Fréttablaðið - 21.07.2021, Page 8
hjorvaro@frettabladid.is
Alls létust 200 manns í f lóðunum
sem gengið hafa yfir í Þýskalandi og
Belgíu undanfarna daga. Þetta kom í
gær fram í yfirlýsingu sveitarstjórna
á þeim svæðum þar sem flóðin hafa
valdið manntjóni.
Staðfest hefur verið að 169 manns
létust í Þýskalandi. Tala látinna í suð-
vesturhluta Þýskalands er nú 121.
Flóðin eru þau verstu í Þýskalandi í
seinni tíð.
Tvö svæði í vesturhluta Þýskalands
hafa farið verst út úr flóðunum en
auk manntjóns eyðilögðust þar hús,
tré, bílar, brýr og vegir. Mörg líkanna
í Þýskalandi hafa fundist í kjöllurum
þar sem íbúar þeirra húsa hafa reynt
að bjarga verðmætum.
Staðfest hefur verið að 31 maður
sé látinn í Belgíu. Í báðum löndum á
enn eftir að finna fólk sem ekki hefur
fundist eftir hamfarirnar.
Björgunarstarf mun standa yfir
næstu daga og vikur og samhliða
þarf að fara í mikið hreinsunarátak í
borgum og héruðum sem hafa orðið
fyrir vatnselgnum.
Það var mikil rigning á miðviku-
daginn í síðustu viku sem kom
flóðunum af stað. Flóðin hafa leitt
til umræðu um loftslagsbreytingar í
Þýskalandi í aðdraganda þingkosn-
inga sem verða haldnar 26. septem-
ber næstkomandi.
Þá lýkur 16 ára valdatíma Angelu
Merkel en eftir þær kosningar mun
nýr kanslari taka við stjórnartaum-
unum í landinu. Samkvæmt sér-
fræðingum leiðir hlýnun jarðar til
tíðari og ofsafengnari flóða vegna
þess að hlýrra loft getur innihaldið
meira vatn.
Hörmungarnar hafa einnig leitt
til umræðu um viðvörunarkerfin
í Þýskalandi. Angela Merkel hefur
lofað að mögulegir veikleikar í kerf-
inu verði skoðaðir.
„Við erum með virkilega gott við-
vörunarkerfi,“ segir Merkel í samtali
við þýska fjölmiðla í gær en hún var
þá stödd í borginni Bad Münstereifel
sem er mjög illa farin.
„Nú verðum við að skoða hvað
virkaði og hvað ekki. Á sama tíma
megum við ekki gleyma því að þetta
eru f lóð af stærðargráðu sem við
höfum ekki séð í mjög langan tíma,“
segir Merkel enn fremur. n
Tvö hundruð manns látist í flóðunum í Þýskalandi og Belgíu
Björgunarstarf stendur nú yfir vegna
flóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Múslimar koma saman á Gasa
Múslimska trúarhátíðin Eid al-Adha fer fram í Palestínu þessa dagana en hérna má sjá nokkrar hnátur fara með morgunbæn á Al-Saraya-torginu á Gasa í gær.
Múslimar flykkjast nú á Gasaströndina en um er að ræða eina heilögustu trúarhátíð múslima ár hvert. Á hátíðinni minnast múslimar fórnar Abrahams þegar
hann fórnaði syni sínum, Ishmael, að guðs vilja. Hátíðin stendur yfir í fjóra daga en þar koma fjölskyldur og vinir saman til þess að fagna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thorgrimur@frettabladid.is
PERÚ Vinstrimaðurinn Pedro
Castillo var lýstur sigurvegari for-
setakosninganna í Perú í gær, um
einum og hálfum mánuði eftir að
kosningarnar voru haldnar.
Seinni umferð forsetakosning-
anna var haldin þann 6. júní síðast-
liðinn en samkvæmt opinberum
tölum sem birtar voru á mánudag-
inn vann Castillo sigur gegn keppi-
naut sínum, Keiko Fujimori, með
aðeins 44 þúsund atkvæða forskoti.
Fujimori hafði neitað að viður-
kenna ósigur og vænt Castillo um
svindl en nú er ljóst að ógerningur
er að fá niðurstöðunni hnekkt.
Castillo er frambjóðandi stjórn-
málaflokksins Frjáls Perú, sem er
talinn lengst til vinstri á litrófi per-
úskra stjórnvalda. Hann hefur ekki
gegnt opinberu embætti áður en
varð þekktur fyrir að leiða verkfall
grunnskólakennara árið 2017.
Castillo sótti fylgi sitt mestmegn-
is til fátækra landsbyggðarmanna
og sigur hans í kosningunum er
talinn boða afdráttarlausa höfnun
Perúmanna á stjórnmálaelítu lands-
ins. Áætlað er að Castillo taki við
embætti þann 28. júlí. n
Pedro Castillo er
nýr forseti Perú
Pedro Castillo fagnar sigrinum í
höfuðstöðvum Frjáls Perú í Lima.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thorgrimur@frettabladid.is
GRÆNLAND Margrét Þórhildur
Danadrottning hefur hætt við fyrir-
hugaða heimsókn sína til Græn-
lands vegna mikillar fjölgunar á
Covid-tilfellum þar í landi.
Drottningin áætlaði að vera á
Grænlandi frá 24. júlí til 5. ágúst í
opinberri heimsókn, að því er segir
á heimasíðu dönsku krúnunnar.
Í byjun júlí var Grænland laust
við Covid en smit fóru aftur að
greinast 9. júlí. Í gær voru virk smit
í landinu 29 talsins sem er mesti
fjöldi frá upphafi faraldursins.
Smitin hafa leitt til takmarkana
á ferðum til og frá Grænlandi og
framlengingu á sóttvarnaaðgerð-
um. Óbólusettum verður bannað
að stíga fæti í f lugvélar grænlenska
ríkisflugfélagsins Air Greenland og
sömuleiðis í strandskip og strætis-
vagna. n
Drottning fer ekki
til Grænlands
Njósnaforriti frá ísraelsku
hugbúnaðarfyrirtæki hefur
verið beitt gegn stjórnarand-
stæðingum og blaðamönnum
um allan heim samkvæmt
rannsókn Amnesty Interna-
tional.
thorgrimur@frettabladid.is
NETÖRYGGI Embætti ríkislögreglu-
stjóra hefur engin mál til rann-
sóknar vegna njósnaforritsins Pega-
susar að sögn Runólfs Þórhallssonar,
yfirmanns greiningardeildarinnar.
Deildin hafi ekki upplýsingar um
að forritið hafi verið notað á Íslandi.
Aðspurður segir Runólfur lögregl-
una ekki geta tjáð sig um öryggisráð-
stafanir sem kunni að vera gerðar til
að tryggja öryggi æðstu stjórnar.
Njósnaforritið Pegasus hefur
komist í kastljósið vegna rannsókn-
ar, sem unnin var af yfir 80 blaða-
mönnum í samstarfi við Amnesty
International og fjölmiðlasamtökin
Forbidden Stories, hins svokallaða
Pegasusarverkefnis. Rannsóknin
leiddi í ljós að forritið, sem runnið
er undan rifjum ísraelska hugbún-
aðarfyrirtækisins NSO Group, hefur
verið notað til þess að fremja ótal
mannréttindabrot af ríkisstjórnum
um allan heim.
„Pegasusarverkefnið afhjúpar að
njósnaforrit NSO eru kjörvopn harð-
stjórna sem hyggjast þagga niður í
blaðamönnum, ráðast á aðgerðas-
inna og bæla niður andóf og stofna
þannig lífi ótalmargra í hættu,“
sagði Agnès Callamard, aðalritari
Amnesty International, í yfirlýsingu
á heimasíðu samtakanna.
„Þessar af hjúpanir gera út af
við allar staðhæfingar NSO um að
svona árásir séu sjaldgæfar og tíðkist
aðeins vegna óheimillar notkunar á
tæknibúnaði þeirra. Þótt fyrirtækið
segi að njósnaforritin séu einungis
notuð í lögmætum rannsóknum á
glæpa- og hryðjuverkastarfsemi er
ljóst að tækni þeirra hefur stuðlað að
kerfisbundinni valdníðslu.“
Pegasus er njósnaforrit sem
hlaðið er inn á snjallsíma í laumi og
það notað til að fá aðgang að skila-
boðum, hljóðnema, myndavél, sím-
tölum og tengiliðum notandans.
NSO selur aðeins erlendum ríkis-
stjórnum forritið og þá aðeins með
leyfi Ísraelsstjórnar þar sem það er
lagalega skilgreint sem vopn.
Rannsókn Pegasusarverkefnisins
byggir á 50.000 símanúmerum sem
lekið var til Amnesty International
árið 2020 og voru talin tilheyra aðil-
um sem viðskiptavinir NSO hugðust
vakta. Amnesty Internat ional rann-
sökuðu gögn úr 67 símum af listan-
um og fundu ummerki um njósna-
forritið í 37 þeirra. Þar af hafði því
verið hlaðið upp í 23.
Rannsóknin bendir til þess að
viðskiptavinir NSO séu í Mexíkó,
Aserbaísjan, Kasakstan, Ungverja-
landi, Indlandi, Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum, Sádi-Arabíu,
Barein, Marokkó, Rúanda og Tógó.
Meðal eigenda símanúmeranna
á listanum má nefna Rahul Gandhi,
fyrrverandi leiðtoga indversku
stjórnarandstöðunnar, Carine
Kanimba, dóttur rúandska stjórnar-
andstæðingsins Pauls Rusesabagina
sem nú er í fangelsi, og um fimmtíu
manns í innsta hring mexíkóska
forsetans Andrés Manuel López
Obrador.
Rannsóknin hefur einnig leitt
í ljós að njósnaforritum NSO var
beitt gegn ættingjum sádi-arabíska
blaðamannsins Jamals Khashoggi,
sem var myrtur árið 2018.
Ríkisstjórn Pakistans hefur hafið
rannsókn á því hvort forritinu hafi
verið beitt til að njósna um síma
Imrans Khan forsætisráðherra.
Ríkisstjórn Frakklands hefur
jafnframt kunngert fréttamiðl-
inum Le Monde að símanúmer
Emmanuels Macron forseta og
margra ráðherra í ríkisstjórn hans
hafi verið meðal númera sem mar-
okkóska leynilögreglan hafi reynt
að njósna um með búnaðinum frá
NSO-Group. n
Ekki orðið vart við Pegasus á Íslandi
Stjórnarandstæðingar á Indlandi mótmæla ríkisstjórninni vegna meintra
njósna um Rahul Gandhi og meðlimi Þjóðarráðsflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 Fréttir 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ