Fréttablaðið - 21.07.2021, Síða 14
Smit hefur verið stað-
fest hjá 28 einstakl-
ingum sem komu til
Tókýó vegna leikanna.
14 Íþróttir 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Kvöldið fyrir fyrstu
viðburði Ólympíuleikanna bárust
fregnir af því að heildarfjöldi kór-
ónaveirusmita sem mætti rekja til
Ólympíuleikanna væri kominn upp
í 61, þar af 28 sem komu til landsins
vegna Ólympíuleikanna.
Sífellt f leiri eru að greinast innan
Ólympíuþorpsins og eru einstakl-
ingar ýmist að greinast með veiruna
eða að fara í sóttkví vegna nærværu
við smitaðan einstakling.
Um áttatíu prósent íþróttamanna
í Tókýó eru bólusett en það virðist
ekki stöðva útbreiðslu veirunnar.
Toshiro Muto, formaður skipu-
lagsnefndar Ólympíuleikanna, var
ómyrkur í máli þegar hann viður-
kenndi á blaðamannafundi í gær að
það gæti enn farið svo að Ólympíu-
leikunum yrði af lýst, degi fyrir
fyrstu viðburði leikanna.
„Við getum ekki spáð fyrir hvað
gerist með þessi smit. Við munum
fylgjast með fjölda tilfella og ef það
verður aukning munum við endur-
skoða málin með þeim sem koma
að þessari ákvörðunartöku,“ sagði
Muto.
Fyrsta staðfesta smitið innan
Ólympíuþorpsins greindist fyrir
fjórum dögum. Búið er að greina
smit innan knattspyrnuliða, fim-
leikasveitar og blakliðs. Íþrótta-
menn frá Bretlandi og Skotlandi eru
í sóttkví eftir að smit greindist hjá
farþega í f lugi þeirra til Japans. n
Viðvörunarbjöllur hringja á aðfaranótt leikanna
Degi áður en
Ólympíuleik-
arnir hefjast í
Tókýó í Japan
hefur 61 ein-
staklingur sem
hefur tengsl við
Ólympíuþorpið
greinst með
kórónaveiruna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Ólympíuleikarnir hefjast í
morgunsárið þegar bresku
ljónynjurnar mæta Síle í fót-
bolta kvenna í Japan. Alls fara
sex leikir fram á fyrsta degi
mótsins en opnunarhátíðin er
ekki fyrr en á föstudaginn.
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Í tilefni þess að
fyrstu viðburðir Ólympíuleik-
anna hófust í morgunsárið tók
Fréttablaðið saman áhugaverðar
staðreyndir og tölfræði á bak við
Ólympíuleikana í Tókýó.
Keppnin fer fram í skugga
kóróna veirufaraldursins og hefst
með leikjum í knattspyrnu í dag og
á morgun áður en opnunarhátíðin
sjálf fer fram á föstudaginn.
Ísland er með fjóra fulltrúa að
þessu sinni. Anton Sveinn McKee
og Snæfríður Sól Jórunnardóttir
keppa í sundi, Guðni Valur Guðna-
son tekur þátt í kringlukastkeppni
leikanna og Ásgeir Sigurgeirsson í
skotíþróttum.
Hluti af umhverfisstefnu skipu-
leggjenda Ólympíuleikanna er að
Ólympíufarar sofa á rúmum sem
eru gerð úr endurvinnanlegum
pappa. Þá eru verðlaunapening-
arnir enn fremur að stærstum hluta
unnir úr 6,21 milljón símtækja sem
voru ekki lengur í notkun. n
Tölur og tölfræði
um Ólympíuleikana
Tveir af þremur launahæstu keppendum Ólympíuleik-
anna í ár, Kevin Durant og Damian Lillard, sem leika með
bandaríska landsliðinu.
Formiga er hluti af liði Brasilíu sjöundu Ólympíuleikana
í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Umræðan fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í Tókýó í Japan hefur einna helst verið um Covid. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2,8
Áætlað er að heildarkostnaður við
leikana sé um 15,4 milljarðar dala.
Það er 2,8 milljörðum yfir kostnað-
aráætlun Japana og kosta aðgerðir
vegna frestunar leikanna þar af
tæplega einn milljarð dala.
5
Af níu launahæstu íþróttamönn-
um Ólympíuleikanna samkvæmt
lista bandaríska fjármálatíma-
ritsins Forbes eru fimm sem leika
með bandaríska körfuboltalands-
liðinu og í NBA-deildinni í körfu-
bolta. Kevin Durant var tekjuhæsti
íþróttamaður Ólympíuleikanna á
síðasta ári með 75 milljónir dala
en næstur í bandaríska liðinu og
sá þriðji tekjuhæsti á mótinu er
Damien Lillard með 40,5 milljónir
dala. Þeirra á milli er tennisstjarn-
an Naomi Osaka sem bætti eigið
met sem tekjuhæsta íþróttakona
allra tíma í fyrra.
498
Það verða tæplega fimm hundruð
dagar liðnir frá því að Ólympíu-
eldurinn var tendraður á hefð-
bundinn hátt í Ólympíu í Grikk-
landi. Eldurinn var tendraður á
sama tíma og kórónaveirufar-
aldurinn var að festa rætur úti um
allan heim fjórum mánuðum fyrir
áætlaða opnunarhátíð leikanna.
Tólf dögum síðar samþykktu
stjórnvöld í Japan og stjórn Ól-
ympíuleikanna að fresta leikunum
um eitt ár. Rúmlega sjö þúsund
hafa borið Ólympíukyndilinn á
einhverjum tímapunkti.
7
Líklegt er að þetta séu sjöundu
og síðustu Ólympíuleikar hinnar
brasilísku Formigu. Hún er sú
eina í sögunni sem hefur keppt á
öllum Ólympíumótunum frá því
að kvennaknattspyrnu var bætt
við leikana í Atlanta árið 1996.
Aðeins 13 íþróttamenn hafa keppt
á fleiri en sjö Ólympíukeppnum
og metið, tíu Ólympíuleikar sem
er í eigu kanadíska knapans Ians
Miller, verður líklega aldrei bætt.
5
Samþykkt var fyrir fimm árum að
bæta fimm íþróttagreinum við
Ólympíuleikana í Tókýó. Í fyrsta
sinn verður keppt á hjólabrettum,
brimbrettum, í karate og klifri og
þá snýr hafna- og mjúkbolti aftur
eftir þrettán ára hlé.
6,21
Skipulagsnefnd Ólympíuleikanna
skoraði á fólk að senda gamla
síma sem það væri hætt að nota
til þess að hægt væri að nýta
málmana í símunum í að gera
verðlaunapeninga. Alls barst
6,21 milljón raftækja eða um 79
þúsund tonn sem breytt var í
verðlaunapeninga.
11
Það eru rétt rúmlega ellefu
þúsund þátttakendur á Ólympíu-
leikunum þetta árið, samkvæmt
heimasíðu Ólympíuleikanna, sem
keppa í 33 mismunandi íþrótta-
greinum. Tæplega helmingur
þátttakenda, 48,8 prósent, er
kvenkyns og um áttatíu prósent
eru bólusett eða með mótefni við
Covid-19.
29
Alls eru 29 þátttakendur frá sam-
eiginlegu liði flóttamanna sem
keppir fyrir hönd Ólympíusam-
bandsins, IOC. Þessir einstaklingar
eiga það sameiginlegt að hafa
verið gerðir útlægir frá heimalandi
sínu og geta því aðeins komið
fram undir nafni IOC.
150
Um 150 þúsund smokkum
verður dreift til einstaklinga á
Ólympíuleikunum en ætlast er
til þess að þeim verði komið
áfram til heimalandsins vegna
stöðu heimsfaraldursins. Það er
þrefalt minna af smokkum en
var dreift fyrir Ólympíuleikana
í Ríó.