Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s 1 5 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 6 . Á G Ú S T 2 0 2 1 HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/audisalur Rafmögnuð nærvera sem tekið verður eftir Q4 e-tron Verð frá 5.790.000 kr. Sýningarbíll lentur á Laugavegi Veruleg aukning hefur orðið í sölu sumarhúsa og verðið rokið upp. Faraldurinn er líklegasta skýringin enda hafa Íslendingar ferðast mun minna erlendis vegna hans. Fjölmargir eldri borgarar hafa hætt við að selja sína bústaði. ser@frettabladid.is FASTEIGNIR „Það er óhætt að segja að það hafi orðið sprenging í sölu sum­ arhúsa á þessu og síðasta ári,“ segir Bárður H. Tryggvason, sölustjóri hjá fasteignasölunni Gimli. „Ég er búinn að vera marga áratugi í þessu fagi og man ekki annað eins,“ bætir hann við. Þessu samsinnir Heimir Hafsteinn Eðvardsson, fast­ eignasali hjá Fasteignalandi, sem um árabil hefur sinnt fasteignavið­ skiptum á þessu sviði: „Það er selj­ endamarkaður, alveg klárlega, það fer allt á yfirverði.“ Aukinn áhuga landsmanna á því að eignast sumarbústaði má að miklum hluta rekja til kórónaveiru­ faraldursins sem hefur haldið fólki heima, en ferðalög Íslendinga um eigið land hafa af hans sökum stór­ aukist. „Þar við bætist,“ segir Bárður, „að raunvextir eru neikvæðir nú um stundir og fólk lítur á sumar­ húsakaup sem fjárfestingu sem gefi ágætlega af sér. Það veit að verðið er á uppleið.“ Heimir Hafsteinn segir að fjölda­ margir sumarbústaðareigendur í hópi aldraðs fólks hafi hætt við að selja bústaði sínu í pestarfárinu síð­ asta hálfa annað árið. „Þar af leiðandi hefur komið minna inn af eignum en við áttum von á. Það bara vantar bústaði.“ Bárður er ekki frá því að verðhækk­ un á sumarhúsum frá því á fyrri hluta síðasta árs sé í námunda við 30 prósent. „Það þótti vel í lagt að kaupa hefðbundna stærð af bústað fyrir 40 milljónir í fyrra, en núna þykir það ódýrt.“ Hækkunin kemur á sama tíma og hækkun íbúðafasteigna en eins og flestir vita hefur verð þeirra rokið upp á undanförnum misserum. Sér­ staklega á höfuðborgarsvæðinu og hefur faraldurinn ekkert dregið úr þeirri sprengju. Þeir benda báðir á að verð á frí­ stundahúsum hafi staðið í stað um árabil, allt þar til pestin setti mönn­ um stólinn fyrir dyrnar. „Það var mikið framboð á bústöð­ um fyrir pestarfárið, en núna er bara eftirspurn,“ bendir Bárður á og nefnir enn eina ástæðuna fyrir stórauknum áhuga landans á afdrepi úti í sveit. „Það er betra að kaupa en byggja. Enn er dýrara að byggja en kaupa, hvað svo sem síðar verður.“ En hvaða svæði er vinsælast? „Suðurlandið,“ svarar Heimir Haf­ steinn. „Þar sem þjónustan og frí­ stundamöguleikarnir eru mestir. Það skiptir flesta miklu máli.“ n Sölusprenging í sumarbústöðum Listamaðurinn Hörður Torfason, stofnandi Samtakanna '78, fagnar því að vera með á dagskrá Hinsegin daga í ár eftir að hafa fengið skilaboð um að það hafi ekki verið pláss fyrir hann á hátíðinni til þessa. SJÁ SÍÐU 8 FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR gar@frettabladid.is SKÓLAR „Ég og stjórnin stóðum saman og ég ákvað bara að standa og falla með því og sagði starfi mínu lausu,“ segir Kristín Jónsdóttir Njarð­ vík, forstöðumaður Endurmennt­ unar Háskóla Íslands til 23 ára, sem sagði upp störfum í lok júní. Kristín sagði upp í kjölfar ágrein­ ings við mannauðsskrifstofu háskól­ ans um leiðir til að rannsaka meinta óánægju starfsfólks. „Ég ákvað í samráði við stjórn að fara ákveðna leið í því að grennslast fyrir um þetta enn frekar. Fulltrúar úr stjórnsýslu innan háskólans höfðu áhuga á að fara aðra leið,“ segir Kristín. Róbert H. Haraldsson, nýr for­ maður stjórnar Endurmenntunar HÍ, segir að ef athugasemdir berist varðandi einstakar starfseiningar skólans séu þær skoðaðar hjá mann­ auðssviði. Eftir atvikum sé gripið til viðeigandi ráðstafana. SJÁ SÍÐU 4 Forstöðumaður Endurmenntunar HÍ hættir eftir deilu við mannauðsstjórn Það þótti vel í lagt að kaupa hefðbundna stærð af bústað fyrir 40 milljónir í fyrra, en núna þykir það ódýrt. Bárður H. Tryggvason, sölustjóri hjá Gimli. Kristín Jónsdóttir Njarðvík, fyrr- verandi forstöðu- maður Endur- menntunar HÍ.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.