Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR.
Risa Páskaknús á ykkur öll og
hlökkum til að hitta alla í bíó aftur.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
VÆNTANLEG Í BÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Dansararnir Ástrós Guðjónsdóttir
og Sólbjört Sigurðardóttir, sem
helst eru þekktar fyrir frammi-
stöðu sína með hljómsveitinni Hat-
ara, segjast enn vera að vinna úr
því sem þær gengu í gegnum með
hljómsveitinni á Eurovision í Ísrael
árið 2019. Sólbjört segir þversagn-
arkennt að ekki megi blanda pólitík
í keppnina, eins og Hatari gerði.
„Glimmerið og það sem sást var
ekki það sem var í gangi á bak við
tjöldin,“ segir Ástrós. Þær Sólbjört
eru gestir í nýjasta þætti Dagmála.
Heimildarmynd um ferlið
Heimildarmynd um ferlið var
gefin út nýverið en hún ber heitið
A Song Called Hate. Anna Hildur
Hildibrandsdóttir leikstýrði mynd-
inni. Sólbjört segir að það hafi ver-
ið erfitt að horfa á myndina og rifja
ferlið upp.
„Við erum enn þá að vinna úr
þessu. Í fyrsta skipti um daginn
byrjuðum við að tala um þetta eins
og við gætum talað um að þetta
hafi gerst. Þetta er svolítið óraun-
verulegt enn þá stundum,“ segir
Ástrós.
Hatari komst á heimskortið í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, ekki bara fyrir
óvenjulega Eurovision-lagið „Hatr-
ið mun sigra“, heldur einnig fyrir
að nýta dagskrárvaldið með póli-
tískum hætti þegar hljómsveitin
dró upp borða með fánalitum Pal-
estínu í beinni útsendingu við
stigagjöf. Pólitík er með öllu
óheimil í keppninni og það segir
Sólbjört kaldhæðnislegt.
„Það að það megi ekki draga
pólitík inn í þessa keppni er bara
pólitískt. Það er svo mikil þversögn
í því,“ segir Sólbjört.
Eftir atvikið fengu þær Ástrós
fjölda hatursfullra skilaboða. Síma-
númerin þeirra fóru í dreifingu og
fengu þær í um mánuð eftir keppn-
ina símtöl frá fólki sem var ósátt
við framkomu Hatara. Þær segjast
þó báðar hafa fundið fyrir miklum
stuðningi í garð hljómsveitarinnar
eftir uppákomuna.
Pólitískt að
banna pólitík
- Eru enn að vinna úr ferðinni til Ísraels
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Mogensson
Dansinn Sólbjört Sigurðardóttir og Ástrós Guðjónsdóttir eru gestir í nýj-
asta þætti Dagmála. Þar ræða þær m.a. um danssenuna hér á landi.
Í Beijing í Kína hefur verið opnuð
sýning á rafrænni myndlist undir
enska heitinu Virtual Niche: Have
You Ever Seen Memes in the Mir-
ror? Vekur framkvæmdin athygli
enda er um að ræða myndverk sem
alla jafna ferðast um stafræna heima
sem nú eru komin í hefðbundna
sýningarsali. Meðal annars eru sýnd
verk eftir einn umtalaðasta lista-
mann samtímans, hinn bandaríska
Mike Winkelmann sem kallar sig
Beeple. Mikla athygli vakti þegar á
dögunum var seld á uppboði JPG-
myndaskrá hans, „Everydays —
The First 5000 Days“, fyrir sann-
kallað metfé, 69 milljónir dala, rúm-
lega 8,8 milljarða króna. Í verkinu
eru 5.000 myndir sem Beeple hefur
gert á jafn mörgum dögum, eina á
dag, en á sýningunni í Beijing má sjá
margar ævintýralegra rafteikninga
hans sem vísa iðulega í dægurmenn-
ingu og vísindaskáldskap.
AFP
Umtöluð Sýningargestur virðir fyrir sér verk eftir hinn umtalaða Beeple á vefverkasýningunni í Beijing.
AFP
Stafrænt Sýningargest ber við stafrænt „málverk“ listamannsins Liu Gang.
Sýna
rafræn
myndverk