Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 2
Tók viðtal við afmælisbarnið Hjónin Valerie Viel og Francois Dupuis ætla að búa í skútunni sinni Cybelle 17 í Hafnarfjarðarhöfn í vetur. Þau hafa ferðast um Norður- löndin síðustu níu ár og eru aftur lögð af stað í ferðalag eftir faraldurinn. benediktboas@frettabladid.is FERÐALÖG „Okkur finnst skemmti- legt að upplifa nýja hluti. Ég er hættur að vinna og við erum frjáls,“ segir Francois Dupuis sem ætlar að hafa vetursetu í höfninni í Hafnar- firði ásamt konu sinni Valerie Viel. Francois og Valerie hafa ferðast um Norðurlöndin síðustu níu ár á skútu sinni Cybelle 17. Þau seldu allt sitt hafurtask heima í Frakk- landi, keyptu sér bát og hófu ævin- týraferð sem engan endi ætlar að taka. Reyndar stöðvaði Covid-far- aldurinn ævintýraför þeirra en þau lögðu aftur af stað í nýtt ævintýri um miðjan júlí og komu hingað frá Írlandi. Þau voru þrjú ár að ferðast um Svíþjóð, Noreg, Finnland, Svalbarða og Eistland meðal annars og höfðu vetursetu eitt árið í Bodö í Noregi. „Fólkið á norðurslóðum er frábært. Ef við erum inn í bæ með kort þá stoppar fólk okkur og spyr hvort við séum villt. Þannig er það ekki í Frakklandi. Það tala líka allir ensku þannig það er ekkert vandamál. Við tölum reyndar ekki íslensku en ætlum að læra einhver orð,“ segir Valerie. Hún segir að báturinn sé frábær til að ferðast í og jafnvel enn betri til að búa í. Þau eiga stóra fjölskyldu og segja að með internetinu sé heimurinn lítill og það sé ekkert mál að hitta börn og barnabörn þegar þau vilja. „Það merkilega við Ísland er að þau vilja öll koma til landsins. Tvö barna okkar komu til Stokk- hólms en annars hafa þau ekkert verið mjög spennt að koma og hitta okkur. Það er hrós til ykkar Íslendinga að þegar við tilkynntum að við ætluð- um að hafa vetursetu hér voru allir mjög spenntir og vildu öll börnin koma.“ Valerie segir að hún framkalli myndir fyrir börn og barnabörn og sendi þeim reglulega. Hún hefur tekið gríðarlega mikið af myndum nú þegar og býst við að senda hverju barni um þúsund myndir. Þá fá þau einnig senda minjagripi. „Þau fara með það í skólann og sýna og eru stolt af því hvað afi og amma eru að gera,“ segir Francois. „Það eru ekki mörg frönsk börn sem vita meira en þau um Noreg og Finnland. Og nú fá þau að vita allt um Ísland,“ bætir Valerie við og hlær. Þau sigldu hingað til lands frá Írlandi og stoppuðu í Vestmanna- eyjum og Hvalfirði áður en þau komu til Hafnarfjarðar þar sem þau ætla að dvelja í vetur. Nema þeim detti í hug að sigla eitthvert. Þá gera þau það. „Við höfum verið einn vetur í Bodö og það var ekkert mál. Þetta snýst um að klæða veðrið einfald- lega af sér og svo fer vel um okkur í bátnum,“ segir Valerie og stendur upp til að kveðja. Hún er nefnilega að fara í heita pottinn í sundlaug Hafnarfjarðar. n Frönsk hjón með vetursetu í skútu í Hafnarfjarðarhöfn Valerie Viel og Francois Dupuis lögðu af stað í ævintýraferð sína um miðjan júlí. Þau seldu allt sitt fyrir níu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Í ársskýrslu Ríkisend- urskoðunar sem birtist í vikunni kemur fram að 52 virkir sjóðir eða stofnanir hafa aldrei staðið skil á ársreikningi til Ríkisendurskoðunar þrátt fyrir árlegar ítrekanir. Kemur fram í skýrslunni að árlega vantar skil frá um 30-40 prósentum sjóða og stofnana á skrá. Hefur Ríkisendurskoðun margoft bent stjórnvöldum á að virkari laga- úrræði þurfi til að knýja fram skil á ársreikningum þessara aðila án þess að brugðist hafi verið við þeim ábendingum, segir í skýrslunni. Í skýrslu fyrir skil ársreikn- inga 2019 kemur fram að í árs- lok 2020 voru 696 virkar sjálfs- eignarstofnanir og sjóðir sem falla undir sérstök lög um sjóði og stofn- anir. Alls bar þó 705 stofnunum og sjóðum að standa skil á ársreikningi og skýrslu til Ríkisendurskoðunar en á árinu 2020 voru staðfestar sjö nýjar skipulagsskrár og 16 stofnanir eða sjóðir voru lagðir niður. Af þessum 705 aðilum skiluðu þó aðeins 473 ársreikningi og skýrslu til Ríkisendurskoðunar vegna rekstrarársins 2019. n Sjóðir og stofnanir sleppa því að skila Skúli Eggert Þórðarson ríkisendur- skoðandi er orðinn þreyttur á að- gerðaleysi stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Það er hrós til ykkar Íslendinga að þegar við tilkynntum að við ætluðum að hafa vetur- setu hér voru allir mjög spenntir og vildu öll börnin koma. Valerie Viel. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra brá á leik eftir ríkisstjórnarfund í gær og tók drottningarviðtal við Svandí si Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sem átti afmæli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR lovisa@frettabladid.is KJARAMÁL Boðað verkfall f lug- umferðarstjóra frá klukkan fimm til tíu á þriðjudagsmorgun gæti haft mikil áhrif á starfsemi Icelandair. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að treyst sé á að aðilar nái saman í tæka tíð svo það komi ekki til verkfalls. „Rask- anir á flugi á þessum tíma geta haft mikil áhrif á starfsemi Icelandair, þar sem leiðakerfi okkar byggir á því að f lugvélar okkar koma snemma morguns frá Bandaríkj- unum og fljúga stuttu síðar áfram til Evrópu,“ segir Ásdís. „Þennan tiltekna morgun eru sjö komur frá Bandaríkjunum á áætlun og 14 brottfarir til Evrópu. Við erum að skoða hvernig við gætum brugð- ist við ef til þess kæmi og myndum í því tilfelli að sjálfsögðu leggja mikla áherslu á að upplýsa farþega okkar með eins góðum fyrirvara og mögu- legt verði einhverjar breytingar á flugáætlun.“ n Treysta á að aðilar nái saman Flugumferðarstjórar hafa boðað til verkfalls á þriðjudag. 2 Fréttir 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.