Akureyri, verða opnaðar 1. júní næstkomandi. Framkvæmdir við endurbætur og stækkun á húsinu hafa staðið yfir frá því í fyrrasumar og hafa á bilinu 30 til 50 manns verið að störfum þar undanfarna mánuði. Lóðin við Austursíðu er alls fjórir hektarar að stærð og er hún í eigu félagsins Klettáss sem stendur fyr- ir framkvæmdum við byggingu verslunarkjarnans. Pétur Bjarnason, annar af eig- endum Klettáss, segir Sjafnarhúsið við Austursíðu hafa verið illa nýtt undanfarin ár. Húsið er kennt við samnefnda efnaverksmiðju sem þar starfaði í eina tíð, en undanfarin ár hefur þar verið harla lítil starfsemi. „Þetta er frábær staðsetning og það var hún sem við horfðum fyrst og fremst til þegar við hófum fram- kvæmdir á lóðinni. Sem stendur er hún norðarlega í bænum, en mun innan fárra ára verða æ meira mið- svæðis og við erum einmitt að horfa fram í tímann með þessum umfangsmiklu framkvæmdum,“ segir Pétur. Áætlun gerir ráð fyrir að kostnaður við allar fram- kvæmdir á húsnæði og lóð nemi um 2,7 milljörðum króna. Áform um stóra matvöruverslun Þær verslanir sem verða opnaðar í byrjun sumars eru Rúmfatalager- inn og Ilva. Rúmfatalagerinn verð- ur í um 2.200 fermetra húsnæði á Norðurtorgi og Ilva, sem ekki hef- ur verið starfandi á Akureyri áður, í 1.200 fermetra plássi við hlið Rúmfatalagersins. Ari Pétursson, verkefnastjóri hjá Klettási, segir að viðræður standi yfir við forsvars- menn matvöruverslunar um leigu á 3.500 fermetra plássi sem til ráð- stöfunar er á aðalhæð verslunar- kjarnans. „Við erum í viðræðum við ákveðna aðila um það pláss og ýms- ar hugmyndir eru í gangi um fjöl- breytta starfsemi í því, bakarí eða eins konar veitingasölu, apótek eða hvaðeina sem gæti hentað að vera með þar. Við gerum ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir innan skamms um hvað þarna verður,“ segir Ari. Fjölmargir hafa að sögn feðg- anna Ara og Péturs sýnt því áhuga að koma með starfsemi inn í versl- unarkjarnann og er þessa dagana verið að skoða þær fyrirspurnir sem borist hafa. Húsnæðið allt er um 11 þúsund fermetrar, þar af er aðalverslunar- hæðin 7.000 fermetrar. Á efri hæð, sem er yfir litlum hluta hússins, er verkfræðistofan Verkís með skrif- stofu og verður áfram. Verkís ann- ast stjórn framkvæmda við Austur- síðu 2. Á neðri hæð, undir hluta verslunarhæðarinnar, verður lager fyrir þær verslanir sem starfa í húsinu og þaðan verða einnig af- greiddar stærri vörur, húsgögn og þvíumlíkt til viðskiptavina. Húsnæðið var skipt upp í fjöldann allan af hólfum, enda byggt sem efnaverksmiðja á sinni tíð. Allt hefur verið rifið niður og gert að opnu rými. Fjöldinn allur af veggjum hefur fokið, hurðir, hrein- lætistæki, ofnar og fleira og segir Pétur að reynt hafi verið að end- urnýta sem allra mest með því að gefa það áfram til þeirra sem hafa not fyrir hlutina. Rúmlega 400 bílastæði og hraðhleðslustöð Á bilinu 400 til 450 bílastæði verða við Norðurtorg og þar verður einnig hraðhleðslustöð fyrir Tesla- bifreiðar. Hún verður tekin í notk- un á sama tíma og fyrstu verslanir verða opnaðar. Hraðhleðslustöðin er sú fyrsta sem Tesla opnar á Akureyri. Eitt af því sem félagið hefur áhuga á er að reisa heilsugæslustöð á lóðinni og hefur viðrað þær hug- myndir sínar við þá sem með málið hafa að gera. „Það er enn óljóst hvort af því verður, við teljum að þessi stað- setning henti einkar vel undir þá starfsemi,“ segja þeir Pétur og Ari. Opnað verður á Norðurtorgi í sumar - Nýr verslanakjarni á Akureyri - Framkvæmdir upp á 2,7 milljarða - Allt að 50 manns unnið að framkvæmdum í vetur - Ilva og Rúmfatalagerinn fyrst inn - Hraðhleðslustöð Tesla opnuð í júní Morgunblaðið/Margrét Þóra Norðurtorg Húsnæðið er um 11 þúsund fermetrar að stærð og aðalverslunarhæðin um 7.000 fermetrar. Þar verða Rúmfatalagerinn og Ilva til húsa. Feðgar Ari Pétursson verkefnastjóri og Pétur Bjarnason, annar af eig- endum Klettáss, sem stendur fyrir framkvæmdum á Norðurtorgi. Lóan er komin til landsins. Þetta staðfesti fuglaáhugamaðurinn Alex Máni Guðríðarson við mbl.is í gær, en hann sá til hennar í fjörunni við Stokks- eyri rétt fyrir hádegið. Heiðlóan hefur lengi verið talin einn helsti vorboði hér á landi og eru það því ætíð gleðifréttir þegar hún skýtur upp kollinum. Hún kveður burt snjó- inn og leiðindin, það gerir hún, ef marka má vísu Páls Ólafssonar. Alex Máni, sem er 24 ára, hefur haft áhuga á og ljósmyndað hina ýmsu fugla síðan hann var 6 eða 7 ára gamall að eigin sögn. Hann hefur mest náð því að mynda 160 fugla á einu ári. Komin til að kveða burt leiðindin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.