Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 6
Í tilkynningu frá
sjávarútvegsráðu-
neytinu segir að með
þessari aukningu sé
ráðgert að strandveiði-
sjómönnum verði gert
kleift að stunda veiðar
út ágúst.
Viðskiptaráð segir hagkerfið
taka hraðar við sér en reiknað
var með. Hratt dregur úr
atvinnuleysi og væntingar
almennings og stjórnenda til
framtíðarinnar hafa aukist.
thg@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Viðsnú n i ng u r
íslenska hagkerfisins er talinn verða
hraðari en vonir stóðu til, ef marka
má ársfjórðungslega samantekt
Viðskiptaráðs Íslands á íslensku
efnahagslífi sem kemur út í dag. Ber
þar helst að nefna hraðminnkandi
atvinnuleysi. Eftir að hafa náð sögu-
legu hámarki í 11,6 prósentum í
maí 2020 hefur atvinnuleitendum
fækkað mjög.
Í maí var atvinnuleysi skráð 8,4
prósent og gert er ráð fyrir að það
verði 6,7 prósent að meðaltali í ár.
Aðrir skammtímahagvísar benda
síðan til þess að viðsnúningur hag-
kerfisins verði hraður. Leiðandi hag-
vísir Analytica, sem spáir fyrir um
stöðu hagkerfisins að sex mánuðum
liðnum, er kominn í sitt hæsta gildi
frá ársbyrjun 2020.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll
fjölgar einnig hratt. Í maí á þessu ári
fóru 87 prósent færri farþegar um
f lugvöllinn samanborið við maí
2019, sem teljast má síðasta eðlilega
ferðamannasumarið fyrir heimsfar-
aldurinn. Það sem af er júlímánuði
var þessi sami mismunur kominn
niður í 54 prósent, sem bendir til
þess að ferðaþjónustan sé að taka
hratt við sér.
Væntingavísitala almennings
hefur jafnframt ekki verið hærri frá
árinu 2017 og væntingar stjórnenda
í atvinnulífinu um framtíðarhorfur
hafa ekki verið hærri frá árinu 2019.
Viðskiptaráð bendir á að f leira
megi tína til sem bendir til kröftugs
viðsnúnings:
„Auglýst störf tvöfölduðust á
öðrum ársfjórðungi og námu um
fjórum prósentum af öllum störf-
um. Innf lutningstölur benda til
sterkrar, innlendrar eftirspurnar
þar sem bæði neyslu- og fjármagns-
vörur uxu um fjórðung á föstu gengi
á fyrri helmingi ársins.
Loks náði kortavelta sömu gildum
og árið 2019 að raunvirði. Vart þarf
að taka fram að þessir skamm-
tímahagvísar eru afar viðkvæmir
fyrir faraldrinum og sóttvarna-
aðgerðum." n
Hraðari viðsnúningur en áætlað var
Væntingar stjórnenda í
atvinnulífinu um fram-
tíðarhorfur hafa ekki
verið hærri frá árinu
2019.
thg@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Strandveiðibátum
verður heimilt að sækja 1.171 tonn
af þorski til viðbótar á yfirstand-
andi fiskveiðiári, en þetta kemur
fram í tilkynningu frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu. Um er að ræða óráð-
stafað magn sem kom til á skipti-
markaði í skiptum fyrir makríl og
fleiri tegundir.
Smærri bátum er svo gott sem
ómögulegt að veiða makríl á yfir-
standandi vertíð, en tegundin hefur
haldið sig fjarri landi í sumar og er
aðeins á færi stærri fiskiskipa að
sækja makríl í ár.
Með aukningunni verður því
heildarmagn í þorski á strand-
veiðum alls 11.171 tonn og samtals
12.271 tonn af óslægðum botnfiski,
en Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra undirritaði reglu-
gerð þar að lútandi í gær.
Við upphaf yfirstandandi fisk-
veiðiárs var 11.100 tonnum af
óslægðum botnfiski ráðstafað til
strandveiða. Framangreind ráð-
stöfun á magni byggir á ákvæðum
laga um stjórn fiskveiða þar sem 5,3
prósent aflamagns í hverri tegund
eru tekin til hliðar.
Þær tegundir sem ekki nýtast
beint til sérstakra ráðstafana eru
settar á skiptimarkað með aflamark
og hefur á yfirstandandi fiskveiði-
ári einkum verið óskað eftir þorski
í skiptum fyrir aðrar tegundir.
Að lok num 43 veiðidögum
strandveiðitímabilsins í upphafi
þessarar viku var heildaraf li í
strandveiðum alls um 7.870 tonn,
þar af um 7.280 tonn af þorski. Að
meðaltali hefur því heildaraf li á
veiðidag verið tæp 190 tonn, þar af
rúm 170 tonn af þorski.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að að óbreyttu hefði því þurft
að stöðva strandveiðar um miðjan
ágúst. Með þessari aukningu til
strandveiða er ráðgert að strand-
veiðisjómönnum verði gert kleift
að stunda veiðar út ágúst. Þá muni
þessi viðbót einnig jafna stöðu milli
veiðisvæða þar sem á sumum þeirra
er besti veiðitíminn í ágúst. n
Ráðherra veitir auknar heimildir til strandveiða
thg@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Velta Alcoa á Íslandi var
593,8 milljónir Bandaríkjadala
á síðasta ári, eða sem nemur um
80 milljörðum króna. Velta dróst
saman um tæplega fimm prósent
milli ára, en þetta kemur fram í
samstæðureikningi félagsins. Alcoa
á Íslandi á 99 prósenta hlut í Alcoa
Fjarðaáli sem rekur stærsta álver
landsins á Reyðarfirði.
Rekstrartap Alcoa á Íslandi var
um 29 milljónir Bandaríkjadala
á síðasta ári, en á árinu 2019 var
rekstrartapið tæplega 98 milljónir
Bandaríkjadala.
Af komubatann milli ára má
rekja til þess að kostnaðarverð
framleiðslu Fjarðaáls dróst saman
um 114 milljónir Bandaríkjadala á
síðasta ári og var um 607 milljónir
Bandaríkjadala.
Raforkusamningur Fjarðaáls er
tengdur álverði og því má reikna
með að raforkukostnaður fyrir-
tækisins hafi lækkað mjög á síðasta
ári. Önnur aðföng, til að mynda
súrál, lækkuðu líka í verði á síðasta
ári samfara almennri verðlækkun á
hrávörumörkuðum.
Tap Alcoa á Íslandi eftir skatta var
ríflega 44 milljónir Bandaríkjadala
á síðasta ári, samanborið við um
123 milljónir á árinu 2019. Eigið fé
fyrirtækisins í árslok 2020 var 270
milljónir Bandaríkjadala.
Skuld Alcoa á Íslandi við móður-
félagið nam tæplega 700 milljónum
Bandaríkjadala við árslok 2020.
Í skýringum með ársreikningi
kemur fram að vaxtakjör miðist
við millibankavexti í London og
hafi verið um tvö prósent á síðasta
ári, samanborið við 3,45 prósent
árið 2019. Lánasamningar Alcoa á
Íslandi við móðurfélagið eru endur-
nýjaðir árlega og ekki er til staðar
sérstakur endurgreiðsludagur, að
því er kemur fram í skýringum með
ársreikningnum. n
Rekstrartap Fjarðaáls minnkar umtalsvert milli ára
Velta Alcoa á Íslandi var tæpar 600 milljónir Bandaríkjadala. MYND/AÐSEND
thg@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Aðeins þrjú ríki búa
við meiri verðbólgu en Ísland í sam-
ræmdri verðbólgumælingu EES-
svæðisins, en frá þessu greindi Hag-
stofan í gær.
Tólf mánaða verðbólga á Íslandi
mælist nú fjögur prósent samkvæmt
mælingunni. Í Póllandi er 12 mánaða
verðbólga 4,1 prósent, 5,3 prósent í
Ungverjalandi en Tyrkland trónir
langefst á toppnum með 17,5 pró-
senta verðbólgu síðustu 12 mánuði.
Meðaltal 12 mánaða verðbólgu
á bæði EES-svæðinu og meðal ríkja
sem tilheyra Evrópusamband-
inu er 2,2 prósent.
Þau ríki sem fylgja skammt á
eftir Íslandi í 12 mánaða verðbólgu
eru Noregur, Eistland, Litáen og Lúx-
emborg, en í þessum ríkjum mælist
verðbólga á bilinu 3 til 3,7 prósent á
ársgrundvelli. n
Fjórða mesta
verðbólgan hér
Með aukningunni verður heildarmagn í þorski á strandveiðum 11,171 tonn.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgar hratt. Í maí á þessu ári fóru 87 prósent færri farþegar um flugvöllinn saman-
borið við maí árið 2019. Það sem af er júlí er mismunurinn kominn niður í 54 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Ríkisskattstjóri þarf
að afhenda fréttamanni RÚV upp-
lýsingar um eignarhald Samherja
á sama formi og þær voru varð-
veittar. Þetta kemur fram í úrskurði
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál frá lokum júní.
Með úrskurðinum ógilti nefndin
að hluta synjun ríkisskattstjóra á
beiðni um afhendingu gagna um
eignarhald Samherja. Óskað var
eftir aðgangi að öllum gögnum sem
tengjast skráningu raunverulegra
eigenda Samherja auk gagna um
Samherja Holdings ehf.
Ríkisskattstjóri hafði af hent
gögnin á rafrænu formi en hafði
áður prentað gögnin út og afmáð
upplýsingar um hlutafjáreign hvers
og eins hluthafa. Gögnin höfðu
síðan verið skönnuð inn og afhent
á PDF-skjali. n
Þarf að afhenda
gögn um Samherja
Fréttamaður á RÚV óskaði eftir
gögnum um eignarhald Samherja.
Aðeins þrjú ríki á EES-svæðinu búa
við hærri verðbólgu en Ísland.
6 Fréttir 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ