Fréttablaðið - 21.07.2021, Page 13
Blaða- og tímaritsgreinar sem ritaðar
eru í góðri trú hljóta að hafa það að
markmiði að sýna umfjöllunarefnið
í nýju ljósi og vera þannig gagnlegt
efnislegt framlag til málefnalegrar
umræðu. Það eru því ávallt vonbrigði
að rekast á greinar sem afvegaleiða,
drepa málum á dreif og / eða varpa
hulu yfir raunveruleikann fremur en
að upplýsa og fjalla um staðreyndir.
Í Morgunblaðinu 10. júlí sýndi ég
með rökum hversu klisju kenndur
og villandi málflutningur þeirra er
sem vilja gera inngöngu Íslands í ESB
að aðalstefnumáli sínu fyrir þing-
kosningarnar næstkomandi haust.
Lagði ég áherslu á að umfjöllun um
slík alvörumál yrði að taka mið
af raunsæi (d. realpolitik) en ekki
hugarburði eða ímyndunum á borð
við þær sem því miður einkenndu
Fréttablaðsgrein Þorsteins Pálssonar
8. júlí síðastliðinn.
Í nýrri grein Þorsteins 15. júlí er
sami tónn sleginn strax í upphafi
þegar hann segir að oft sé „árang-
ursríkara í pólitík að hræða fólk frá
stefnu andstæðinganna en að fá það
með rökum til að aðhyllast eigin
málstað.“ Svo er að sjá sem hann
beiti í þessum tilgangi afbökunum,
ýkjum og rangfærslum. Ég hvet alla
til að lesa áðurnefnda Morgunblaðs-
grein mína og bera saman rökfærslur
okkar Þorsteins til að meta hvor
okkar byggir á traustari grunni.
Það er illa komið fyrir fyrrverandi
formanni og varaformanni Sjálf-
stæðisf lokksins þegar þau hafa
gengið í lið með þeim sem vilja
grafa undan sjálfstæði þjóðar-
innar með staðlausum stöfum og
hræðsluáróðri; með þeim sem vilja
að Íslendingar gefi frá sér til útlanda
aftur stjórn eigin mála sem þeir svo
lengi börðust fyrir að fá inn í landið.
Framsetning Þorsteins ber ekki
með sér að hann hafi fylgst með
þróun alþjóðamála síðastliðna
áratugi eða gert sér grein fyrir að
gagnaðili okkar í EES-samningum,
Evrópusambandið (ESB), hefur
stökkbreyst á þeim tæpu 30 árum
sem liðin eru frá samningsgerðinni.
Þorsteinn lætur eins og tíminn hafi
staðið í stað frá því að Ísland gerðist
aðili að EFTA og síðar EES. Umfjöllun
Þorsteins er fyrir vikið hvorki raunsæ
né málefnaleg. Að gefnu tilefni er því
skylt að árétta nokkur atriði:
Íslendingar gerðu viðskiptasamn-
ing við Efnahagsbandalag Evrópu
1993, EES-samninginn, en hafa aldrei
samþykkt að ganga í pólitískt banda-
lag við ESB eða lúta forræði þess.
Í áðurnefndri Morgunblaðsgrein
minni vakti ég athygli á því hvernig
ESB seilist til sífellt meiri áhrifa gagn-
vart aðildarríkjunum, bæði í utan-
ríkis- og innanríkismálum. Frammi
fyrir þeirri stöðu er ekki heiðarlegt
að segja að EES-samningurinn hafi
„eflt“ fullveldi Íslands.
Að líkja saman aðild að Atlants-
hafsbandalaginu (NATO) og ESB er
með sama hætti óviðeigandi, því
samstarf á vettvangi varnarbanda-
lagsins hefur alla tíð miðað að því að
forða erlendum afskiptum af innan-
Höldum vöku og sýn
Arnar Þór
Jónsson
skipar 5. sætið
á framboðslista
Sjálfstæðis-
f lokksins í
SV-kjördæmi
ríkismálum bandalagsríkjanna og
tryggja rétt þeirra til að stýra innri
málum sínum sjálf. NATO eru ekki
samtök með yfirþjóðlegu valdi eins
og ESB – og getur því ekki skuld-
bundið aðildarríki sín til neins sem
þau ekki samþykkja sjálf hverju
sinni.
Smáríki eru peð á hinu fjölþjóð-
lega taflborði ESB. Í stað þess að full-
valda ríki setji sín eigin lög að undan-
genginni gagnrýninni umræðu á
löggjafarþingi viðkomandi þjóðar er
í Brussel látlaust unnið að styrkingu
yfirþjóðlegs valds. Í stað lýðræðis-
legs réttarríkis reiðir hið yfirþjóðlega
vald sig á ólýðræðislega lögstjórn.
Hinn rauði þráður er andstaða við
raunverulegt staðbundið lýðræði,
þar sem borgararnir eiga kost á að
tempra meðferð ríkisvaldsins.
Þegar valdhafar missa trú á getu
þjóða til að marka eigin braut fellur
lýðræðis- og frjálslyndisgríman.
Alræðisógnin verður þá raunveruleg.
Leiðin til ánauðar hefur fyrir löngu
verið kortlögð, meðal annars af hag-
spekingnum Hayek. Helstu kenni-
leiti á þeirri braut er ríkisvæðing hag-
kerfisins, stigvaxandi stéttabarátta,
aukin ríkisíhlutun á öllum sviðum,
æ umfangsmeira skrifræði, skerðing
fullveldis og sérstakur varnarmúr
um stjórnmálamenn, háskólamenn
og embættismenn sem vilja greiða
götu ráðandi afla. Allt gerist þetta
í skjóli eða með stuðningi eftirláts-
samra fjölmiðla sem kjósa í vaxandi
mæli að gefa fólki fyrirmæli um leyfi-
legar skoðanir og hegðun fremur en
að segja fréttir og upplýsa.
Í slíku umhverfi freistast furðu
margir til þess að kalla hið illa gott
og hið góða illt, svo sem með því
að kalla stjórnlyndi „frjálslyndi“ og
kenna harðræði við „lýðræði“. Við
slíka menn er vandi að rökræða.
Sem fyrr legg ég þó traust mitt á að
almenningur láti ekki leiðast afvega
þegar hagur og velferð þjóðarinnar
er í húfi, kunni að þekkja rétt frá
röngu og greina ljós frá myrkri. n
Nýr 9 kg þurrkari með íslensku stjórnborði. Sjálfhreinsandi
rakaþéttir. Rafeindastýrð rakaskynjun. Sérkerfi: Blandaður
þvottur, ull, útifatnaður, handklæði, tímastillt kerfi,
hraðkerfi 40 mín., undirfatnaður og skyrtur.
Gildir til og með 31. júlí 2021 eða á meðan birgðir endast.
Ný þvottavél og
nýr þurrkari frá
Siemens
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Þvottavél, iQ500
WU 14UTL9DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Ný 9 kg þvottavél með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín.
Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð.
15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið
leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta.
Þurrkari, iQ500
WT 45WTA8DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Tekur mest
9
Tekur mest
9
10 ára
ábyrgð á
iQdrive
mótornum.
hraðkerfi
40 mín.
hraðkerfi
15 mín.
Á kynningarverði í júlí:
Þegar valdhafar missa
trú á getu þjóða til
að marka eigin braut
fellur lýðræðis- og
frjálslyndisgríman.
MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ