Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 23
Krabbameinsforvarnir hafa skilað miklum árangri á Íslandi. Meðal annars hafa þær dregið verulega úr tóbaksnotkun og skim- anir hafa bjargað mörgum mannslífum. Með stuðningi yfirvalda er samt hægt að gera enn betur auk þess sem þörf er á að auka þekkingu almennings á áhættuþáttum sem og hvernig hægt er að draga úr líkum á krabbameinum. „Með því að huga að heilsunni og temja sér hollar venjur er hægt að minnka hættuna á krabba- meinum verulega. Lífsstíll sem felst meðal annars í að neyta ekki tóbaks, stunda reglulega hreyfingu, borða hollan mat í hæfilegu magni, sporna gegn ofþyngd, sleppa eða takmarka áfengisneyslu, nýta skim- anir fyrir krabbameinum og varast útfjólubláa geisla sólar og ljósa- bekkja dregur úr líkunum,“ segir Sigrún Elva Einarsdóttir, teymis- stjóri og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélag- inu. En almenning skortir ennþá betri þekkingu á hvað hægt er að gera til að draga úr líkunum. Hafa haft mikil og afgerandi áhrif „Vitað er að með forvörnum mætti koma í veg fyrir allt að helming krabbameinstilfella. Tóbaks-, áfengis- og sólarvarnir skipta miklu máli, sem og regluleg hreyfing, hollt og fjölbreytt mataræði í hæfilegu magni og ýmislegt fleira sem sjá má á heima- síðunni okkar krabb.is/forvarnir,“ segir Sigrún. „Þá er mikilvægt að minna á einkenni sem geta bent til krabbameina til að fólk láti kíkja á sig ef eitthvað er grunsamlegt. Við komum fræðslu og hvatningu um heilbrigða lífshætti til skila á sem fjölbreyttastan hátt. Tóbaksvarnir sem hófust af krafti á seinni hluta 20. aldar hafa skilað því að nú sjáum við fækkun í greiningum lungnakrabbameins,“ segir Sigrún. „Átak gegn notkun ljósabekkja og aukin meðvitund um mikilvægi sólarvarna hafa líka haft mikið að segja. Þá er áætlað að með skimun hafi yfir 450 íslenskum konum verið forðað frá dauða vegna leghálskrabbameins á árunum 1972-2020. Ef horft er á íslenskt samfélag í heild þá myndi krabbameins- tilfellum fækka og um leið myndi draga úr öðrum sjúkdómum og almennt heilsufar batna ef fleiri huguðu betur að mataræði sínu og skammtastærðum og borðuðu meira af grænmeti, ávöxtum og heilkorna vörum og forðuðust mikið unnar vörur og óholla skyndibita, ásamt því að stunda reglulega hreyfingu,“ útskýrir Sigrún. „Á heimsvísu er það hins vegar tóbaksnotkun sem er helsti orsakavaldur krabbameina sem væri hægt að fyrirbyggja.“ Ná lengra með stjórnvöldum „Það væri sannarlega hægt að bæta forvarnir með auknu sam- starfi við stjórnvöld. Til að hafa afgerandi áhrif á samfélagið skila samhæfðar, fjölbreyttar aðgerðir Forvarnir skila raunverulegum árangri Sigrún Elva Einarsdóttir, teymisstjóri og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, segir að krabbameinsforvarnir hafi skilað miklum árangri á Íslandi, en að það sé hægt að gera enn betur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR mestum árangri, það sýndu þær feikilega árangursríku aðgerðir sem ráðist var í til að stemma stigu við reykingum hérlendis,“ segir Sigrún. „Ráðist var í fjölbreyttar aðgerðir eins og að setja viðvar- anir á tóbaksvörur, banna að þær væru sýnilegar á sölustöðum og sett voru víðtæk reykingabönn á ýmsum vettvangi á sama tíma og Krabbameinsfélagið skilaði öflugri fræðslu til almennings. Áhrifin af þessu voru afgerandi fyrir heilsu- far þjóðarinnar til langs tíma litið, kannski meiri en margir gera sér grein fyrir. Það er líka ekki nóg að fræða fólk um hvað það eigi helst að gera ef umhverfi þeirra styður ekki þá þætti og vinnur jafnvel gegn þeim,“ segir Sigrún. „Hugsanlegar aðgerð- ir yfirvalda geta snúið að verðlagi á mismunandi matvöru, hversu auð- velt aðgengi er að áfengi, hvernig umhverfi auðveldar hreyfingu og útivist og fjölmargt fleira.“ Stóra myndin skiptir mestu „Það getur enginn gert „allt rétt“ þegar kemur að krabbameinsfor- vörnum en öll skref í rétta átt eru góð. Það er til dæmis alltaf betra að drekka minna af áfengi og sjaldnar, jafnvel þó að maður sjái ekki fram á að hætta því alveg. Eins er alltaf betra að hreyfa sig eitthvað en ekki neitt og það sama gildir um mataræðið og fleira,“ segir Sigrún. „Fólk þarf að vera meðvitað um að það er stóra mynstrið í lífsstílnum sem hefur mest áhrif, litlu hlutirnir sem við gerum nær alla daga og hættum að taka eftir. Fólk ætti því meðvitað að reyna að venja sig á að taka heilsusamlegar ákvarðanir í mataræði og hreyfingu og auð- vitað er best ef fólk nær að venja sig svo á heilsusamlegan lífsstíl að góðar ákvarðanir verða hluti af daglega taktinum. Það vita alls ekki allir að mataræði og ástundun hreyfingar hefur áhrif á krabbameinslíkur og það sama má segja um tengsl áfengisneyslu við auknar líkur á krabbameini,“ segir Sigrún. „Þetta sáum við í nýlegri könnun sem við gerðum, en nær helmingur fólks heldur að þessir þættir hafi ekki áhrif eða segist ekki vita hvort þeir hafi áhrif.“ Mikilvægt að fylgjast með einkennum „Fyrir utan forvarnirnar leggjum við einnig mikla áherslu á að hvetja fólk til að leita til læknis ef vart verður einkenna sem gætu bent til krabbameins. Þó að vissulega geti verið um mein- lausari kvilla að ræða skiptir máli að bregðast við, því almennt eru betri líkur á sem bestum árangri af krabbameinsmeðferð því fyrr sem gripið er inn í,“ segir Sigrún. „Einkennin geta verið af ýmsu tagi en almennt séð, ef eitthvað við líkamsstarfsemi okkar er öðruvísi en venjulega, án skýrra orsaka og stendur yfir í langan tíma, þá ætti að leita til læknis.“ ■ Hægt er að fá nánari upplýsingar um krabbameinsvalda og finna fjölbreytt fræðsluefni um þá og heilbrigðan lífsstíl á vef Krabba- meinsfélagsins, krabb.is/forvarnir. Til að hafa afger- andi áhrif á sam- félagið skila samhæfðar, fjölbreyttar aðgerðir mestum árangri, það sýndu þær feikilega árangursríku aðgerðir sem ráðist var í til að stemma stigu við reyk- ingum hérlendis. Sigrún Elva Einarsdóttir. Það getur enginn gert „allt rétt“ þegar kemur að krabbameins- forvörnum en öll skref í rétta átt eru góð. Það er til dæmis alltaf betra að drekka minna af áfengi og sjaldnar, jafnvel þó að maður sjái ekki fram á að hætta því alveg. Sigrún Elva Einarsdóttir. Sl 70 ára afmælisráðstefna Krabbameinsfélags Íslands: Krabbamein á Íslandi árið 2021 - horft til framtíðar 1951 2021 Brautryðjendastarf í 70 ár 70 ára afmælisráðstefna Krabbameinsfélags Íslands fer fram fimmtudaginn 26. ágúst kl. 16:30 - 18:45 í Háskólanum í Reykjavík. Á ráðstefnunni verður fjallað um krabbamein á Íslandi í víðu samhengi, með hliðsjón af markmiðum Krabba meinsfélagsins um að fækka þeim sem fá krabba mein, fjölga þeim sem lifa og bæta lífsgæði sjúklinga og aðstandenda. Húsið opnar kl. 16:30, dagskrá hefst kl. 16:45 og áætluð ráðstefnulok eru kl. 18:45. Þátttaka er ókeypis. Léttar veitingar í boði að lokinni dagskrá. Skráning með tölvupósti á netfangið krabb@krabb.is. Dagskrá: Kl. 16:30 – Húsið opnar Setning – Valgerður Sigurðardóttir, formaður Krabbameinsfélagsins Íslands Ávarp forseta Íslands - Hr. Guðni Th. Jóhannesson Faraldsfræði krabbameina á Íslandi – Laufey Tryggvadóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins Helmingi færri – vilji er ekki allt sem þarf - Birna Þórisdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabba meinsfélaginu Að greinast með krabbamein, staðan í dag og horft til framtíðar - Agnes Smáradóttir, yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítala Framfarir í krabbameinsmeðferð og for vörnum - sníðum stakk eftir vexti - Sigurdís Haraldsdóttir, dósent í krabba meinslækningum við HÍ og yfirlæknir í krabbameins- lækningum á Landspítala Líkamleg einkenni og tilfinning fyrir að eitthvað sé að hefur mikið vægi í aðdraganda grein- ingar - niðurstöður úr stórri íslenskri rannsókn - Jóhanna Eyrún Torfadóttir, sérfræð ingur hjá Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins Áskoranir 70 ára afmælisbarns? – Valgerður Sigurðardóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands Ávarp landlæknis – Alma Dagbjört Möller, landlæknir Kl. 18:45 – Ráðstefnuslit Slóð á streymi: livestream.com/krabb/radstefna26082021 MIÐVIKUDAGUR 25. ágúst 2021 5KR ABBAMEINSFÉLAGIÐ 70 ÁR A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.