Morgunblaðið - 29.03.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.03.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 Undankeppni HM karla J-RIÐILL: Armenía – Ísland...................................... 2:0 N-Makedónía – Liechtenstein ................ 5:0 Rúmenía – Þýskaland .............................. 0:1 Staðan: Þýskaland 2 2 0 0 4:0 6 Armenía 2 2 0 0 3:0 6 N-Makedónía 2 1 0 1 7:3 3 Rúmenía 2 1 0 1 3:3 3 Ísland 2 0 0 2 0:5 0 Liechtenstein 2 0 0 2 0:6 0 A-RIÐILL: Serbía – Portúgal ..................................... 2:2 Írland – Lúxemborg................................. 0:1 _ Serbía 4, Portúgal 4, Lúxemborg 3, Aserbaídsjan 0, Írland 0. B-RIÐILL: Georgía – Spánn ....................................... 1:2 Kósóvó – Svíþjóð ...................................... 0:3 _ Svíþjóð 6, Spánn 4, Grikkland 1, Georgía 0, Kósóvó 0. C-RIÐILL: Búlgaría – Ítalía........................................ 0:2 Sviss – Litháen ......................................... 1:0 _ Ítalía 6, Sviss 6, Litháen 0, Norður-Ír- land 0, Búlgaría 0. D-RIÐILL: Kasakstan – Frakkland ........................... 0:2 Úkraína – Finnland.................................. 1:1 _ Frakkland 4, Finnland 2, Úkraína 2, Bosnía 1, Kasakstan 0. E-RIÐILL: Hvíta-Rússland – Eistland ...................... 4:2 Tékkland – Belgía .................................... 1:1 _ Tékkland 4, Belgía 4, Hvíta-Rússland 3, Wales 0, Eistland 0. F-RIÐILL: Danmörk – Moldóva................................. 8:0 Austurríki – Færeyjar ............................. 3:1 Ísrael – Skotland ...................................... 1:1 _ Danmörk 6, Austurríki 4, Skotland 2, Færeyjar 1, Ísrael 1, Moldóva 1. G-RIÐILL: Svartfjallaland – Gíbraltar ...................... 4:1 Noregur – Tyrkland................................. 0:3 Holland – Lettland ................................... 2:0 _ Tyrkland 6, Svartfjallaland 6, Holland 3, Noregur 3, Lettland 0, Gíbraltar 0. H-RIÐILL: Rússland – Slóvenía ................................. 2:1 Króatía – Kýpur ....................................... 1:0 Slóvakía – Malta ....................................... 2:2 _ Rússland 6, Slóvenía 3, Króatía 3, Sló- vakía 2, Kýpur 1, Malta 1. I-RIÐILL: Albanía – England.................................... 0:2 Pólland – Andorra .................................... 3:0 San Marínó – Ungverjaland.................... 0:3 _ England 6, Ungverjaland 4, Pólland 4, Albanía 3, Andorra 0, San Marínó 0. EM U21 árs karla A-RIÐILL: Ungverjaland – Rúmenía ........................ 1:2 Þýskaland – Holland ................................ 1:1 _ Þýskaland 4, Rúmenía 4, Holland 2, Ung- verjaland 0. B-RIÐILL: Slóvenía – Tékkland................................. 1:1 Spánn – Ítalía............................................ 0:0 _ Spánn 4, Tékkland 2, Ítalía 2, Slóvenía 1. C-RIÐILL: Ísland – Danmörk..................................... 0:2 Rússland – Frakkland ............................. 0:2 Staðan: Danmörk 2 2 0 0 3:0 6 Frakkland 2 1 0 1 2:1 3 Rússland 2 1 0 1 4:3 3 Ísland 2 0 0 2 1:6 0 D-RIÐILL: Króatía – Sviss.......................................... 3:2 Portúgal – England.................................. 2:0 _ Portúgal 6, Króatía 3, Sviss 3, England 0. England Manchester United – West Ham............ 2:0 - Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 84 mín- úturnar með West Ham. C-deild: Blackpool – Plymouth............................. 2:2 - Daníel Leó Grétarsson lék seinni hálf- leikinn með Blackpool. D-deild: Exeter – Salford ...................................... 1:0 - Jökull Andrésson lék allan leikinn með Exeter. Frakkland Reims – Le Havre .................................... 2:1 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Andrea Hauks- dóttir léku allan leikinn með Le Havre. Þýskaland Duisburg – Bayern München ................. 0:6 - Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á sem varamaður á 63. mínútu hjá Bayern. Ítalía Napoli – Empoli ....................................... 3:3 - Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með Napoli, Lára Kristín Pedersen kom inn á sem varamaður á 83. mínútu. Holland B-deild: Excelsior – Helmond Sport .................... 0:3 - Elías Már Ómarsson kom inn á sem varamaður á 60. mínútu hjá Excelsior. Portúgal SL Benfica – Albergaria......................... 1:0 - Cloé Lacasse lék allan leikinn með SL Benfica. 50$99(/:+0$ ÍSLAND – DANMÖRK 0:2 0:1 Gustav Isaksen 5. 0:2 Mads Bech 18. M Ari Leifsson Jón Dagur Þorsteinsson Mikael Anderson _ Lið Íslands: (4-3-3) Patrik Sigurður Gunnarsson – Hörður Ingi Gunnarsson, Ari Leifsson, Ísak Óli Ólafsson (Finnur Tómas Pálmason 77), Kolbeinn Finnsson – Stefán Teitur Þórðarson (Valdimar Þór Ingimundarson 85), Alex Þór Hauksson (Andri Fannar Baldursson 68), Willum Þór Willumsson (Ísak Bergmann Jó- hannesson 68) – Mikael Anderson, Sveinn Aron Guðjohnsen (Brynjólfur Willumsson 85), Jón Dagur Þorsteinsson. _ Lið Danmerkur: (4-3-3) Oliver Chris- tensen – Mads Roerslev, Victor Nelsson , Mads Bech, Carlo Holse – Morten Hjulmand, Magnus Kofod Andersen (Victor Jensen 74), Nikolai Laursen – Gustav Isaksen (Anders Dreyer 60), Ni- kolai Frederiksen (Wahidullah Faghir 46, Jesper Lindström 81), Mohamed Da- ramy (Jacob Bruun Larsen 60). Gul spjöld: Jón Dagur 26., Nelsson 26., Hörður Ingi 54., Kofod Andersen 58., Bech 63., Mikael 65., Hjulmand 73., Sveinn Aron 78. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Halil Ümut Meler, Tyrklandi. Áhorfendur: Engir. _ Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leik- mannahópi Íslands vegna veikinda. _ Ísland mætir Frakklandi á miðviku- daginn kemur. EM U21 ÁRS Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Ísland tapaði í gær sínum öðrum leik í röð í lokakeppni EM U21-árs lands- liða karla í knattspyrnu í Ungverja- landi og Slóveníu. Íslenska liðið laut að þessu sinni í lægra haldi gegn Danmörku, 0:2, í C-riðli mótsins. Líkt og í 1:4-tapinu gegn Rússlandi síðastliðinn fimmtudag fór afleitur stundarfjórðungs kafli með íslenska liðið í leiknum í gær. Þá skoruðu Rússar þrjú mörk á síðustu 15 mín- útum fyrri hálfleiks og komust í 0:3 en í leiknum gegn Danmörku seig mun fyrr á ógæfuhliðina hjá Íslandi. Danir tóku forystuna strax á 5. mínútu leiksins með sínu fyrsta skoti í leiknum. Eftir góða sókn fékk Gust- av Isaksen, sem virtist tæpur á að vera rangstæður, boltann á hægri kantinum, hann lék á Kolbein Birgi Finnsson og skoraði með laglegu skoti. Á 18. mínútu tvöfölduðu Danir for- ystu sína. Það sem virtist vera sak- leysisleg sending inn á vítateiginn fór af Ara Leifssyni og þaðan til Mads Bech, sem var einn í teignum og skor- aði með góðu skoti niður í hornið. Erfiður stundarfjórðungur að baki og fór spilamennska íslenska liðsins batnandi eftir hann. Á 37. mínútu fékk Ísland vítaspyrnu þegar Ísak Óli Ólafsson komst fram fyrir Oliver Christensen í marki Dana, náði að skalla boltann yfir markið á meðan Christensen keyrði inn í hann og víta- spyrna því dæmd. Sveinn Aron steig á vítapunktinn og þrumaði að marki en Christensen, samherji hans hjá OB í Danmörku, varði slappa spyrnuna með fótunum og út í teiginn. Gott tækifæri í súginn Íslenska liðið lítur eflaust á þennan leik við Dani sem gott tækifæri til þess að gera sig gildandi í baráttunni um að komast í átta liða úrslit móts- ins. Danir héldu jú boltanum mjög vel og lengi en sköpuðu sér ekki sérlega mörg færi. Til marks um það áttu Danir sex skot í leiknum og Ísland fimm. Fyrra markið var vel útfært hjá Dönum en seinna markið fengu þeir gefins. Íslenska liðið lét þrátt fyrir erfiða stöðu ekki deigan síga en þeg- ar lið eru með bakið uppi við vegg mega dauðafæri eins og vítaspyrnur ekki fara forgörðum. Ísland hefði hæglega getað skorað í leiknum og hefði verið forvitnilegt að sjá hvernig leikurinn hefði þróast ef Sveinn Aron hefði skorað úr víta- spyrnunni. Eins fékk Stefán Teitur Þórðarson dauðafæri á 76. mínútu eftir frábæran undirbúning Jóns Dags Þorsteinssonar fyrirliða en Carlo Holse varði skot hans á mark- línunni. Hefði þá sömuleiðis verið nægur tími til þess að knýja fram jöfnunarmark. En þær systur ef og hefði breyta því ekki að staðan er orðin slæm fyrir Ísland eftir tvö töp í tveimur leikjum. Eftir að Frakkar unnu Rússa í C- riðlinum í gær þarf margt að ganga upp til þess að íslenska liðið komist upp úr riðlinum og tryggi sér sæti í átta liða úrslitum mótsins. Til að byrja með þyrfti Ísland að vinna Frakkland næstkomandi miðvikudag og þá þyrfti íslenska liðið í leiðinni að reiða sig á að Danmörk sigraði Rúss- land á sama tíma. Draumur um 8 liða úrslit svo gott sem úti Ljósmynd/Szilvia Micheller Svekktur Ísak Bergmann Jóhannesson gengur niðurlútur af velli eftir 0:2- tap íslenska U21-árs landsliðsins gegn því danska í lokakeppni EM í gær. - Tvö töp í tveimur leikjum - Vondur stundarfjórðungur liðinu aftur að falli Serge Gnabry var hetja Þjóðverja í 1:0-sigri á Rúmeníu í J-riðli Íslands í undankeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta í gærkvöldi. Gnabry skoraði sigurmarkið á 16. mínútu og sá til þess að Þýskaland væri með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Norður-Makedónía náði í sinn fyrsta sigur í riðlinum er liðið burstaði Liechtenstein á heima- velli 5:0. Svíþjóð, Ítalía, Sviss, Danmörk, Tyrkland, Svartfjallaland, Rússland, England, Þýskaland og Arm- enía eru öll með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. England vann 2:0-útisigur á Albaníu þar sem Harry Kane skoraði eitt mark og lagði upp annað. Á sama tíma valtaði Danmörk yfir Moldóvu á heimavelli, 8:0. Zlatan Ibrahimovic er mættur aftur í sænska landsliðið og hann lagði upp eitt mark í 3:0-sigri á Kósóvó á útivelli. Þá skoruðu Andrea Belotti og Manuel Locatelli mörk Ítalíu í 2:0-útisigri á Búlgaríu. Stórþjóðirnar Frakkland og Spánn unnu sína fyrstu leiki í gær, Frakkland vann 2:0-útisigur á Kasakst- an og Spánn marði Georgíu, 2:1, með sigurmarki í blálokin. Gnabry hetja Þjóðverja Serge Gnabry Emil Hallfreðsson skoraði sitt þriðja mark á leiktíðinni í ítölsku C- deildinni í fótbolta er hann gerði fyrsta mark Padova í 3:0-sigri á Ra- venna í gær. Emil var í byrjunarliði Padova og kom sínu liði yfir á 28. mínútu. Hann var tekinn af velli á 89. mínútu. Er þetta í fyrsta skipti sem Emil skorar þrjú mörk á einu tímabili síðan tímabilið 2012/13. Padova er í toppsæti síns riðils í C- deildinni með 70 stig eftir 33 leiki, fimm stigum á undan Südtirol í öðru sæti og í hörðum slag í barátt- unni um sæti í B-deildinni. Kom Padova á bragðið Morgunblaðið/Eggert Skotskór Emil Hallfreðsson var á skotskónum um helgina. _ Mauricio Pochettino, knattspyrnu- stjóri Frakklandsmeistara Paris SG, hefur mikinn áhuga á að fá markvörð- inn unga Illan Meslier frá Leeds. Daily Mail greinir frá. Meslier, sem er 21 árs, hefur staðið sig vel í ensku úrvals- deildinni með Leeds og haldið átta sinnum hreinu. _ Körfuknattleiksdeild Hrunamanna tilkynnti á laugardag að hún hefði sent þá Corey Taite og Karlo Lebo heim vegna óvissunnar sem nú ríkir, en allt mótahald er sem stendur á ís vegna kórónuveirunnar. Taite hefur verið einn besti leikmaður 1. deildarinnar í vetur og skorað 34,3 stig að meðaltali, tekið 5,6 fráköst og gefið 5,5 stoð- sendingar í leik. Lebo er með 16,3 stig og 8,8 fráköst að meðaltali. Hruna- menn eru í áttunda sæti af níu liðum 1. deildarinnar með sex stig eftir tólf leiki. _ Júdómaðurinn Sveinbjörn Iura náði góðum árangri þegar hann komst í 16- manna úrslit á sterku móti í Tibilisi, höfuðborg Georgíu, á laugardag. Sveinbjörn varð að sætta sig við tap gegn sterkum belgískum keppanda í 16-manna úrslitunum, en Belginn stóð að lokum uppi sem sigurvegari móts- ins. Sveinbjörn, sem ætlar sér á Ól- ympíuleikana í Tókýó, fór upp um níu sæti á heimslistanum eftir mótið og er hann nú í 61. sæti. _ Luka Modric, miðjumaður króat- íska landsliðsins í knattspyrnu og Real Madríd, sló leikjamet landsliðsins þeg- ar það vann nauman sigur gegn Kýpur í undankeppni HM 2022 á laugardag. Modric hefur nú spilað 135 landsleiki fyrir Króatíu frá árinu 2006 og er þar með kominn upp fyrir Darijo Srna, sem lék 134 landsleiki frá 2002 til 2016. _ Tvö Íslendingalið tryggðu sér á laugardag sæti í undanúrslitum sænska bikarsins í fótbolta. Rosen- gård fór áfram eftir fjörugt 3:3- jafntefli við Kristianstad. Rosengård komst í 3:0 en Kristianstad neitaði að gefast upp. Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn með Rosengård og Sveindís Jane Jónsdóttir allan leikinn með Kristianstad. Elísabet Gunnars- dóttir þjálfar Kristianstad. Diljá Ýr Zo- mers kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Häcken sem tryggði sér sæti í undanúrslitum með 5:2-sigri á Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.