Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 24
Það er frábært að fá að
spila í þessu flotta húsi
sem Hof er.
kolbrunb@frettabladid.is
Salka Rósinkranz og Tóta Kolbeins-
dóttir sýna verk á sýningunni Fæðast
aftur í Midpunkt Hamraborg.
Salka vinnur þvert á miðla, en með
áherslu á teikningu og prent. Verk
Tótu hverfast um sögur, andrúms-
loft, athafnir og goðsögur í margs
konar miðla, til að mynda skúlptúr,
prent, teikningu og bókverk.
Þær hafa unnið mikið saman,
bæði að innsetningum og gjörn-
ingum. Báðar útskrifuðust úr Lista-
háskóla Íslands. n
Salka og Tóta
í Midpunkt
Verk eftir Sölku Rósinkranz.
kolbrunb@frettabladid.is
Í Þulu stendur yfir seinni samsýning
ársins, Samsýning 2021 – Vol.2, þar
sem kynntir eru til leiks þeir lista-
menn sem munu halda einkasýn-
ingar fram að jólum í galleríinu.
Listamenn eru: Hulda Vilhjálms-
dóttir, Rakel McMahon, Sindri
„Sparkle“ Freyr Bjarnason og Lilý
Erla Adamsdóttir.
Sýningin stendur til og með 8.
ágúst. n
Samsýning í Þulu
Gullfjall eftir Huldu Vilhjálmsdóttur. Kammersveitin Elja verður
með tónleika í Hofi á Akur-
eyri á morgun, fimmtudaginn
22. júlí, og laugardaginn 24.
júlí í Háteigskirkju í Reykja-
vík. Bjarni Frímann Bjarna-
son mun halda um sprotann.
kolbrunb@frettabladid.is
Á tónleikunum, sem hefjast klukk-
an 20.00, verða frumf lutt tvö ný
verk eftir Elenu Postumi og Hjalta
Nordal, en einnig verða leikin verk
eftir Witold Lutoslawski og Sergei
Prokof iev. Tónleikarnir eru um
klukkustund að lengd og eru án
hlés.
Elena samdi verk sitt sérstaklega
fyrir sveitina. „Elena er píanisti
sem hefur verið mikið á Íslandi og
meðal annars unnið með Íslensku
óperunni. Hún hefur samið f leiri
verk sem hafa verið frumflutt hér á
landi,“ segir Pétur Björnsson, fiðlu-
leikari og meðlimur í Elju, en í verk-
inu leikur Björg Brjánsdóttir einleik
á þverflautu.
Annað verk sem samið er fyrir
sveitina er eftir Hjalta Nordal.
„Hann hefur sinnt tónlist frá unga
aldri og við ólumst upp með honum
sem fiðluleikara. Við í Elju höfðum
lengi haft augastað á verki eftir
hann,“ segir Hekla Finnsdóttir fiðlu-
leikari.
Mikil tilhlökkun
Tvö önnur verk verða flutt á tónleik-
unum, Dance Preludes eftir Lutos-
lawski og Sinfónía nr. 1 eftir Proko-
fiev. „Sinfónían er stutt, snörp og
skemmtileg, það er mikill leikur í
henni,“ segir Hekla. „Hún er kölluð
klassíska sinfónían, tekur ekki nema
korter í f lutningi, er ekki skrifuð
fyrir stóra hljómsveit og hentar
okkur í kammersveitinni því vel.“
Pétur og Hekla segja mikla til-
hlökkun ríkjandi hjá meðlimum
kammersveitarinnar eftir langt
Covid-hlé. „Við erum alltaf með
sumar- og jólaverkefni sem féllu
niður vegna Covid. Síðasta sumar
vorum við lögð af stað í hringferð
um landið og vorum að æfa í Skaga-
firði þegar við þurftum að snúa við
og hætta við allt vegna takmark-
ana,“ segir Pétur. „Nú ríkir mikill
spenningur hjá okkur vegna tón-
leikanna og alla þyrstir í að spila.“
Fyrsta sinn á Akureyri
Elja kemur í fyrsta skipti fram á
Akureyri í sumar og er það mikið
tilhlökkunarefni meðal meðlima
sveitarinnar. „Við höfum lengi
hlakkað til að spila fyrir norðan og
það er frábært að fá að spila í þessu
flotta húsi sem Hof er,“ segir Pétur.
Tveir meðlimir Elju búa á Akur-
eyri og taka því vel á móti sam-
leikurum sínum. „Það er ekki síst
gaman að fara norður að heim-
sækja þau, svo stór partur af þessu
er vinnuandinn og gleðin sem
einkennir hópinn, sem er orðinn
mjög þéttur,“ bætir Hekla við. „Við
erum öll orðin mjög spennt fyrir
þessu verkefni og samverunni með
hópnum.“ n
Alla þyrstir í að spila
Pétur Björnsson og Hekla Finnsdóttir fiðluleikarar eru í Elju. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BÆKUR
Gírafína og Pellinn og ég
Roald Dahl
Teikningar: Quentin Blake
Þýðing: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Útgefandi: Kver bókaútgáfa
Fjöldi síðna: 73
kolbrunb@frettabladid.is
Þegar kemur að barnabókaskrifum
þarf ekki að hafa mörg orð um snilli
Roalds Dahl – hún er öllum kunn.
Sólveig Sif Hreiðarsdóttir hefur
verið iðin við að þýða barnabækur
þessa hugmyndaríka höfundar og
nú er komin út í þýðingu hennar
Gírafína og Pellinn og ég.
Þessi stutta saga segir frá kynnum
Ella litla af gíraffa, pelíkana og apa.
Titill bókarinnar er fenginn úr
vísum sem apinn syngur og enda á
orðunum: „Gírafína og Pellinn og
ég.“ Meðal annarra sem koma við
sögu í þessari smellnu bók er auð-
maður, sem reynist
bjargvættur – ein-
mitt þannig ættu
allir auðjöfrar að
vera.
Þótt þessi bók
teljist ekki meðal
bestu verka Dahls þá
er hún engu að síður
b r á ð s k e m m t i l e g .
Dahl er einfaldlega
höfundur sem getur
ek k i ver ið leiðin-
legur. Hann skrifar
ætíð af áreynsluleysi
og húmor sem smitar
út frá sér.
Sumt í sögunni vísar
í eina frægustu barna-
bók hans, Kalla og súkkulaðigerð-
ina. Elli litli er mikill sælgætisgrís
og draumur hans er að eignast
eigin sjoppu, fulla af sætindum.
Draumur sem fjölmörg börn deila
með honum. Sælgæti
f rá sú k k u laðigerð
Villa vankaða (Willy
Wonka) kemur við
sögu undir lok bókar.
Gíra f f inn, pelí-
kaninn og apinn eru
ráðagóð og hvert um
sig hefur sterkan
karakter og eigin-
leika sem koma að
góðum notum, eins
og til dæmis þegar
handsama þarf inn-
brotsþjóf.
Gírafína og Pell-
inn og ég er stutt,
skem mt i le g og
falleg saga u m
tengsl sem skapast
milli drengs og dýra. Ekki er hægt
að fjalla um söguna án þess að geta
um myndir Quentins Blake sem eiga
sinn þátt í að skapa heillandi sögu-
heim. Þýðing Sólveigar er síðan með
miklum ágætum. n
NIÐURSTAÐA: Roald Dahl bregst
vitanlega ekki í skemmtilegri sögu
með jafn skemmtilegum myndum
eftir Quentin Blake.
Ævintýri drengs og dýra
Meðal annarra sem
koma við sögu í þess-
ari smellnu bók er
auðmaður, sem reynist
bjargvættur – einmitt
þannig ættu allir
auðjöfrar að vera.
kolbrunb@frettabladid.is
Ein stærsta stjarnan í Kötlu-þáttun-
um á Netflix, Þorsteinn Bachmann,
hefur nú skrifað undir samning við
Borgarleikhúsið og mun hefja leikár-
ið á því að leika Anton, pabba Emils
í Kattholti. Þorsteinn útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Íslands árið 1991 og
ári síðar frá Kvikmyndaskóla Íslands.
Hann hefur leikið fjölda hlutverka
bæði á sviði og í sjónvarpi í þrjá ára-
tugi og sópað að sér verðlaunum
fyrir leik sinn.
Þorsteinn mun einnig leika í
verkinu Fyrrverandi eftir Val Frey
Einarsson. n
Þorsteinn leikur
pabba Emils
Þorsteinn Bachmann er kominn í
Borgarleikhúsið.
20 Menning 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR