Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 4 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 1
Er ferðavagninn tryggður?
Hugsum í framtíð
Þú færð okkar besta verð og getur tryggt nýja
ferðavagninn þinn á örfáum mínútum á tm.is
Nara Walker vakti mikla
athygli á Íslandi í kjölfar fang-
elsisdóms sem hún fékk fyrir
alvarlega árás á fyrrverandi
maka. Mál hennar hjá Mann-
réttindadómstól Evrópu
varðar meint hirðuleysi lög-
reglunnar gagnvart ásök-
unum um heimilisofbeldi.
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur ákveðið að taka til
efnismeðferðar tvö mál Nöru Wal-
ker, sem sakfelld var hér á landi
fyrir að bíta hluta úr tungu fyrr-
verandi eiginmanns síns árið 2018.
Þetta kemur fram í tilkynningu á
vef dómsins sem birt var á mánu-
dag.
Fyrri kæra Nöru til dómsins
varðar dóminn sem hún fékk fyrir
líkamsárásina og málsmeðferðina
í aðdraganda dómsins. Nara bar
fyrir sig sjálfsvörn og bar vitni um
að fyrrverandi eiginmaður hennar
hefði ítrekað beitt hana of beldi.
Umrætt kvöld hefðu hann og önnur
kona sem viðstödd var, ráðist á
hana. Nara var dæmd í átján mán-
aða fangelsi fyrir árás á fyrrverandi
eiginmann sinn og sat inni í um
þrjá mánuði.
Síðari kæra Nöru varðar meðferð
lögreglunnar á kærum hennar gegn
fyrrverandi eiginmanni árið 2017
vegna ítrekaðs heimilisof beldis
sem hún segir hann hafa beitt
sig bæði á Íslandi og í Bretlandi á
árunum 2016 og 2017. Í apríl 2019
tilkynnti lögregla Nöru að rann-
sókn málanna hefði verið hætt og
þau felld niður. Ríkissaksóknari
staðfesti þá ákvörðun annars vegar
á þeim grunni að Ísland skorti lög-
sögu um hluta kæruefnanna og
hins vegar af því að þau væru ekki
líkleg til sakfellingar.
Með því að hafa hvorki rann-
sakað nægilega kærur hennar um
ítrekað heimilisof beldi né tekið
mið af þeim við rannsókn saka-
málsins gegn henni, þar sem hún
bar fyrir sig sjálfsvörn, telur Nara
að ríkið hafi virt að vettugi mikil-
væg sönnunargögn í máli hennar og
með því brotið gegn 3. grein Mann-
réttindasáttmálans um bann við
pyntingum og ómannúðlegri með-
ferð eða refsingu og gegn 8. grein
um friðhelgi einkalífs heimilis og
fjölskyldu.
Hún telur íslenska ríkið einn-
ig hafa brotið gegn jafnræðisreglu
Mannréttindasáttmálans og að hún
hafi fengið síðri málsmeðferð vegna
kyns síns og þjóðernis. n
Mál Nöru Walker til meðferðar hjá MDE
Nara Walker.
Ferðamenn nutu náttúrunnar við Svínafellsjökul sem er skriðjökull og fellur úr Öræfajökli. Svínafellsjökull teygir úr sér niður á flatlendið ofan við Freysnes. Jökullinn hopar hratt og þar myndast nú
lón eins og við flesta skriðjökla við rætur Vatnajökuls. Stuttur akstur er frá þjóðveginum og greiðfært að jöklinum. Gönguleið frá bílastæði er auðfarin og stutt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
toti@frettabladid.is
SAMFÉLAG Sjálfur Bassi Maraj, raun-
veruleikastjarna og tónlistarmaður,
er bókaður í tvígang á Þjóðhátíð í
Eyjum þar sem hann mun troða upp
á Húkkaraballinu á fimmtudags-
kvöldinu og svo aftur á tónleikum
föstudagskvöldsins.
„Úff, ég hef sko aldrei verið jafn
pepp,“ segir Bassi en bætir við að
hann hafi hrokkið við þegar hann
var beðinn um að skemmta á Þjóð-
hátíð, sem hann elskar að eigin sögn.
„Ég var alveg í sjokki.“ SJÁ SÍÐU 26
Boðið frá Eyjum
var algjört sjokk
Bassi Maraj.