Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á Alþingi áföstudag áttisér stað stutt en afar athyglisverð umræða um þings- ályktunartillögu frá meiri hluta Íslands- deildar Norður- landaráðs um „viðbrögð við upp- lýsingaóreiðu“. Tillagan gengur út á að fela forsætisráðherra að skipa starfshóp „til að móta stefnu um viðbrögð við upplýsinga- óreiðu“ sem skila skuli tillögum að ári liðnu. Tilefnið er að aðgangur að traustum upplýsingum sé for- senda vandaðrar umræðu en að undanfarin ár hafi „borið meira á því að villandi og fölskum upplýs- ingum, svokölluðum falsfréttum, sé dreift og með tilkomu sam- félagsmiðla og aukinni notkun þeirra fer vandinn ört vaxandi.“ Þrátt fyrir það hve þýðingar- mikið þetta mál getur verið og margslungið tók, fyrir utan fram- sögumanninn, Silju Dögg Gunn- arsdóttur, aðeins einn þingmaður þátt í umræðunni, Birgir Ármannsson. Hann tók undir að margt væri að varast og að hætta væri á að röngum upplýsingum væri dreift, en sagði svo: „Ég verð hins vegar að slá þann varnagla þegar hugmyndir af þessu tagi koma fram að ríkisrekin viðleitni til þess að tryggja að sjónarmið og upplýsingar sem fram koma á opinberum vettvangi séu réttar er varasamt. Það er varasamt að rík- ið setji sig í þau spor að það geti sorterað út hvað eru réttar upp- lýsingar og hvað eru rangar og ef ekki er farið gætilega í sambandi við mál af þessu tagi þá geta menn farið að nálgast ritskoðun mjög hratt.“ Og hann bætti við: „Ég verð að játa það að ég fæ alltaf dá- lítið kaldan hroll þegar ég heyri hugmyndir um það að ríkisvaldið ætli að setja sig í dómarasætið um það hvaða upplýsingar og hvaða skoðanir mega koma fram. Hvaða upplýsingar og skoðanir eru rétt- ar og hvað eru rangar upplýs- ingar.“ Birgir lagði áherslu á að í um- fjöllun þingsins um málið yrði að horfa á þetta út frá tjáningar- frelsis- og málfrelsissjónarmiðinu og væri uppi vafi yrði að standa með tjáningarfrelsinu, gegn rit- skoðuninni. Birgir ítrekaði síðar í um- ræðunni að hann væri sammála því að um vandamál gæti verið að ræða, „en það að opinberir aðilar, opinber nefnd, opinber stofnun eða einhver ætli sér að fara að sortera út hvað eru réttar upplýs- ingar, leyfilegar upplýsingar og upplýsingar sem mega ekki koma fyrir augu almennings, það finnst mér mjög ógeðfelld tilhugsun og mundi alltaf taka afstöðu gegn slíkum tillögum.“ Að lokum sagði Birgir þetta um málið: „Allar skerðingar á tján- ingarfrelsi og allar skerðingar á mannréttindum yfirhöfuð, þegar um þær er að ræða í löndum í kringum okkur, byggja á því að það sé verið að tryggja réttar upp- lýsingar. Stjórnvöld, hvort sem var í Sovétríkjunum, nú í Kína, Tyrklandi undir nú- verandi forystu Er- dogans, takmarka opinbera umræðu, takmarka málfrelsi á þeirri forsendu að þau séu að reyna að stoppa rangar upp- lýsingar, forða því að það sé hægt að rugla í fólki með falsfréttum. Erdogan lokaði fyrir internetið um tíma til að hægt væri að stoppa rangar upplýsingar. Í kosningum í Úganda nú fyrir fá- einum vikum var internetinu lok- að í nokkra daga fyrir kosningar af því að þáverandi stjórnvöld töldu að stjórnarandstaðan væri að nota internetið og samfélags- miðla til að koma á framfæri röng- um upplýsingum. Þannig að við erum á alveg svakalega hálum ís ef við tölum um einhverjar að- gerðir sem takmarka málfrelsi að þessu leyti.“ Þingmenn ættu að þekkja það að hægt er að hafa ýmsar og ólík- ar skoðanir á málum og þær geta allar byggst á ólíkum stað- reyndum. Ólíkar skoðanir þurfa ekki að byggjast á ósannindum eins og sannleiksást annars. Þing- menn deila iðulega hart, jafnvel um staðreyndir, en sjaldnast er það vegna þess að sumir skrökvi og aðrir segi satt, þó að það sé ekki óþekkt. En þá skiptir mestu að allir hafi rétt til að tjá sig og setja fram mótrök sín og stað- reyndir sínar og loks er það ann- arra og almennings að leggja mat á málflutninginn. Það er ekki ein- falt og það er alls ekki öruggt í hverju máli að sannleikurinn verði ofan á, en með því að takmarka tjáningarfrelsið og fela ein- hverjum opinberum aðilum að ákveða hvaða skoðanir mega heyrast og hvaða upplýsingar fá að koma fram, er næsta öruggt að sannleikurinn verður meðal fórnarlambanna. Eftir því sem lengra er gengið eru líkur á að fleiri staðreyndir falli í valinn og þá er ekki víst að aftur verði snú- ið. Þegar upp væri staðið væri raunveruleg hætta á að Sann- leiksráðuneyti Orwells hefði tekið við. Eina færa leiðin til að takast á við rangar upplýsingar er að tryggja að þær réttu eigi greiða leið til almennings. Á Vestur- löndum hafa fjölmiðlar einkum gegnt því hlutverki að verða sá milliliður sem helst er hægt að treysta á í þessum efnum. Fjöl- miðlar eru vissulega ekki óskeik- ulir og fjöldi dæma til um mistök þeirra og jafnvel misnotkun. En traustir ritstýrðir fjölmiðlar eru engu að síður það besta sem við höfum til að tryggja að almenn- ingur hafi aðgang að réttum upp- lýsingum. Hafi ríkisvaldið áhyggj- ur af upplýsingaóreiðu og falsfréttum sem flæða um vara- sama samfélagsmiðla ætti það að leitast við að tryggja að hefð- bundnir fjölmiðlar geti áfram rækt það hlutverk sitt að flytja fréttir og veita almenningi upp- lýsingar, en forðast allar aðgerðir sem flokkast gætu undir rit- skoðun. Þingmönnum ber að standa vörð um mannréttindi, ekki síst tjáningarfrelsið} Upplýsingaóreiðan F orsætisráðherra og heilbrigðis- ráðherra hafa hvað eftir annað sagt þjóðinni að bólusetning hennar yrði sem næst í höfn um mitt ár. Orðfærið hefur þó tekið breytingum. Framan af var sagt að þorri þjóð- arinnar yrði bólusettur fyrir mitt ár. Svo var tekið að segja að meirihluti hennar yrði bólu- settur fyrir mitt ár. Nú síðast var sagt að mikill meirihluti yrði bólusettur fyrir mitt ár. Engar skýringar hafa verið gefnar á hvað liggur að baki þessum fullyrðingum eða á breyttu orðalagi sem felur í sér umtalsverða efnislega breytingu. Þögnin felur í sér að gefið sé í skyn að meira búi að baki sem ekki er unnt að greina frá. Samt læðist að sá grunur að ekk- ert sé þarna handan við, ekki sé frá neinu að segja. Þetta virtist staðfest í umræðu á Alþingi á föstudaginn þegar heilbrigðisráðherra gaf skýrslu um sóttvarnir og svaraði spurningum alþingismanna. Hún sagði í svari við spurningu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að góðra tíðinda væri að vænta síðar um daginn af bóluefni frá Johnson og Johnson. Þegar Sigmundur gekk á hana í síð- ari spurningu gaf hún upp tölurnar. Um óverulegt magn er að ræða. Sigríður Á. Andersen spurði hvort ekki mætti leita til þjóða sem veigra sér við að nota bóluefni frá AstraZeneca og fá það tímabundið að láni. Heilbrigðisráðherra tók þessari spurningu ekki vel, talaði um að „seilast í“ bóluefni annarra og þjóðir hefðu sjálfdæmi um ákvarð- anir um bólusetningu. Með þessum ummælum gerði ráðherra Sigríði upp skoðanir og réðst á hana fyrir þær. Hér er beitt kunnu pólitísku bragði sem maður hefði haldið að ætti að liggja utan við umræðu af þessu tagi. Heilbrigðisráðherra tókst þó með þessum svörum að draga fram að það er ekkert að frétta af hennar vettvangi um útvegun bólu- efnis. Ísraelar hafa bólusett þorra þjóðarinnar, Bretar yfir 40% og Bandaríkjamenn meira en þriðjung. Chile og Sameinuðu arabísku fursta- dæmin eru komin vel á veg. Þessi dæmi sýna að pólitískt framtak skiptir máli. Við sitjum aftast í vagni ESB og máttum taka við skila- boðum um að verða fyrir útflutningshömlum vegna deilna ESB við Breta. Samt gengur heilbrigðisráðherra fremstur ráðherra á Vesturlöndum við að verja klúðrið sem ESB hefur ratað í þegar hann er ekki að verja árangursleysi ríkisstjórnarinnar við að út- vega þjóðinni bóluefni. Ekki er að sjá af svörum ráðherra að neinir uppburðir séu fyrir hendi, hvergi nein pólitísk sambönd né skipuleg beiting annarra tengsla sem gætu gagnast við að útvega bóluefni. Dugmikið fólk væri búið að skila þjóðinni meiri árangri. Ólafur Ísleifsson Pistill Dauft yfir vötnum við útvegun bóluefnis Höfundur er þingmaður Miðflokksins. olafurisleifs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is B ið eftir liðskiptaaðgerðum hér á landi hefur lengst og ljóst er að enn bíður meiri- hluti sjúklinga of lengi eftir aðgerð. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um liðskiptaaðgerðir sem lögð var fram á Alþingi fyrir helgi. Skýrslan var unnin að beiðni Ásmundar Frið- rikssonar og fleiri alþingismanna en óskað var eftir samantekt á stöðu mála og leiðum til úrbóta svo auka megi þjónustu við þá sem eru í brýnni þörf fyrir slíkar aðgerðir. Í skýrslunni er borinn saman fjöldi aðgerða hér á landi við önnur lönd og tilgreint að Ísland sé að nálg- ast hinar Norðurlandaþjóðirnar hvað varðar fjölda framkvæmdra aðgerða á hvern íbúa. Farið yfir þá þætti sem hafa áhrif á lengd biðtíma og bent á að ýmislegt bendi til þess að ekki sé verið að fullnýta ýmis meðferðar- úrræði sem til eru áður en fólki er vísað í aðgerð. Miðgildi biðtíma þeirra sem fóru í liðskiptaaðgerð á mjöðm árið 2020 var 29 vikur á Landspítala, 20 vikur á Sjúkrahúsinu á Akureyri, 26 vikur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands og 3 vikur á Klíníkinni. „Fjöldi fram- kvæmdra aðgerða á árinu var 743 og því ljóst að margir biðu umfram ásættanlegan biðtíma,“ segir í skýrslunni. Þar kemur jafnframt fram að fækkað hafi á biðlistum í kjölfar biðlistaátaks árið 2016 en fjölgun hafi orðið á ný í fyrra. Miðað er við að ásættanleg bið eftir aðgerð sé 90 dagar frá greiningu en þá er ótalin bið eftir að komast að hjá sérfræðingi sem greinir vandann. Stefna stjórnvalda er að 80% sjúk- linga fái meðferð innan áðurnefnds tíma. Raunin er sú að vel yfir 60% þurfa að bíða lengur en þrjá mánuði eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm og hef- ur hlutfallið aukist milli ára. Enn verri sögu er að segja af lið- skiptaaðgerðum á hné. Miðgildi bið- tíma var 43 vikur á LSH, 24 vikur á SAk, 32 vikur á HVE og 3 vikur á Klíníkinni. Fjöldi framkvæmdra að- gerða var 760 í fyrra. Hlutfall þeirra sem þarf að bíða lengur en þrjá mán- uði hefur aukist milli ára og er nú 76%. Í skýrslunni er þess getið að tekist hafi að viðhalda þeim árangri sem náðist með biðlistaátakinu frá 2016 enda hafi fengist áframhaldandi fjármagn til þess fyrir árin 2019- 2021. Árangurinn haldi þó ekki í aukningu sem hafi orðið vegna fjölg- unar aldraðra og fjölgunar þeirra sjúkdóma sem valda sjúkdómum í liðum, eins og til dæmis offitu. Inn- leiðing svokallaðs DRG-fjármögn- unarkerfis muni auðvelda umsjón og yfirsýn stjórnvalda með framleiðslu þjónustuaðila í heilbrigðisþjónustu hér á landi auk þess að hvetja til auk- innar framleiðni. Þróun miðlægs bið- lista muni sömuleiðis bæta utan- umhald. Síðustu ár hefur nokkur fjöldi Íslendinga valið að fara utan í lið- skiptaaðgerðir þar eð biðtími eftir slíkri aðgerð hér á landi hefur verið óásættanlegur. Á árunum 2015-2020 greiddu Sjúkratryggingar Íslands fyrir meðferðir 91 Íslendings í út- löndum, 59 vegna liðskipta á hné en 32 vegna liðskipta á mjöðm. Heildar- kostnaður við þessar meðferðir nam rétt tæpum 160 milljónum króna. Meðalkostnaður við hverja slíka meðferð er umtalsvert hærri en ef sambærileg aðgerð væri gerð hér á landi, enda er greitt fyrir ferðir, uppihald og jafnvel fylgdarmann. Í fyrra var kostnaður við hverja lið- skiptaaðgerð á mjöðm rúmar tvær milljónir króna ytra en rétt rúm ein milljón hér á landi. Bið eftir liðskiptaað- gerðum lengist á ný Morgunblaðið/Ásdís Aðgerð Árangur sem náðist með biðlistaátaki árið 2016 heldur ekki í aukna þörf á liðskiptaaðgerðum, svo sem vegna fjölgunar aldraðra. Í skýrslunni er rifjað upp að heil- brigðisráðherra hafi samþykkt árið 2019 að koma á fót lið- skiptasetri við Heilbrigðis- stofnun Vesturlands á Akranesi. Segir að áætlað sé að það geti hafið starfsemi í mars árið 2022 og hefja eigi starfsemi á nýrri skurðstofu þar í febrúar 2023. „Með liðskiptasetri og viðbót- arskurðstofu sem eingöngu sinnir liðskiptaaðgerðum skap- ast aðstaða til að fjölga aðgerð- um sem á sama tíma verða ekki fyrir truflun vegna bráðra að- gerða. Framkvæmdir eru hafnar við stofnunina sem m.a. fela í sér að viðbótarskurðstofu verð- ur bætt við þær tvær sem fyrir eru. Markmiðið er að þar verði hægt að framkvæma 430 lið- skiptaaðgerðir á ári, sem er um 60% aukning miðað við að- gerðafjölda undanfarinna ára. Fjármögnun þeirrar viðbótar hefur verið tilgreind í fjárlögum fyrir árið 2021.“ Aðgerðum verði fjölgað LIÐSKIPTASETUR Á HSV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.