Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 2
Við drekkum meira á
sumrin og eins og við
vitum býr það til
aukinn kvíða og dep-
urð, alla vega daginn
eftir.
Sóley Dröfn
Davíðsdóttir,
sálfræðingur
við Kvíðameð-
ferðarstöðina.
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Vonbrigði
Sóley Dröfn Davíðsdóttir,
sálfræðingur við Kvíðameð
ferðarstöðina, segir suma
finna endurtekið fyrir depurð
á sumrin – enda mesta eftir
væntingin bundin við sum
arið. Ýmis ráð eru til gegn
depurðinni.
odduraevar@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það er svo merki
legt að við tengjum vanlíðan frekar
við veturinn og finnst að okkur eigi
að líða vel á sumrin en í rauninni er
algengara en við höldum að þung
lyndi láti á sér kræla á vorin og fram
eftir sumri.“
Þá séu tíu prósent þeirra sem
eru með árstíðabundið þunglyndi
með þunglyndi yfir sumartímann.
Sóley segir ekki fyllilega vitað hvað
útskýri það en þó sé vitað að sólar
ljós trufli melatónínmyndun sem
geti dregið úr magni serótóníns,
en lágt serótónínmagn hefur verið
tengt við þunglyndi.
„Svo eru það þessir samfélags
legu þættir. Við höfum rosalegar
væntingar til sumarsins og það á að
vera geðveikt. Ef það stendur ekki
undir væntingum, rignir til dæmis
allt sumarið, eru vonbrigðin þeim
mun meiri,“ segir Sóley.
Vænta má þess að þó nokkrir
f inni fyrir slíkum einkennum
nú en gríðarlegur veðurmunur
hefur verið á landinu þetta sumar.
Gjarnan skýjað og súld í Reykjavík
meðan sólin hefur leikið við lands
menn fyrir norðan og austan líkt
og sjá má á samfélagsmiðlum eins
og Instagram.
„Svo eru það samfélagsmiðlarnir
sem gera okkur óleik. Því það lítur
út á fésbókinni eins og allir séu að
gera svo ógeðslega skemmtilega
hluti alltaf og að allir aðrir séu
svo of boðslega hamingjusamir,“
heldur Sóley áfram. „Vandinn er að
við sjáum inn í okkur en ekki hvað
bærist innra með öðrum og hvernig
þeim raunverulega líður. Við erum
þannig að bera okkar innra saman
við ytra yfirborð annarra og fólk
ber það alls ekkert alltaf með sér
hvernig því líður.“
Bendir Sóley á að ýmsir streitu
valdar tengist sumrinu. Aukin
útgjöld vegna sumarfría, álag sem
fylgir því að hafa börnin heima
og skortur á rútínu valdi streitu.
„Svefninn fer frekar úr skorðum, við
drekkum meira á sumrin og eins og
við vitum býr það til aukinn kvíða
og depurð, alla vega daginn eftir.“
Margt er hægt að gera til að berj
ast við sumardepurðina að sögn
Sóleyjar. „Að stilla væntingum í hóf,
þetta þarf ekkert að vera geðveikt og
maður getur ekki verið glaður alltaf.
Eins að minna okkur á að þó fólk líti
út fyrir að vera alltaf að vera að gera
geggjaða hluti, er veruleikinn ekki
alltaf þannig. Það er ekki allt sem
sýnist og mönnum líður misjafnlega
á sumrin enda er lífið oft á tíðum
erfitt,“ segir hún. n
Depurð á sumrin er algeng
Það er þungt í borgarbúum enda veðrið betra annars staðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
hjorvaro@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Guðlaugur Hermanns
son verður ekki oddviti Frjálslynda
lýðræðisflokksins í Suðvesturkjör
dæmi eins og til stóð. Fram kom í
fjölmiðlum í gær að Guðlaugur hefði
verið ákærður fyrir umfangsmikil
svik úr Ábyrgðasjóði launa.
Héraðssaksóknari ákærði átta
manns fyrir svikin en Guðlaugi er
gefið að sök að hafa reynt að telja
starfsmönnum sjóðsins trú um að
hann hefði verið starfsmaður hjá
fyrirtæki sem varð gjaldþrota og
ætti inni vangoldin laun upp á ríf
lega 7,7 milljónir króna.
Guðmundur Franklín Jónsson,
formaður Frjálslynda lýðræðis
flokksins, segir málið afar leiðinlegt
en að öflug manneskja muni taka
sæti Guðlaugs sem oddviti flokksins
í kjördæminu.
„Málið er þess eðlis að Guðlaugur
getur ekki setið áfram í oddvita
sætinu. Guðlaugur sá það sjálfur og
hefur tilkynnt að hann muni ekki
sækjast eftir kjöri á Alþingi.
Það kemur maður í manns stað
og við höfum fengið öflugan ein
stakling í oddvitasætið,“ segir Guð
mundur Franklín en f lokkurinn
býður fram í fyrsta sinn í haust. n
Guðlaugur víkur sæti vegna ákæru
Guðmundur Franklín Jónsson er
formaður Frjálslynda lýðræðis-
flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Engum datt í hug að brjóta tveggja metra regluna í bið eftir sýnatöku á Suðurlandsbrautinni í gær. Metfjöldi á árinu greindist með Covid-19 á Íslandi í gær. Síðdegis
voru 163 í einangrun og 454 í sóttkví. Nýtt farsóttarhús var opnað eftir að farsóttarhótelið Lind var orðið svo til fullt. Almannavarnir hvetja fólk, sem kemur frá
útlöndum og býr á Íslandi eða hefur tengsl inn í íslenskt samfélag, til að fara í skimun og halda sér til hlés þar til niðurstöður liggja fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Forsvarsmenn Knatt
spyrnusambands Íslands, KSÍ,
funduðu í gær um mál Gylfa Þórs
Sigurðssonar en sögðu fjölmiðlum
eftir fundinn að þeim hefði ekki bor
ist staðfesting um að Gylfi Þór sé til
rannsóknar hjá lögreglunni í Man
chester, fyrir meint brot gegn barni.
Þar til slík staðfesting liggur fyrir
ætlar sambandið ekki að tjá sig um
málið.
Saksóknarinn Michael Ellis sagði
í samtali við The Guardian í gær að
bæði opinber umfjöllun og umræða
á samfélagsmiðlum gæti spillt fyrir
rannsóknum mála og haft vond áhrif
á réttaröryggi.
„Allir eru saklausir uns sekt er
sönnuð og sérhver einstaklingur á
rétt á sanngjarnri málsmeðferð fyrir
dómstólum,“ sagði Ellis.
Engin yfirlýsing hefur borist frá
Gylfa Þór vegna málsins. Everton til
kynnti á mánudagskvöldið að lands
liðsmaðurinn yrði leystur undan
störfum hjá félaginu á meðan rann
sókn málsins stendur yfir. n
KSÍ ekki tjáð sig
um mál Gylfa Þórs
Gylfi hefur verið leystur frá störfum
hjá Everton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2 Fréttir 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ