Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 26
Verkefnið sem Berglind Ósk Einarsdóttir vinnur að og nefnist Hlutverk MITF í hindrun ónæmis- svars sortuæxla, hlaut 6,2 millj- óna króna styrk úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins árið 2021. Árlega greinast tæplega 50 ein- staklingar á Íslandi með sortuæxli og að meðaltali látast 11 úr sjúk- dómnum. Sortuæxli segir Berglind að eigi sér uppruna í litfrumum líkamans, sem eru þær frumur sem meðal annars mynda fæðingar- bletti. „Litfrumur geta orðið ill- kynja vegna skemmda í erfðaefni frumnanna, til dæmis af völdum útfjólublás ljóss, sem veldur því að þær mynda sortuæxlisfrumur sem fjölga sér og mynda sortuæxli. Sortuæxlisfrumur eru sérstök undirtegund af krabbameins- frumum.“ MITF kannski einn þáttur „Að öllum líkindum myndast reglulega illkynja frumur, líkt og sortuæxlisfrumur, í líkamanum sem ónæmiskerfið okkar ræðst á og drepur. Að sama skapi er lík- legt að við smitumst reglulega af vírusum og bakteríum, en vitum ekki af því þar sem ónæmiskerfið eyðir þeim áður en þau ná að hafa áhrif. Til þess að illkynja frumur, líkt og vírusar og bakteríur, lifi af í líkamanum, þá verður umhverfið að vera þeim hagstætt svo að þau geti lifað af, vaxið og fjölgað sér. Eitt af mörgum hlutverkum ónæmiskerfisins er að þekkja ill- kynja frumur eða aðskotahluti sem eiga ekki heima í líkamanum. En í einhverjum tilfellum bregst þetta kerfi og við verðum veik eða það myndast æxli.“ Markmið hópsins er að rannsaka tengsl ónæmiskerfisins og sortu- æxlisfrumna, þá sérstaklega með tilliti til ákveðins próteins sem má finna í sortuæxlisfrumunum, sem nefnist MITF. „Við teljum að þetta prótein gæti haft áhrif á getu sortu- æxlisfrumna til þess að komast hjá árás T-drápsfrumna með því að tjá viðtaka á frumuhimnunni sem heitir PD-L1, en þetta byggjum við á bráðabirgðaniðurstöðum okkar. Það eru örugglega mjög margar ástæður fyrir því að aðskotahlutir komist fram hjá þessum vörnum líkamans, en einn af þáttunum gæti verið stýrt af þessu tiltekna pró- teini, MITF, í sortuæxlisfrumum. Hingað til hefur ekki verið sýnt fram á það.“ Bylting í krabbameinsmeðferðum Til eru nokkrar tegundir ónæmis- meðferða gegn krabbameinum og ónæmismeðferðir sem hafa gjörsamlega umbylt meðferðum gegn sortuæxli. „Eitt af ónæmis- lyfjunum byggir á því að koma í veg fyrir að sortuæxlisfrumur geti nýtt sér PD-L1 viðtakann til að afvirkja T-drápsfrumur. Okkar verkefni er þá að kanna hvort MITF hafi hlutverk í að stjórna því hvort PD-L1 sé til staðar eða ekki, sem að lokum getur stýrt því hvort T-frumurnar séu afvirkj- aðar, eða ekki.“ Aðspurð hvort niðurstöður gætu haft áhrif á aðrar tegundir krabba- meina segir Berglind: „MITF er til staðar í litfrumum og hefur sér- stök áhrif á þær. En það er einnig til staðar í öðrum frumum en er minna rannsakað. Mögulega gætu jákvæðar niðurstöður úr þessari rannsókn haft áhrif á meðferðir og greiningu á öðrum tegundum krabbameina, en það þarf að rann- saka frekar.“ Púsl þekkingar og framfara Ónæmismeðferðir við krabba- meinum eru tiltölulega nýsam- þykktar og hafa á fáum árum virkað afar vel fyrir marga sjúkl- inga. „Eftir að við fórum að skilja hið mikilvæga samspil á milli krabbameinsfrumna og ónæmis- kerfisins, hófu fleiri vísindahópar að rannsaka það frekar. Undanfar- in ár hefur skilningur og framför vísindasamfélagsins aukist gífur- lega varðandi líffræði sortuæxla og sterk tengsl þess við ónæmiskerfið. Við byggjum á þessari þekkingu. Þetta er fegurðin við vísindin; það leggja allir til eitt og eitt púsl í hið stóra samhengi hlutanna.“ Á byrjunarstigi „Rannsóknin er á byrjunarstigi,“ segir Berglind. „Við þurfum að kanna betur bráðabirgðaniður- stöðurnar til að tryggja að þessi tengsl sem við höfum séð séu til staðar í f leiri tilraunamódelum en því sem við höfum nýtt okkur hingað til. Ef tengslin eru raun- verulega til staðar, líka í sýnum frá sjúklingum og öðrum módelum, þá áætlum við að það taki um það bil þrjú ár að klára allar tilraunir og skrifa vísindagrein og birta í rit- rýndu vísindatímariti.“ Hvert er svo næsta skref eftir þessa rannsókn? „Ein vísindaspurning framleiðir ávallt fjöldann allan af nýjum rannsóknarspurningum. Þessu verkefni verður því ekkert endi- lega lokið eftir þrjú ár. Út frá þessu mun að öllum líkindum vaxa alls konar afleggjarar sem við munum gróðursetja í frjóan jarðveg og halda áfram að skoða. Ef við getum sýnt fram á tengsl á milli hlutverks þessa tiltekna próteins í samspili sortuæxla og ónæmiskerfisins, þá munu þær niðurstöður hafa áhrif á þekk- ingu okkar á líffræði sortuæxla sem væri hægt að nýta sem grunn í rannsóknum, greiningu og með- ferðum við sortuæxlum.“ n Samspil ónæmiskerfisins og sortuæxla Verkefnið sem Berglind vinnur að hlaut 6,2 milljóna styrk frá Vísindasjóði Krabbameins­ félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Um Vísindasjóðinn Vísindasjóðurinn var stofn­ aður í lok árs 2015 af Krabba­ meinsfélagi Íslands, svæða­ félögum og stuðningshópum. Á fimm árum hefur Vísinda­ sjóðurinn veitt 58 styrki, alls 316 milljónir króna. Nú í maí 2021 voru veittar 89 milljónir úr sjóðnum til 11 rannsóknar­ verkefna. Markmið sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífs­ gæðum sjúklinga. Berglind er nýdoktor í hópi Eiríks Steingrímssonar við Læknadeild HÍ. Markmið hópsins er að rannsaka hvernig sortuæxlisfrumur komast hjá því að vera drepnar af ónæmiskerfinu. C100 - M60 - Y0 - K10 C0 - M0 - Y0 - K15 Við óskum Krabbameinsfélagi Íslands til hamingju með 70 ára afmælið 8 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURKR ABBAMEINSFÉLAGIÐ 70 ÁR A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.