Fréttablaðið - 21.07.2021, Qupperneq 12
Það er
einfaldara
að svipta
mann
frelsinu en
að sleppa
manni
lausum
sem þegar
situr inni.
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
n Halldór
n Frá degi til dags
Ef öryrkjar
vilja prófa
sig áfram
á atvinnu-
mark-
aðnum á
Íslandi þá
mega þeir
eiga von
á ýmiss
konar
refsingum.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur
@frettabladid.is
Faxafeni 11 • Sími 534 0534 • www.partybudin.is
Bæjar
hátíð
arskr
aut!
Ísland hefur glímt við langvarandi skort á vinnuafli
á hjúkrunarheimilum, leikskólum, í þjónustu fyrir
fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, og svo
framvegis. En á sama tíma refsum við námsfólki með
því að skerða námslán þess, það er að segja þeim sem
vinna með náminu og fá fyrir vikið lægri námslán.
Hjúkrunarfræðinemar þurftu til dæmis að fá tíma-
bundið leyfi frá stjórnvöldum til þess að aðstoða
við Covid-19 faraldurinn án þess að sú aukna vinna
myndi skerða námslán þeirra.
Mikið hefur verið gert úr því að efnahagslífið ráði
illa við vaxandi meðalaldur þjóðarinnar. Á sama
tíma kemur Alþingi í veg fyrir atvinnuþátttöku eldri
borgara með því að skera niður atvinnutekjur þeirra
með svo ofsafengnum hætti að fjárhagslegur ábati af
atvinnu eldra fólks verður nánast enginn. Rannsókn-
ir hafa sýnt fram á að vinna og virkni á efri árum
stuðlar að betri heilsu, dregur úr einangrun og hefur
almennt mikið félagslegt gildi fyrir eldri borgara.
Einnig hefur það komið fram að afnám skerðinga á
lífeyrisgreiðslur vegna atvinnutekna þurfi ekki að
fela í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og að hugsan-
lega gæti ríkissjóður haft fjárhagslegan ávinning af
aðgerðinni. Sagan kennir okkur það að samfélagið
græðir á því ef allir sem vilja og geta unnið fái að
vinna sína vinnu og greiða sína skatta.
Eiga von á refsingum
Ef öryrkjar vilja prófa sig áfram á atvinnumark-
aðnum á Íslandi þá mega þeir eiga von á ýmiss konar
refsingum. Örorkumat er gjarnan veitt tímabundið
og margir óttast skerðingu bóta ef heilsu þeirra
hrakar eftir að þeir hefja vinnu. Að sjálfsögðu mega
þeir svo eiga von á krónu á móti krónu-skerðingum
og öðrum víxlverkandi skerðingarreglum sem læsir
þá í enn dýpri fátæktargildru.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður
Flokks fólksins, hitti naglann á höfuðið þegar hann
tók til máls um skerðingakerfið hér á landi og sagði:
„Það er ótrúlegt hversu snilldarlega vitlaust þetta
kerfi er.“ n
Snilldarlega vitlaust
Sigurjón
Arnórsson
framkvæmda-
stjóri Flokks
fólksins
Um 90 prósent landsmanna 16 ára og eldri hafa verið bólusett gegn Covid-19. Í mörgum ríkjum heims þykir það eflaust öfundsverður árangur. Hann hefur gert okkur kleift að hefja aftur
það sem kalla má eðlilegt líf í frjálsu samfélagi þar
sem fólki er nokkurn veginn frjálst að koma og
fara, sinna starfi og erindum, lifa og leika sér. Og að
því hefur verið stefnt allt frá því að fregnir bárust
af komu bóluefnisins – að færa samfélagið aftur í
eðlilegt horf.
Stjórnvöld mega nefnilega eiga það að þau hafa
efnt sín loforð. Eftir að hafa skert frelsi borgaranna
svo um munar og sett á margs konar þvinganir
sem höfðu þungbærar efnahagslegar og félagslegar
afleiðingar lofuðu þau að þeim yrði af létt um leið
og færi gæfist. Það er gömul saga og ný að það er
einfaldara að svipta mann frelsinu en að sleppa
manni lausum sem þegar situr inni. Sporin hræða í
þeim efnum. En stjórnvöld stóðust prófraunina.
Nú þegar sóttvarnalæknir hefur lýst því yfir að
enn ein bylgjan sé hafin, hafa ýmsir misvitrir þegar
hlaupið til og sagt að ákvarðanir stjórnvalda um
aukið frelsi við landamærin og opnun skemmti-
staða, svo dæmi séu tekin, hafi verið rangar og
beinlínis skaðlegar. Svokölluð eftiráspeki. En
hvernig má réttlæta annað en frelsi borgaranna til
vinnu og athafna þegar ekkert neyðarástand ríkir?
Ákvörðun um að opna landið og aflétta
sóttvarna aðgerðum í lok síðasta mánaðar var
nefnilega hárrétt. Það ríkir ekkert neyðarástand
í landinu. Þeir sem eru að smitast nú virðast
ekki veikjast alvarlega. Afskaplega lítið er um
sjúkrahúsinnlagnir. Engar forsendur eru fyrir því
að skerða frelsi fólks eða réttindi enn sem komið
er. Ef hætta fer aftur að stafa af faraldrinum getur
þó þurft að taka nýjar ákvarðanir. Það þýðir hins
vegar ekki að fyrri ákvarðanir hafi verið rangar.
Frelsið og réttindin eru mikilvæg. Hagkerfið og
vinnumarkaðurinn skipta máli. Aðhaldið frá þeim
sem gagnrýna sóttvarnaaðgerðir er nauðsynlegt.
Langtímaatvinnuleysi, félagsleg einangrun og
ýmis önnur vandamál sem fylgja frelsisskerðing-
unum geta svo líka dregið dilk á eftir sér og kostað
líf og heilsu fólks, líkt og veiran. Um það vitnar töl-
fræði um allan heim. Ákvarðanir yfirvalda í þessu
efni eru nefnilega vandratað einstigi og verða enn
meiri jafnvægislist eftir því sem tímanum vindur
fram.
Fáir kæra sig um að lifa á forsendum þessarar
veiru til lengri tíma. Við getum ekki læst okkur inni
í þeirri hugmyndafræði að æðsta markmið okkar
sé að búa í veirulausum heimi um alla framtíð.
Af tvennu illu vildu f lest okkar mun frekar velja
frjálsan heim og opinn en ófrjálst og lokað sam-
félag.
Höldum áfram að berjast gegn veirunni, en
verum ekki hrædd við að ræða frelsið og réttindi
okkar. Spyrjum spurninga og veltum upp hug-
myndum. Veitum aðhald. Látum svo af upphróp-
unum og eftiráspeki. n
Eftiráspeki
toti@frettabladid.is
Skemmtanavilji
Björn Ingi Hrafnsson upplýsti
á Facebook í gær að Vilji hans
hefði heimildir fyrir auknum
líkum á að fjölmennar útihá-
tíðir verði bannaðar á næstu
vikum. Viti Björn Ingi hvað
hann syngur er hætt við að
raddir fjölda tónlistarfólks fái
ekki að bergmála í Dalnum
eftir tvær vikur. „Allir þessir
viðburðir voru blásnir af í fyrra
og gæti sú einnig orðið raunin
nú,“ skrifar Björn Ingi og telur
upp verslunarmannahelgina,
Hinsegin daga, Menningarnótt
og Reykjavíkurmaraþon sem öll
eru skammt undan.
Viljaleysi
Helga Vala Helgadóttir, þingman
Samfylkingar, tók pólitískan
vinkil á nýju bylgjuna í gær.
„Mikið hlýtur að vera þreytandi
að reyna að stýra landi með
fólki sem hendir allri ábyrgð
á þig og talar svo niður gjörðir
þínar,“ skrifaði hún á Facebook
um dómsmálaráðherra sem tali
sóttvarnarákvarðanir heil-
brigðisráðherra niður af kappi
í viðtölum og meira að segja í
Moggapistli. Á móti þegi heil-
brigðisráðherra þunnu hljóði
um brottvísun „þungaðrar
sýrlenskrar konu og ungs barns“.
Hún spyr síðan hversu lengi VG
ætli að þegja og láta þetta ganga
yfir sig. „Eða er þetta þeirra
vilji?“ n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR