Fréttablaðið - 21.07.2021, Page 16
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Fylgið okkur á FB
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
SKOÐIÐ LAXDAL .IS
40-70%afsláttur
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@
frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Teri-Dee kemur frá Bristol á Eng-
landi og þar hófst ferill hennar
í bardagalistum þegar hún var
ekki nema sex ára gömul. Fyrsti
bardagastíllinn sem hún lærði
var Tang Soo Do. Þegar Teri-Dee
var ekki nema 15 ára var hún
komin með svarta beltið og orðin
heimsmeistari í listinni.
„Ég fór að æfa bardagalistir sem
barn af því ég var lögð í mikið
einelti í skólanum. Ástæðan
fyrir að ég byrjaði að æfa var að
ég vildi byggja upp sjálfstraust.
Ég vildi ekki fá sjálfstraust til að
slást heldur til að forðast slags-
mál,“ útskýrir Teri-Dee.
„Ég lærði að lesa í aðstæður og
greina ef þær voru hættulegar.
Þá gat ég gengið í burtu í stað
þess að festast í hættulegum
aðstæðum.“
Þetta var fyrir 27 árum og bar-
dagalistir hafa átt allan hug Teri-
Dee síðan, sérstaklega bardaga-
stíll sem heitir Shaolin Kung Fu.
„Shaolin Kung Fu er vellíð-
unarkerfi, sem byggir bæði á að
styrkja hugann og líkamann.
Shaolin er bardagalist sem á
rætur sínar að rekja til kyrjunar
búddista. Þess vegna finnst mér
þessi tegund bardagalistar sér-
staklega góð til að byggja upp
sjálfstraust, vegna þeirra gilda
sem hún byggir á. Shaoling Kung
Fu snýst um heiðarleika, sjálfs-
virðingu og að vera sönn mann-
eskja,“ segir Teri-Dee.
„Ég veit að margar aðrar
íþróttir byggja á gagnlegum
gildum en þau rista ekki eins
djúpt og í Kung Fu. Kung Fu ögrar
hugmyndum þínum um þig
sjálfa, hvernig þú sérð heiminn í
kringum þig og hvernig þú bregst
Teri-Dee segir
að í bardaga-
listum þurfi að
vera jafnvægi
milli huga og
líkama. Það
þurfi að læra á
vopn og læra að
hugleiða.
Á Íslandi fann Teri-Dee fólk með ástríðu fyrir bardagalistum líkt og hún sjálf. Henni finnst sér-
staklega mikilvægt að konur geti æft í öruggu umhverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Það var
mjög stíf
þjálfun. Ég
æfði sex
tíma á dag
sex daga
vikunnar.
Teri-Dee Rubery.
við umhverfinu og notar þína
innri orku.“
Jafnvægi mikilvægt
Teri-Dee kom til Íslands fyrir
tveimur árum og kennir Shaolin
Kung Fu í Tveimur heimum.
„Eins og er kennum við líka Qi
Gong á Klambratúni. Við ætlum
að gera það út sumarið. Qi Gong
er vellíðunarhlið bardagalista og
Thai Chi er bardagahliðin. Það er
mikilvægt að stunda bæði. Það
gengur ekki að vera of passíf og
einbeita sér bara að andardrætt-
inum og hugleiðslu. Þú þarf líka
að kenna þér og líkama þínum að
vera virkur, það er yang-hliðin í
bardagalistum. Það er mikilvægt
að hafa jafnvægi þarna á milli.“
Teri-Dee hefur farið margar
ferðir til Kína til að læra bardaga-
listir hjá meisturum þar. Henni
finnst mjög mikilvægt að læra
beint af meisturunum.
„Ein ástæða þess að ég vildi fara
að vinna með Tveimur heimum er
að ég vissi að fólkið þar hafði líka
lært úti í Kína eins og ég. Þá vissi
ég að það sem þau kenna ekta. Það
kemur beint frá þeim sem hafa
mestu þekkinguna en hefur ekki
verið útþynnt eftir að hafa gengið
mann frá manni á Vesturlöndum,“
útskýrir hún.
„Ég hef farið allavega fimm
sinnum til Kína. Lengsta þjálf-
unarferðin mín þangað stóð yfir
í eitt ár. Þá æfði ég með Shaolin-
munkum. Það var mjög stíf
þjálfun, ég æfði sex tíma á dag, sex
daga vikunnar. Ég þurfti að vakna
snemma á morgnana og virkilega
reyna á þolmörk mín dag eftir
dag.“
Teri-Dee segir að í hvert sinn
sem hún fari til Kína geri hún lítið
annað en að æfa. Hún læri á ný
vopn og nýja sjálfsvarnartækni.
„Það er tækni innan Kung Fu
sem heiti Sanda, það er kínverskt
sparkbox. Ég lærði það líka. Því
eins og ég sagði, í Kung Fu þarftu
að læra hugleiðslu og Qi gong en þú
þarft líka að læra á vopn og sjálfs-
vörn, þetta fer allt saman.“
Öruggur staður fyrir konur
Teri-Dee hefur kennt Kung Fu víða
um heim en eins og áður sagði er
hún núna stödd á Íslandi.
„Þegar ég var 18 ára þá flutti ég
til London og fór í háskóla. Þar
eignaðist ég góða vinkonu sem
er Íslendingur. Í gegnum árin
myndaði ég góð tengsl við Ísland
og fólkið hér svo ég ákvað að flytja
hingað og sjá hvað myndi gerast,“
útskýrir hún.
„Ég byrjaði á að byggja upp
Shaolin-samfélag hér, sem er mjög
gott. Ég veit ekki til þess að Shaolin
Kung Fu sé kennt annars staðar á
Íslandi en hjá Tveimur heimum.
Núna er ég aðallega að kenna
fullorðnum, en ég einbeiti mér sér-
staklega að því að kenna konum.
Það eru svo margir karlmenn að
kenna Kung Fu, og þeir eru góðir
í því, en konum getur fundist
óþægilegt að læra bardagalistir af
karlmönnum. Þess vegna hef ég
haldið námskeið þar sem konur
eru sérstaklega velkomnar, svo
þær upplifi sig öruggar að koma
að læra hjá mér. Það mætti segja
að námskeiðin séu öruggur vett-
vangur fyrir þær til að reyna á sig
og sjá hvað þær geta náð langt. Þar
sem þær geta uppgötvað sjálfar sig
og vaxið sem manneskjur. Það eru
ekki nógu margir öruggir staðir
fyrir konur til að gera það.“ n
2 kynningarblað A L LT 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR