Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 18
„Húðin er orðin svo mjúk að
maðurinn minn getur ekki hætt
að koma við mig. Hann strýkur á
mér bakið og klappar eins og kisu,“
segir Magnea Huld Aradóttir og
skellihlær. Ástæða fyrir silkimjúku
hörundi Magneu er Feel Iceland
kollagen.
Magnea er 44 ára Reykvíkingur,
gift, tveggja barna móðir sem er
nýbúin að fá sér hvolp. Hún er
kennari í Réttarholtsskóla þar sem
hún kennir unglingum í 8., 9. og 10.
bekk íslensku og fjármálalæsi.
„Áður en ég varð kennari starf-
aði ég um árabil í Arion banka.
Svo kom að því að mig langaði
að söðla um. Ég fann að það átti
meira við mig að vera í kringum
fólk en peninga og líka að eiga
í meiri samskiptum. Því tók ég
kennsluréttindin á meðan ég vann
í bankanum, en ég var í grunninn
með BA-gráðu í íslensku,“ útskýrir
Magnea sem lagði einnig stund á
viðskiptafræði í háskólanum.
„Það er stórkostlega gaman
að kenna unglingum. Ég byrjaði
kennsluferilinn á að kenna yngri
bekkjunum en fannst erfiðara að
hafa stjórn á fyrstu bekkingum en
unglingum. Ég næ betur til þeirra
en yngri krakkanna,“ greinir
Magnea frá.
Hún verður ekki vör við neina
unglingaveiki né unglingavanda-
mál í sínu starfi.
„Unglingar eru frábært fólk og
öðruvísi í dag en þegar ég ólst upp.
Þeir eru heilbrigðari og ég held að
það sé vegna þess að foreldrar nú
til dags eru meiri þátttakendur í
lífi unglinganna sinna. Þegar ég var
á unglingsárunum hugsuðu ungl-
ingar meira og minna um sjálfan
sig, og sjálf keppti ég í handbolta
og fótbolta án þess að mamma
eða pabbi kæmu til að horfa á
leiki. Í dag eru breyttir tímar; for-
eldrar fylgja börnum sínum eftir
í áhugamálum og námi, samvera
fjölskyldunnar er meiri og nánari,
og foreldrar vita hvar unglingarnir
þeirra eru á kvöldin og um helgar.
Allt hefur þetta forvarnargildi sem
skilar sér í heilbrigðari unglingum
og sterkari sjálfsmynd þeirra.
Ég er því virkilega ánægð með
unglingana okkar og hef hlakkað
mikið til að hitta þá aftur nú þegar
sumri hallar,“ segir Magnea sem
hitti nemendur sína á fyrsta skóla-
deginum á mánudag.
„Það leggst alltaf vel í mig að
komast í rútínuna aftur. Mér þykir
alltaf jafn gaman að fara í sumarfrí
á vorin, en í byrjun ágúst fyllist ég
spenningi yfir að byrja í vinnunni
aftur, hitta krakkana og samstarfs-
fólkið, og það eru sannarlega
forréttindi.“
Hreinsar hugann á hlaupum
Magnea æfði bæði handbolta
og fótbolta með Fram hér áður
fyrr, en í seinni tíð eiga hlaup hug
hennar allan.
„Hlaup eru í dag mín líkams-
rækt. Ég er svo heppin að í
vinnunni er afbragðs líkams-
ræktarsalur þar sem ég get farið
með vinkonum og vinnufélögum
á bretti og þar lyfti ég lóðum og
ketilbjöllum. Ég er vel í stað sett
að búa við Fossvogsdalinn þar
sem eru margar frábærar hlaupa-
leiðir í nágrenninu og frá því í mars
fram í nóvember hleyp ég utan-
húss. Mér finnst gott að hlaupa
ein og hreinsa hugann með því að
skokka. Það er mín hugleiðsla og á
hlaupunum fæ ég bæði hugmyndir
og leysi vandamál. Ég hef ekki enn
gerst meðlimur í hlaupahóp því
mér finnst erfitt að vera niður-
njörvuð með tíma og reima frekar
á mig hlaupaskóna þegar mér
hentar.“
Magnea tók sig til og hljóp
Laugaveginn í fyrrasumar, frá
Landmannalaugum yfir í Þórs-
mörk, alls 58 kílómetra.
„Þá fórum við fimmtán saman
Ég finn hvað kolla
genið frá Feel
Iceland gerir mér gott.
Góður árangurinn leynir
sér ekki en það er lykil
atriði að taka kollagenið
inn samviskusamlega á
hverjum degi.
Magnea Huld Aradóttir.
Magnea Huld
æfði handbolta
og fótbolta með
Fram á árum
áður en í dag eru
hlaup hennar
líkamsrækt.
Hún er einmitt
farin að hlaupa
verkjalaus í
hnénu eftir að
hún fór að taka
inn Feel Iceland
kollagen. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/EYÞÓR
Magnea Huld setur kollagen út í kaffi en líka þeyting sem samanstendur af
rauðrófu, hindberjum, epli, eplasafa, engifer, túrmeriki og sítrónusafa.
með trúss og leiðsögumann og
hlupum þetta á tveimur dögum.
Það var stórkostleg upplifun,
náttúran á leiðinni er stórbrotin og
alveg ný upplifun að hlaupa upp
um fjöll og firnindi, en mér hentar
betur að skokka langar vegalengdir
en að labba,“ upplýsir Magnea.
Verkir hurfu með Feel Iceland
Gömul íþróttameiðsl hafa lengi
hrjáð Magneu sem fær slæman
verk í vinstra hné þegar hún
hleypur langar vegalengdir.
„Þá er ég að farast í hnénu í tvo
daga á eftir og á í mestu erfið-
leikum með að fara upp og niður
stiga. Því varð úr að ég prófaði
að taka inn Feel Iceland kollagen
og það var eins og við manninn
mælt, ég hætti fljótlega að finna til
í hnénu. Verkurinn hvarf eins og
dögg fyrir sólu, sem er stórmerki-
legt í ljósi þess að ég hef glímt við
þetta áratugum saman. Ég hafði
líka prófað ýmislegt við verknum
en fann aldrei mun fyrr en með
kollageninu frá Feel Iceland,“
greinir Magnea frá.
Hún fær sér væna skeið af kolla-
geni út í kaffi á morgnana og aðra
skeið út í þeyting að vinnudegi
loknum.
„Ég borða ekki kjöt og spái
mikið í næringarefni og hollustu
matvæla. Því set ég hálfa rauð-
rófu út í þeytinginn, en hún er
einstaklega hollur kostur fyrir
íþróttafólk, stútfull af vítamínum
og útvíkkar æðarnar. Ég set líka
hálft epli, gult eða grænt, smá bút
af engifer og ferskt túrmerik ef ég
á það til. Þá bæti ég við frosnum
hindberjum, eplasafa, nokkrum
dropum af sítrónusafa og skeið af
Feel Iceland kollageni, og ef ég á
myntu setur það punktinn yfir i-ið.
Þetta er hollt og gott millimál, og
fjölskyldan elskar þetta. Við lifum
heilsusamlegu lífi, erum dugleg að
borða hollt og stunda hreyfingu,
börnin eru á kafi í fótbolta hjá
Víkingi og maðurinn minn í golfi,“
upplýsir Magnea.
Hún er staðráðin í að halda
áfram inntöku kollagens og tekur
líka inn Joint Rewind frá Feel
Iceland, sem eykur enn á vellíðan í
hnjám og liðum.
„Ég finn hvað þetta gerir mér
gott fyrir hlaupin og mæli heils-
hugar með Feel Iceland-vörunum.
Árangurinn leynir sér ekki en það
er lykilatriði að taka kollagenið inn
samviskusamlega á hverjum degi.
Ég veit að margir taka vítamín upp
á kraft fyrstu vikuna en svo verður
það gjarnan stopulla. Þetta verður
að vera lífsstíll svo það geri gagn.“
Magnea finnur líka stóran mun
á húð sinni, nöglum og hári.
„Þeir sem þekkja mig spyrja
hvaða bætiefni ég sé að taka því
húðin er svo góð. Það sama á við
um hárið. Fyrir fáeinum árum fór
ég að finna fyrir hárlosi en eftir
að ég fór að taka inn Feel Iceland
kollagen varð hárlosið minna og
hárgreiðslukonan, sem klippt
hefur mig árum saman, spurði mig
hvaða vítamín ég væri eiginlega að
taka því rótin væri orðin svo þykk
af nýjum hárum sem sprottið hafa
fram. Neglurnar eru líka harðar
og fallegar. Kollagenið gerir því
sannarlega fjölþætt gagn.“ n
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars á eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og
heilsu, Hagkaupi, Fjarðarkaupum,
Apótekaranum, Fríhöfninni, Jurta-
apótekinu, Krónunni og Nettó.
Nánari upplýsingar á
feeliceland.com.
Magnea Huld
tekur inn Amino
Marine Collagen
frá Feel Iceland
og líka bæti-
efnið Joint
Rewind frá Feel
Iceland.
2 kynningarblað A L LT 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR