Morgunblaðið - 29.03.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 29.03.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 Leikur Hestar eru félagslynd dýr. Ekki má misskilja það þótt hestar, sérstaklega ung hross, sjáist kljást. Það geta verið jákvæð samskipti. Þeir geta verið að mynda ný tengsl. Eggert Fjórum sinnum á undanförnum árum hef ég heimsótt tyrknesk mannréttindasamtök ásamt fréttamönnum, fræðimönnum, stjórn- málamönnum, fólki úr verkalýðsbaráttu, lög- mönnum og ein- staklingum sem hafa látið sig mannréttindi varða. Við höfum verið um það bil tíu talsins hverju sinni og hef ég þarna kynnst mjög áhugaverðu fólki. Áhugaverðast hefur þó verið að hlusta á mál fólks sem brotið hef- ur verið á eða kemur frá samtökum sem berjast fyrir hönd þess. Ferð okkar að þessu sinni, sem nú er ný- afstaðin, var aldrei farin í þeim skilningi að öll vorum við heima en sátum engu að síður sameiginlega fundi sem fram fóru á netinu. Þess vegna Imrali Þessar sendinefndir hafa verið kenndar við Imrali en það er heitið á eynni í Marmarahafi skammt frá Istanbúl þar sem leiðtoga Kúrda, Abdullah Öcalan, hefur verið haldið í einangrunarfangelsi síðan 1999 eða í alls 22 ár. Þá var hann tekinn hönd- um í Nairóbí í Kenía þegar hann var á leið til Suður-Afríku í boði Nelsons Mandela, þáverandi forseta þess lands, en einnig hann hafði setið í fangelsi í heil 27 ár, lengst af á Robben-eyju. Það áttu þeir sammerkt Mandela og Öcalan að hafa tekið þátt í vopn- aðri baráttu gegn ofbeldisstjórnum og síðan talað fyrir friðsamlegum lausnum. Það var gæfa Suður- Afríkumanna að Mandela skyldi leystur úr haldi og honum gert kleift að leggja sitt af mörk- um til að koma á friði og binda enda á óöld í landinu. Þetta hefði kynþáttastjórninni í Suður-Afríku aldrei tekist einni. Sama á við um Tyrk- land. Þar þurfa að koma sameiginlega að borði tyrknesk stjórn- völd og fulltrúar Kúrda sem eru sá hluti þjóð- arinnar sem beittur hefur verið mestu of- beldi í landinu um langt skeið. Á því var þó undantekning því á árabilinu 2013 til 2015 var þíða í samskiptum, og samningaviðræður, sem þeir leiddu Erdogan, æðstráð- andi í Tyrklandi, og Öcalan, tals- maður Kúrda, úr fangelsisklefa sín- um á Imrali. Kom ég þá til Diyarbakir í Suðaustur-Tyrklandi sem er fjölmennasta borg Kúrda og fann fyrir þeirri gleði og bjartsýni sem sveif þá yfir vötnum. Þáttaskil til hins verra Vorið 2015 skipuðust veður í lofti. Flokkur Kúrda, HDP, fékk yfir 13% í kosningum til tyrkneska þingsins en árið áður hafði flokkurinn sótt í sig veðrið í bæjarstjórnarkosningum og stýrðu Kúrdar – alltaf kona og karl hlið við hlið – nú fjölda borga, bæja og sveitarfélaga í suðaustan- verðu Tyrklandi. Í þessum þing- kosningum missti Erdogan meiri- hluta á þingi en í þann mund að séð varð hvert stefndi var öllum friðar- viðræðum slitið og látið til skarar skríða gegn Kúrdum. Var ljóst að valdaöflin töldu það þjóna sínum hagsmunum best að styrkja öfgaöfl fremur en þau sem vildu friðinn. Hófst nú hrikalegt tímabil gegnd- arlauss ofbeldis í garð Kúrda. Heilir bæir og borgarhlutar voru jafnaðir við jörðu, hálf milljón manna fór á vergang, allra sem mótmæltu beið fangelsisvist ef þá ekki dauðinn. Ég heimsótti í ársbyrjun 2018 sömu borg, Diyarbakir, þar sem ég áður hafði fundið fyrir bjartsýninni. Hún var með öllu horfin, svo og þrír fjórðu hlutar hinnar fornu mið- borgar, Sur, og þar með mörg þús- und ára fornminjar á verndarskrá Sameinuðu þjóðanna. Nú voru jarð- ýtur og önnur vinnutæki að jafna við jörðu það sem enn þótti standa í vegi fyrir nýjum hótel- og skrifstofu- byggingum. Aldrei hef ég heyrt aukatekið orð um þennan menning- arglæp frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna né öðrum alþjóðastofn- unum sem þykjast vilja verja mann- réttindin og menninguna. Evrópuráðið og Mannréttinda- dómstólinn setur niður Vorið 2019 mótmælti að vísu sú nefnd Evrópuráðsins sem gæta á þess að pyntingar séu ekki stund- aðar í fangelsum aðildarríkja ráðs- ins, því að gróflega væri brotið á fanganum á Imrali-eyju og krafðist þess að þetta og sambærileg ein- angrunarvist í fangelsum landsins yrði endurskoðuð og lagfærð þegar í stað. Tyrknesk yfirvöld svöruðu með því að herða á einangruninni og taka fyrir öll samskipti við fangann á Im- rali-eyju sem voru þó nánast engin áður! Ekki hefur heyrst stuna frá Evrópuráðinu til að mótmæla þessu. Þvert á móti fór sjálfur forseti Mannréttindadómstólsins í Strass- borg til Tyrklands til að taka við sér- stakri viðurkenningu, og það í sama háskóla og verst hefur orðið úti í hreinsunum og fangelsunum, lét mynda sig með valdhöfunum og til að kóróna allt þá fór hann til Kúrda- borgarinnar Mardin, skammt frá Diyarbakir, og átti þar viðræður við leppana sem settir höfðu verið til valda í stað þeirra lýðræðislega kjörnu fulltrúa sem hraktir höfðu verið úr embætti. Allt þetta fengum við að heyra á netfundum okkar í febrúar frá fulltrúum samtaka lögmanna og há- skólakennara, kvennasamtaka, fréttamanna og mannréttinda- samtaka. Var þessu fólki mjög mis- boðið. Viðmælendum okkar bar einnig saman um að ástandið í Tyrklandi færi að nýju versnandi, fangelsun fréttamanna væri tíðari, lögmenn sakfelldir fyrir að verja skjólstæð- inga(!), fólk svipt ferðafrelsi, margir þeirra sem við ræddum við gátu ekki ferðast út fyrir landsteinana, gagn- rýnin samtök kvenna hefðu verið bönnuð, fyrirsjáanlegt væri að Tyrk- ir myndu segja sig frá Istanbúl- samþykkt Evrópuráðsins um vernd gegn kynbundnu ofbeldi, nokkuð sem nú er orðið að veruleika. Berum við ábyrgð? Já við berum ábyrgð. Þögn Ís- lands jafngildir samsekt. Jens Stolt- enberg, framkvæmdastjóri NATÓ, lýsti reyndar ábyrgð á hendur okkur þótt þannig hafi hann ekki orðað það eftir fund bandalagsins sem haldinn var í Brussel 28. júlí 2015 í þann mund sem versta ofsóknarhrinan gegn Kúrdum hófst. Tyrkland hafði óskað eftir fundinum til að fá grænt ljós á fyrirhugaða baráttu gegn „hryðjuverkum“: „Öll bandalags- ríkin styðja Tyrkland. Við stöndum öll saman í samstöðu með Tyrk- landi,“ sagði þessi talsmaður Ís- lands. Öllum mátti þá ljóst vera hvað fram undan var. Orð á bak við lás og slá Þegar gluggi Öcalans í fangelsinu á Imrali-eyju var opnaður eitt and- artak í maí 2019, eftir víðtæk hung- urmótmæli í fangelsum landsins, kom hann út þeim skilaboðum að hefja bæri friðarviðræður á ný: „Atburðir líðandi stundar minna á hve mikil þörf er á að ná víðtækri og djúpri sátt í samfélaginu. Við þurf- um á að halda lýðræðislegri nálgun við samninga þar sem í stað átaka á milli gagnstæðra póla er horft til þess vanda sem þarf að leysa. Við getum leyst úr vandamálum Tyrk- lands og jafnvel alls þessa heims- hluta með mýktinni, það er að segja með vitsmunum okkar, samskiptum á milli stjórnmálafylkinga og menn- ingarheima í stað valdbeitingar. Á Imrali-eyju stendur vilji okkar ein- dregið til þess að taka upp friðar- viðræðuþráðinn þar sem skilið var við hann. Frá okkar sjónarhóli skipt- ir öllu máli að koma á friði með mannlegri reisn og með lýðræðis- legum og friðsamlegum hætti.“ Ríkisstjórnin álykti Ísland á ekki að standa með þeim sem vilja loka slík orð inni. Við eig- um að standa með þeim sem vilja frið með mannlegri reisn. Hvernig væri að álykta um það á næsta fundi ríkisstjórnarinnar og senda síðan þá ályktun á viðeigandi heimilisföng? Eftir Ögmund Jónasson » Við eigum að standa með þeim sem vilja frið með mannlegri reisn. Hvernig væri að álykta um það á næsta fundi ríkisstjórnarinnar og senda síðan þá álykt- un á viðeigandi heim- ilisföng? Höfundur er fyrrverandi dómsmálaráðherra. Hlýtt á tyrknesk mannréttindasamtök Ögmundur Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.