Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 18
Hvannarrótin frá ICEHERBS
getur aukið lífsgæði með því
að viðhalda heilbrigðri þvag-
blöðru og þvagrás ásamt því
að bæta meltinguna. Varan
er 100% hrein, náttúruleg og
án óþarfra fylliefna.
Friðrik Guðmundsson vaknaði á
hverri nóttu til að pissa þar til hann
fór að nota hvannar rót.
„Ég var alltaf að vakna og það
kom fyrir að ég lenti í smávægi-
legum þvagleka. Einhver benti
mér á að fara í heilsubúð til að fá
eitthvað við þessu og þar var mér
bent á hvannarrót. Ég var nú efins
um þetta en ákvað samt að prófa
og þetta reyndist vera lausnin fyrir
mig,“ segir Friðrik. „Nú sef ég allar
nætur og verð aldrei var við neinn
þvagleka. Mér fannst breytingin
alveg ótrúleg og það tók merkilega
stuttan tíma, um viku eða tíu daga,
fyrir vandamálið að hverfa alveg.
Þetta var eins og kraftaverk,“
segir Friðrik. „Ég er nú orðinn svo-
lítið gamall og hélt að þetta væri
bara aldurinn og hafði spurt lækni
um þetta og hann sagði að þetta
fylgdi aldrinum. Það hafði örugg-
lega áhrif, en þetta leysti vandann.
Ég nota hvannarrót ennþá og tek
eina töflu á dag, en ekki á neinum
ákveðnum tíma,“ segir Friðrik. „Ég
hef ekki orðið var við neinar auka-
verkanir eða neitt slíkt, ég losnaði
bara við vandamálið.
Ég myndi hiklaust mæla með
hvannarrót fyrir alla sem glíma við
þetta vandamál. Ég hélt að það væri
ekkert til við þessu og hafði prófað
aðrar lausnir sem virkuðu ekki eins
vel, þannig að þetta var bylting
fyrir mig,“ segir Friðrik. „Ég vona að
þetta geti hjálpað fleirum.“
Hvannarrótin frá ICEHERBS
Hvannarrót er úr íslenskri æti-
hvönn, sem heitir á latínu Ange-
lica archangelica. Ætihvönn hefur
sterkar rætur sem búa yfir miklum
krafti og rótin á plöntunni virðist
vera virkari og hafa mun meiri
örvandi áhrif en aðrir hlutar plönt-
unnar. Hvannarrótin frá ICEHERBS
er þurrkuð og möluð hvannarrót í
hylkjum úr jurtabeðmi, sem gerir
vöruna 100% náttúrulega.
Ætihvönn er ein þekktasta nytja-
og lækningajurtin sem notuð var
á Íslandi og víðar í norðurálfu til
forna, en hún vex aðallega á norð-
lægum slóðum eða hátt til fjalla
í Evrópu. Allir hlutar plöntunnar
hafa verið nýttir í gegnum tíðina
en rótin var einna mest notuð
til lækninga þar sem styrkleikar
hennar hafa alltaf verið vel þekktir.
Jurtin er þekkt fyrir að vinna
gegn einkennum ofvirkrar þvag-
blöðru og getur viðhaldið heil-
brigðri þvagblöðru og þvagrás.
Sýnt hefur verið fram á að notkun
hvannar geti fækkað salernisferð-
um og þar með haft jákvæð áhrif
á svefn og um leið bætt daglegt líf.
Áhrif hvannarrótar eru margvísleg
og fyrir utan jákvæð áhrif hennar
á þvagblöðru hefur hún lengi verið
notuð við hvers kyns meltingar-
vandamálum, til að örva meltingu
og draga úr uppþembu og lofti í
maga. Dagleg inntaka hefur mikil
jákvæð áhrif á líðan fólks.
Á seinni árum hafa svo verið
gerðar miklar vísindalegar rann-
sóknir á virkni og efnainnihaldi
ætihvannar sem hafa leitt í ljós að
sú virkni sem kennd hefur verið
við hvönnina í þúsundir ára er
sannanleg og að ætihvönnin sé
einkar virk og öflug jurt.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna þær
í hreinar, neytendavænar vörur
fyrir viðskiptavini.
„Við hjá ICEHERBS leggjum
áherslu á að framleiða hrein og
náttúruleg bætiefni sem byggja á
sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda
og notum engin óþörf fylliefni,“
segir Katrín Amni, framkvæmda-
stjóri Náttúrusmiðjunnar. „Við
viljum að vörurnar okkar nýtist
viðskiptavinum okkar, að virkni
skili sér í réttum blöndum og að
eiginleikar efnanna viðhaldi sér að
fullu.“ n
Hvannarrótin frá ICEHERBS fæst í
öllum apótekum og heilsuvöru-
verslunum, Hagkaupum, Nettó og
Fjarðarkaupum. Fæst einnig í nýrri
vefverslun ICEHERBS iceherbs.
is með frírri heimsendingu ef
pantað er fyrir 8000 kr. eða meira
Áhrifin kraftaverki líkust
Friðrik Guð-
mundsson segir
að hvannarrót
hafi hjálpað
honum gríðar-
lega. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Það er mikið hlýindaskeið
á norður- og austurhluta
landsins sem hefur ýmis
áhrif á daglegt líf. Ein afleið-
ingin af hitanum er að það
verður erfiðara að fara út að
hlaupa, en það þarf ekkert
að láta hitann skemma fyrir
æfingum.
oddurfreyr@frettabladid.is
Hitinn þvælist yfirleitt ekki fyrir
okkur hérna á Íslandi, en núna er
ástandið þannig að víða um land
hefur fólk búið við óvenju mikinn
hita vikum saman. Í svona hita
er auðvitað skemmtilegra að vera
úti að hreyfa sig en það getur líka
orðið erfiðara að hlaupa í hitanum,
sérstaklega þar sem við erum flest
vön svalara veðri. Því er mikilvægt
að gera ráðstafanir til að stemma
stigu við áhrifum hitans.
Líkamsræktarvefurinn Coach-
mag fékk nýlega nokkur góð ráð
varðandi þetta frá þremur sérfræð-
ingum; styrktar- og þrekþjálfara,
hlaupaþjálfara og langhlaupara
sem hefur keppt í Sahara- og Góbí-
eyðimörkunum.
Fyrsta og besta ráðið til að forð-
ast að fara sér að voða í hitanum
er einfaldlega að forðast að hlaupa
á heitasta tíma dagsins. Annars
er hætta á ofþornun, sólbruna,
ofhitnun og sólsting. Það er gott að
hlaupa snemma á morgnana eða
seint á kvöldin til að forðast mesta
hitann. Ef það er ekki hægt að
hliðra æfingunni til gæti líka verið
skynsamlegra að skipta útihlaupi
út fyrir sund, hjólreiðar eða hlaup
innandyra. En ef fólk vill halda sig
við útihlaup eru ýmis ráð sem geta
auðveldað það.
Klæðið ykkur rétt
Það er grundvallaratriði að passa
að vera með öfluga sólarvörn, því
annars er auðvelt að brenna, sem
er afar óhollt fyrir húðina. Sól-
gleraugu eru líka auðvitað staðal-
búnaður. Það getur verið freistandi
að klæða sig sem minnst, en það
borgar sig að hlífa húðinni að ein-
hverju leyti fyrir sólinni, sérstak-
lega ef það stendur til að hlaupa
lengi.
Létt og ljós gerviefni sem drekka
í sig svita hjálpa við að lækka
líkamshitann og það er betra að
forðast stuðningsefni og spandex.
Það þarf líka að passa að fötin valdi
ekki núningi og þar getur vaselín
komið að gagni. Svo getur hlaupa-
húfa skýlt höfðinu og andlitinu
fyrir mestu sólinni og svitaband
haldið svitanum frá augunum.
Ekki gleyma söltunum
Ekki gleyma því að það er ekki nóg
að drekka vatn til að koma í veg
fyrir ofþornun, það þarf líka sölt,
sem líkaminn tapar hratt við að
svitna. Það er nauðsynlegt að við-
halda þessum söltum til að koma í
veg fyrir vöðvakrampa og viðhalda
góðri frammistöðu. En hafið í
huga að það er líka hættulegt að
drekka of mikið. Í miklum hita
er best að borða reglulega mat og
vatn og drekka líka íþróttadrykki
til að viðhalda söltum, frekar en
að reyna að drekka mikið magn af
vatni í einu.
Forðist krampa
Vöðvakrampar eru oft afleiðing
af því að drekka eða borða ekki
nóg þannig að ef það er passað vel
upp á mataræðið ættu þeir ekki
að verða vandamál. Með því að
drekka nóg, helst einhvern íþrótta-
drykk með söltum, eða með því að
borða létta máltíð og skola henni
niður með vatni tveimur tímum
fyrir æfingu ætti að vera hægt að
fyrirbyggja þá.
Passið fæturna
Í auknum hita svitna fæturnir
meira og því þarf að passa að
sokkarnir passi vel og séu í góðu
ástandi. Það borgar sig að verja
álagssvæði sérstaklega vel og
nota plástra til að hindra blöðru-
myndun. Það á svo alltaf að reima
hlaupaskóna á sig frá botninum og
upp þannig að þeir séu þéttir, en
þrengi ekki að.
Ekki of kalda sturtu
Eftir æfinguna þarf að teygja og
svo fara í volga sturtu til að kæla
niður líkamann. Passið að fara
ekki í of kalda sturtu, þó að það
sé freistandi, því ef kuldinn er of
mikill ferðu að skjálfa og við það
hækkar líkamshitinn. n
Hlaupið örugg í hitanum
Það getur tekið
á að hlaupa um
í hitanum sem
er nú víða um
land en það eru
til góð ráð til
að gera hann
þolanlegri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Fyrsta og besta
ráðið til að forðast
að fara sér að voða í
hitanum er einfaldlega
að forðast að hlaupa á
heitasta tíma dagsins.
4 kynningarblað A L LT 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR