Fréttablaðið - 21.07.2021, Side 20
Hápunkturinn á sýning-
unni er venjulega Ég ætla
að verða kóngur klár úr
Konungi ljónanna þar
sem krakkarnir eru dug-
legir að taka þátt.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðbjartur Alexandersson
frá Miklaholti II,
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
lést á Brákarhlíð, Borgarnesi,
sunnudaginn 18. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Alexander Guðbjartsson Dueanngam Guðbjartsson
Valgeir Guðbjartsson Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Pálma Þórs Andréssonar
frá Kerlingardal.
Guðrún Áslaug Árnadóttir og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sverrir Haukur Halldórsson
rafeindavirkjameistari,
lést í Reykjavík 17. júlí.
Útför hans verður frá Neskirkju
föstudaginn 23. júlí.
Anna Rut Sverrisdóttir Birgir Þórarinsson
Eydís Dóra Sverrisdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurlaug Jónsdóttir
Lautasmára 1, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
þann 15. júlí. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 27. júlí, kl. 13.
Jón Þór Árnason Hallfríður Sigurðardóttir
Páll Árnason Edda Lilja Sveinsdóttir
Ásdís Árnadóttir Jón Bergsveinsson
Ragnar Árnason Áslaug Björgvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Dr. Aðalgeir Kristjánsson
frá Finnsstöðum í Ljósavatnshreppi,
sagnfræðingur og fyrrverandi
skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Húsavík sunnudaginn 18. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Systkinabörn hins látna.
Elskulegur sambýlismaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur Kristjánsson
lést á nýrnadeild Landspítalans
við Hringbraut sunnudaginn 4. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Ástvinir þakka sérstaklega
starfsfólki 12 E og starfsfólki skilunardeildar
Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun í gegnum árin.
Ásgerður Birna Björnsdóttir
Ragnar Már Pétursson Annelise Larsen-Kaasgaard
Kristín Pétursdóttir Finnbogi Karlsson
Guðrún Pétursdóttir Baldur M. Einarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær sonur minn,
bróðir, mágur og frændi,
Bjarki Þórhallsson
Berjahlíð 2, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu 12. júlí.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.
Þórhallur Ægir Þorgilsson
Baldur Þórhallsson Felix Bergsson
Ólöf Þórhallsdóttir Ármann Ingi Sigurðsson
og fjölskyldur.
Elsku yndislegi eiginmaður og faðir,
Pálmi Stefánsson
tónlistarmaður,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri þann
15. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram í
Glerárkirkju þriðjudaginn 27. júlí kl. 11.00.
Soffía Kristín Jónsdóttir, Haukur Pálmason
Björk Pálmadóttir, Anna Berglind Pálmadóttir
Ástkær bróðir okkar, frændi og vinur,
Kristján Þór Guðmundsson
lést 24. júní sl. á heimili sínu í Malmø.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 26. júlí kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
að styrkja Píeta samtökin.
Sigurður Freyr Kristmundsson
Bjarndís Hrönn Hönnudóttir
Tanya Kristrún Gunnarsdóttir
Michelle Arnarson
fjölskylda og vinir.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug
vegna andláts mömmu og pabba,
tengdamömmu og tengdapabba,
ömmu og afa, langömmu og langafa,
Sigrúnar Ágústsdóttur og
Guðlaugs Óskarssonar
Hraunvangi 3, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Landspítalanum
í Fossvogi, deildum B4 og B2, fyrir einstaka umönnun.
Gunnhildur G. Guðlaugsdóttir Sævar Reynisson
Eyjólfur Þór Guðlaugsson Sigrún G. Jónsdóttir
G. Sigríður Guðlaugsdóttir Birgir Emil J. Egilsson
J. Helga Guðlaugsdóttir Guðmundur Ásmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Söng- og leikhópurinn Tónafljóð
skemmtir börnum með Disney-
syrpu á fimmtudag.
arnartomas@frettabladid.is
„Við erum búnar að vera rosalega kátar
með að takmörkunum hafi verið aflétt,“
segir Rebekka Sif Stefánsdóttir úr söng-
og leikhópnum Tónaf ljóð sem f lytur
Disney-tónlistarsyrpu á barnaskemmt-
un í Hellisgerði á fimmtudag.
Hópurinn var stofnaður í janúar 2018
og var upphaf lega planið að syngja
klassískar dægurperlur, en eilítil stefnu-
breyting kom til við raddæfingar. „Þegar
við vorum að hita okkur upp ákváðum
við að syngja Disney-lög,“ segir Rebekka.
„Stemningin breyttist algjörlega því
okkur fannst þetta svo skemmtilegt að
við ákváðum að gera barnasyrpu úr því.
Við grípum þó alveg í dægurperlurnar
líka og verðum með slíka tónleika í
ágúst.“
Tónafljóð hafa komið fram og sýnt
Disney-syrpuna víðs vegar um landið.
Þótt atriðið sé einungis í tónlistarformi
eru leikræn tilþrif og líf legir búningar
sem lyfta stemningunni upp á næsta
stig. Rebekka segir meðlimi hópsins
duglega að skipta á milli sín hlutverkum
svo engin sitji uppi sem Jafar eða Skari
til lengri tíma. „Við erum allar bestar í
þessu öllu saman,“ segir hún og hlær.
„Þetta eru nú mest allt þessi fallegu og
skemmtilegu lög.“
Meðal þeirra mynda sem fljóðin sækja
lög sín í eru Konungur ljónanna, Aladdín
og Leikfangasaga, en einnig hafa bæst
við lög úr nýrri myndum á borð við
Vaiönu og Frozen. „Við höfum verið
að stækka syrpuna jafnt og þétt,“ segir
Rebekka. „Hápunkturinn á sýningunni
er venjulega Ég ætla að verða kóngur klár
úr Konungi ljónanna þar sem krakkarn-
ir eru duglegir að taka þátt. Þar erum við
með tvö ljón, tvo páfagauka og meira að
segja eina antilópu.“
Skemmtunin hefst klukkan 15 í Hellis-
gerði og er aðgangur gjaldfrjáls. Áhuga-
samir geta kynnt sér starfsemi Tóna-
fljóða betur á Facebook-síðu þeirra, þar
sem einnig má nálgast myndskeið af
syrpunni góðu. n
Disney-syrpa í Hellisgerði
„Disney-syrpan góða varð til á raddæfingu Tónafljóða. Þar er líka boðið upp á búninga og leikræn tilþrif.“ MYND/AÐSEND
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR