Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 13
Blaða- og tímaritsgreinar sem ritaðar eru í góðri trú hljóta að hafa það að markmiði að sýna umfjöllunarefnið í nýju ljósi og vera þannig gagnlegt efnislegt framlag til málefnalegrar umræðu. Það eru því ávallt vonbrigði að rekast á greinar sem afvegaleiða, drepa málum á dreif og / eða varpa hulu yfir raunveruleikann fremur en að upplýsa og fjalla um staðreyndir. Í Morgunblaðinu 10. júlí sýndi ég með rökum hversu klisju kenndur og villandi málflutningur þeirra er sem vilja gera inngöngu Íslands í ESB að aðalstefnumáli sínu fyrir þing- kosningarnar næstkomandi haust. Lagði ég áherslu á að umfjöllun um slík alvörumál yrði að taka mið af raunsæi (d. realpolitik) en ekki hugarburði eða ímyndunum á borð við þær sem því miður einkenndu Fréttablaðsgrein Þorsteins Pálssonar 8. júlí síðastliðinn. Í nýrri grein Þorsteins 15. júlí er sami tónn sleginn strax í upphafi þegar hann segir að oft sé „árang- ursríkara í pólitík að hræða fólk frá stefnu andstæðinganna en að fá það með rökum til að aðhyllast eigin málstað.“ Svo er að sjá sem hann beiti í þessum tilgangi afbökunum, ýkjum og rangfærslum. Ég hvet alla til að lesa áðurnefnda Morgunblaðs- grein mína og bera saman rökfærslur okkar Þorsteins til að meta hvor okkar byggir á traustari grunni. Það er illa komið fyrir fyrrverandi formanni og varaformanni Sjálf- stæðisf lokksins þegar þau hafa gengið í lið með þeim sem vilja grafa undan sjálfstæði þjóðar- innar með staðlausum stöfum og hræðsluáróðri; með þeim sem vilja að Íslendingar gefi frá sér til útlanda aftur stjórn eigin mála sem þeir svo lengi börðust fyrir að fá inn í landið. Framsetning Þorsteins ber ekki með sér að hann hafi fylgst með þróun alþjóðamála síðastliðna áratugi eða gert sér grein fyrir að gagnaðili okkar í EES-samningum, Evrópusambandið (ESB), hefur stökkbreyst á þeim tæpu 30 árum sem liðin eru frá samningsgerðinni. Þorsteinn lætur eins og tíminn hafi staðið í stað frá því að Ísland gerðist aðili að EFTA og síðar EES. Umfjöllun Þorsteins er fyrir vikið hvorki raunsæ né málefnaleg. Að gefnu tilefni er því skylt að árétta nokkur atriði: Íslendingar gerðu viðskiptasamn- ing við Efnahagsbandalag Evrópu 1993, EES-samninginn, en hafa aldrei samþykkt að ganga í pólitískt banda- lag við ESB eða lúta forræði þess. Í áðurnefndri Morgunblaðsgrein minni vakti ég athygli á því hvernig ESB seilist til sífellt meiri áhrifa gagn- vart aðildarríkjunum, bæði í utan- ríkis- og innanríkismálum. Frammi fyrir þeirri stöðu er ekki heiðarlegt að segja að EES-samningurinn hafi „eflt“ fullveldi Íslands. Að líkja saman aðild að Atlants- hafsbandalaginu (NATO) og ESB er með sama hætti óviðeigandi, því samstarf á vettvangi varnarbanda- lagsins hefur alla tíð miðað að því að forða erlendum afskiptum af innan- Höldum vöku og sýn Arnar Þór Jónsson skipar 5. sætið á framboðslista Sjálfstæðis- f lokksins í SV-kjördæmi ríkismálum bandalagsríkjanna og tryggja rétt þeirra til að stýra innri málum sínum sjálf. NATO eru ekki samtök með yfirþjóðlegu valdi eins og ESB – og getur því ekki skuld- bundið aðildarríki sín til neins sem þau ekki samþykkja sjálf hverju sinni. Smáríki eru peð á hinu fjölþjóð- lega taflborði ESB. Í stað þess að full- valda ríki setji sín eigin lög að undan- genginni gagnrýninni umræðu á löggjafarþingi viðkomandi þjóðar er í Brussel látlaust unnið að styrkingu yfirþjóðlegs valds. Í stað lýðræðis- legs réttarríkis reiðir hið yfirþjóðlega vald sig á ólýðræðislega lögstjórn. Hinn rauði þráður er andstaða við raunverulegt staðbundið lýðræði, þar sem borgararnir eiga kost á að tempra meðferð ríkisvaldsins. Þegar valdhafar missa trú á getu þjóða til að marka eigin braut fellur lýðræðis- og frjálslyndisgríman. Alræðisógnin verður þá raunveruleg. Leiðin til ánauðar hefur fyrir löngu verið kortlögð, meðal annars af hag- spekingnum Hayek. Helstu kenni- leiti á þeirri braut er ríkisvæðing hag- kerfisins, stigvaxandi stéttabarátta, aukin ríkisíhlutun á öllum sviðum, æ umfangsmeira skrifræði, skerðing fullveldis og sérstakur varnarmúr um stjórnmálamenn, háskólamenn og embættismenn sem vilja greiða götu ráðandi afla. Allt gerist þetta í skjóli eða með stuðningi eftirláts- samra fjölmiðla sem kjósa í vaxandi mæli að gefa fólki fyrirmæli um leyfi- legar skoðanir og hegðun fremur en að segja fréttir og upplýsa. Í slíku umhverfi freistast furðu margir til þess að kalla hið illa gott og hið góða illt, svo sem með því að kalla stjórnlyndi „frjálslyndi“ og kenna harðræði við „lýðræði“. Við slíka menn er vandi að rökræða. Sem fyrr legg ég þó traust mitt á að almenningur láti ekki leiðast afvega þegar hagur og velferð þjóðarinnar er í húfi, kunni að þekkja rétt frá röngu og greina ljós frá myrkri. n Nýr 9 kg þurrkari með íslensku stjórnborði. Sjálfhreinsandi rakaþéttir. Rafeindastýrð rakaskynjun. Sérkerfi: Blandaður þvottur, ull, útifatnaður, handklæði, tímastillt kerfi, hraðkerfi 40 mín., undirfatnaður og skyrtur. Gildir til og með 31. júlí 2021 eða á meðan birgðir endast. Ný þvottavél og nýr þurrkari frá Siemens Við leggjum áherslu á hágæða vörur og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði. Þvottavél, iQ500 WU 14UTL9DN Fullt verð: 149.900 kr. Kynningarverð: 114.900 kr. Ný 9 kg þvottavél með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. 15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta. Þurrkari, iQ500 WT 45WTA8DN Fullt verð: 149.900 kr. Kynningarverð: 114.900 kr. Tekur mest 9 Tekur mest 9 10 ára ábyrgð á iQdrive mótornum. hraðkerfi 40 mín. hraðkerfi 15 mín. Á kynningarverði í júlí: Þegar valdhafar missa trú á getu þjóða til að marka eigin braut fellur lýðræðis- og frjálslyndisgríman. MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.