Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 12
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í nýju áhættumati Ríkislögreglu-
stjóra vegna peningaþvættis og fjár-
mögnunar fyrirtækja vekur athygli
hve mikil áhætta er talin tengd pen-
ingasendingum annars vegar og
rekstri söfnunarkassa og happ-
drættisvéla hins vegar.
Í skýrslunni segir m.a. að vís-
bendingar séu um að spilakassar séu
þegar nýttir til peningaþvættis sem
fer þá þannig fram að reiðufé er
hlaðið í spilakassana, spilaðir örfáir
leikir, vinningsmiði síðan prentaður
út úr spilakassanum og innleystur
hjá gjaldkera. Taka íslenskir spila-
kassar að hámarki við 100.000 kr. í
einu en hægt að endurtaka leikinn
eins oft og vilji stendur til. Með
þessum hætti getur handhafi pen-
inga sem aflað var með ólöglegri iðju
sagst hafa unnið þá með fullkomlega
löglegum hætti í fjárhættuspili.
Frekari ráðstafanir í bígerð
Segir jafnframt í áhættumatinu að
tilkynningum til Skrifstofu fjármála-
greininga lögreglu (SFL) vegna
meintra brota af þessu tagi hafi fjölgað
síðastliðin tvö ár og grunur um að
spilakassar hafi ítrekað verið notaðir
við peningaþvætti.
Spurð um viðbrögð við áhættumat-
inu segir Bryndís Hrafnkelsdóttir, for-
stjóri Happdrættis Háskóla Íslands
(HHÍ), að félagið hafi þegar gert
áhættumat fyrir starfsemina og með
því skjalfest með hvaða hætti HHÍ
uppfyllir skyldur sínar skv. gildandi
reglum á hverjum tíma. „Í áhættumat-
inu er gerð greining á þeim hættum,
þ.e. ógnum og veikleikum, á sviði pen-
ingaþvættis og fjármögnunar hryðju-
verka sem kunna að steðja að starf-
semi HHÍ. Þar er einnig samantekt á
ráðstöfunum HHÍ til þess að stemma
stigu við slíkri áhættu,“ segir hún.
„HHÍ hefur þegar brugðist við ein-
stakri greindri hættu og í bígerð er að
innleiða frekari ráðstafanir í því skyni
að draga úr greindri áhættu.“
Peningasendingar fyrir nærri
2,5 milljarða króna árlega
Aðfinnslur Ríkislögreglustjóra
um peningasendingar snúa m.a. að
því að þar fara viðskipti iðulega
fram með reiðufé og viðskiptasam-
bönd eru oft ekki til staðar til lengri
tíma. Er nær eingöngu um að ræða
fjölda einstakra viðskipta þar sem
framkvæmd er takmörkuð áreiðan-
leikakönnun og mögulegt að þeir
sem vilji t.d. senda peninga á milli
landa geti villt á sér heimildir með
notkun falsaðra persónuskilríkja.
Hefur nokkur fjöldi tilkynninga bor-
ist SFL vegna gruns um peninga-
þvætti í gegnum peningasendingar.
Á Íslandi má finna fjóra umboðs-
aðila erlendra greiðslustofnana sem
hafa heimild til að stunda peninga-
sendingar en aðeins tveir þeirra eru
virkir á þessum markaði Var
heildarumfang peningasendinga í
gegnum þessi félög 2,44 milljarðar
króna á síðasta ári.
Íslandspóstur er eitt þessara
fyrirtækja og er umboðsaðili West-
ern Union. Í svari fyrirtækisins við
fyrirspurn Morgunblaðsins segir að
sem umboðsaðili sinni Íslandspóstur
ekki sjálft peningasendingum. „Að-
koma Íslandspósts er með þeim
hætti að tilteknir starfsmenn fyrir-
tækisins hljóta sérstaka þjálfun á
vegum Western Union og þurfa að
þreyta próf til að hljóta leyfi til að
sinna móttöku og útgreiðslu pen-
ingasendinga fyrir hönd Western
Union, en þessi þjálfun gengur m.a.
út á að koma auga á þau atriði sem
nefnd eru í skýrslu [Ríkislögreglu-
stjóra].“
Segir enn fremur í svari Íslands-
pósts að samstarfið við Western
Union hafi ekki staðið lengi en í að-
draganda þess hafi verið ráðist í
ítarlegt mat á þeirri áhættu sem
vitað er að fylgi peningasendingum
á alþjóðavísu. „Íslandspóstur hefði
ekki tekið þátt í þessu samstarfi ef
innan félagsins væri ekki full trú á
því að félagið gæti staðið við sínar
skyldur og stemmt stigu við því að
slík áhætta muni raungerast.
Skiptir þar miklu máli bæði sú
þekking og geta sem Western
Union býr yfir til að þjálfa, viðhalda
og sí-prófa þá starfsmenn Íslands-
pósts sem koma að þjónustunni,
sem og náin samvinna Íslandspósts
og Western Union. Western Union
hefur starfsleyfi innan EES og
sjálfur peningaflutningurinn fer
fram í gegnum kerfi Western
Union, en þeirra kerfi býr yfir
greiningargetu sem stenst alþjóð-
leg viðmið og getur þannig t.a.m.
borið færslumynstur inn og út úr
Íslandi [saman] við færslur um all-
an heim.“
Spilakassar og peninga-
sendingar fá falleinkunn
Morgunblaðið/Eggert
Spilakassar Ekki er flókið að nota íslenska spilakassa til að þvætta illa fengið fé. Úrbætur eru fyrirhugaðar.
- Telja mikla hættu á peningaþvætti - Fjöldi tilkynninga hefur borist lögreglu
Glufur
» Spilakassa má hlaða með
reiðufé og jafnharðan útleysa
sem vinning
» Takmörkuð áreiðanleika-
könnun framkvæmd í kringum
peningasendingar
» HHÍ hyggst grípa til frekari
ráðstafana í spilasölum
» Íslandspóstur segir kerfi
Western Union greina færslu-
mynstur á heimsvísu
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
29. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.15
Sterlingspund 175.2
Kanadadalur 101.13
Dönsk króna 20.145
Norsk króna 14.801
Sænsk króna 14.701
Svissn. franki 135.08
Japanskt jen 1.1584
SDR 180.62
Evra 149.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.9388
Hrávöruverð
Gull 1727.85 ($/únsa)
Ál 2208.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.01 ($/fatið) Brent
Le Monde greinir frá að Evrópusam-
bandið og ríkisstjórn Frakklands séu
nálægt samkomulagi um þá skilmála
sem gilda munu um fjárhagsaðstoð
við ríkisflugfélagið Air France.
Samsteypa Air France og KLM
var rekin með 7,1 milljarðs evra tapi
á síðasta ári en fékk 10,4 milljarða
stuðning frá franska og hollenska
ríkinu í formi lána og skuldar-
ábyrgðar. Er nú unnið að því að
breyta þessum lánum að hluta í jafn-
greiðslulán og víkjandi langtímalán
en til þess þarf blessun ráðamanna í
Brussel.
Er m.a. deilt um hvort að Air
France þurfi að láta af hendi lending-
artíma á flugvöllum Parísarborgar
en ESB telur eðlilegt að flugfélagið
missi tiltekna lendingartíma á Orly-
flugvelli, að sögn Reuters. ai@mbl.is
Deilt um
björgun Air
France
« Bandaríski skrifstofuhúsnæðis-
sprotinn WeWork hefur fallist á sam-
runa við fjárfestingarfélagið BowX
Acquisition Corp og mun með þeim
hætti komast á hlutabréfamarkað.
Að sögn Reuters er WeWork metið á
níu milljarða dala samkvæmt sam-
runasamningnum og hefur lækkað mik-
ið í verði frá árinu 2019 þegar félagið
var metið á 47 milljarða í fjármögn-
unarlotu sem leidd var af japönsku
samsteypunni SoftBank. Sama ár
freistaði WeWork þess að fá kauphall-
arskráningu og stefndi á 96 milljarða
verðmat en stjórnendur ákváðu að
stöðva skráningarferlið vegna efa-
semda fjárfesta um ágæti viðskipta-
módels fyrirtækisins og áhyggja af
stjórnunarháttum stofnandans Adam
Neumann. Lét Neumann síðar af störf-
um og tók Sandeep Mathrani við for-
stjórastólnum.
BowX er svokallað SPAC-félag (e.
special purpose acquisition company)
eða n.k. skúffufyrirtæki rekið með það
að markmiði að renna saman við efni-
legt félag sem vill fá skráningu á hluta-
bréfamarkað án þess að fara í gegnum
hið hefðbundna skráningarferli.
WeWork er ungt félag, stofnað árið
2010, en hefur vaxið með ógnarhraða.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að kaupa skrif-
stofuhúsnæði víða um heim og leigja
síðan út skrifstofubása eða smáskrif-
stofur til einyrkja og sprotafyrirtækja.
WeWork væntir um 900 milljóna dala
taps á þessu ári en vonast til að rekst-
urinn skili 500 milljóna dala hagnaði
árið 2022. ai@mbl.is
WeWork fer krókaleið
inn á hlutabréfmarkað
Þurrkur WeWork hefur ekki átt sjö
dagana sæla í veirufaraldrinum.
STUTT