Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 2
Hinkrað eftir farþegum KRÍT SANDY SUITES, KALAMAKI HUGGULEGT HÓTEL 200 METRUM FRÁ STÖNDINNI. 13. - 23. JÚLÍ VERÐ FRÁ: 89.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN BEINT FLUG TIL KRÍT INNIFALIÐ FLUG, GISTING & INNRITAÐUR FARANGUR WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS gar@frettabladid.is VIÐBURÐIR Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu, sem hófst í gær, mun ná hápunkti í dag. „Svæðið er ein samfelld flugsýn- ing frá föstudegi til sunnudags og getur þú skoðað vélarnar, setið við flugbrautina, fylgst með alls konar loftförum á svæðinu leika listir sínar og notið sólarinnar á sama tíma,“ segir á vef Rangárþings ytra um hátíðina, sem er á vegum Flug- málafélags Íslands. „Það verða vélar í lofti og fólk á ferli alla helgina. Hápunktur krakk- anna er karamellukastið á laugar- deginum þar sem sælgæti rignir yfir svæðið og allir safna því sem þeir geta, um kvöldið mæta svo gestir hátíðarinnar á ekta íslenska kvöld- vöku í f lugskýlinu,“ segir á ry.is. n Láta karamellum rigna við Hellu í dag Sælgætisregn á hátíðinni Allt sem flýgur á Hellu. MYND/FLUGMÁLA- FÉLAG ÍSLANDS Skemmtiferðaskipið Viking Jupiter lónar úti á sundunum eftir gestum sem koma með flugi á þriðjudaginn. Mun ódýrara er fyrir útgerð skemmtiferðaskipsins að bíða í flóanum heldur en að leggja að bryggju. Viking Jupiter siglir með farþega, flesta frá Bandaríkjunum, hringinn í kringum landið. Skipið, sem er á níu hæðum, er með tvær sundlaugar, bíósal og spa aðstöðu. Í morgun kom skipið Viking Sky til Reykjavíkur og Ocean Diamond kemur á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ester Sevat, Jordi Haro og Jordi Cuenca frá Andorra eru á Íslandi til að kynna sér hugsunarhátt Íslendinga. Ástæðan er tíð ferðalög lands- manna til Andorra. birnadrofn@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA „Okkur langaði að vita meira um þennan stað, ykkur og eftir hverju þið sækist þegar þið eruð á ferðalagi,“ segja Ester Sevat, Jordi Haro og Jordi Cuenca. Þau komu til Íslands í vikunni alla leið frá Andorra til að kynna sér land og þjóð, en mikill fjöldi Íslendinga ferðast til landsins á hverju ári. „Við tókum eftir því að þau vilja ekki bara njóta þess að vera í fjall- inu heldur fá allan pakkann. Góðan mat, góða þjónustu og allt þetta auka sem nútímaferðamaðurinn vill sjá,“ segir Ester, aðspurð að því hvað hafi orðið til þess að Íslend- ingar vöktu sérstaka athygli þeirra, en á hverju ári tekur Andorra við um 8,5 milljónum ferðamanna þrátt fyrir að í landinu búi einungis tæplega 80 þúsund manns. Þar eru mörg skíðasvæði sem ferðamenn sækja mikið í. Það sem vekur helst athygli Íslendinga á landinu segja Jordi, Ester og Jordi vera veðrið, verðið og viðhorfið. „Veðrið er einstakt, hlut- irnir kosta minna en fólk er vant og svo leggjum við okkur fram í einu og öllu við að gera allt þetta litla auka sem gerir dvöl gesta meira virði,“ segja þau. „En það sem virðist tala sterkast til Íslendinga er sama virðing og djúp tengsl við náttúruna sem íbúar beggja landa hafa,“ bæta þau við. Andorra er fjalllent land og þar er meðalhæð yfir sjávarmáli 1.996 metrar. Aðspurð um ástandið í landinu vegna kórónuveirufaraldursins segja Jordi, Ester og Jordi yfirvöld í Andorra hafa brugðist hratt við og beitt hörðum aðgerðum í barátt- unni við veiruna, ekki ósvipað og gert hafi verið á Íslandi. „Við eigum auðvelt með að prófa alla á landa- mærum, höfum lagt af grímuskyldu og hlutirnir hafa færst í eðlilegra horf.“ Jordi, Ester og Jordi segjast hafa notið verunnar á Íslandi og því að kynnast Íslendingum og hugsunar- hætti þeirra. „Hér ríkir kyrrð og vin- átta skín úr andlitum allra. Okkur líður vel og viljum koma aftur. Nátt- úran er einstök og tækifæri til úti- vistar margbrotin,“ segja þau. „Það er á óskalistanum að spenna á sig fjallaskíðin og brölta upp undir dansandi norðurljósunum. Takk fyrir okkur!“ bæta þau við. n Komu frá Andorra til þess að forvitnast um Íslendinga Við tókum eftir því að þau vilja ekki bara njóta þess að vera í fjallinu heldur fá allan pakkann. Ester Sevant. Ester og Jordi-arnir tveir ferðuðust um landið og líkaði afar vel. MYND/AÐSEND odduraevar@frettabladid.is SAMFÉLAG Einn heppinn Íslend- ingur vann annan vinninginn í Eurojack pot í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Annar vinningur skiptist í sjö hluta, þrír hlutar fóru til Þýska- lands, einn til Spánar, annar til Sví- þjóðar og enn annar til Finnlands. Svo að sjálfsögðu einn til Íslands, hver hlutur telur 39.598.840 íslensk- ar krónur. Enginn vann 1. vinning í Euro- jack-pot í gær, en hann nemur rúmum þremur milljörðum króna. Fram kemur í tilkynningunni að íslenski vinningshafinn hafi keypt miðann sinn í Iceland, Engihjalla í Kópavogi. Ekki er langt síðan að annar heppinn Íslendingur vann afar stóran pott í Víkinglottó, eða rúman milljarð króna. Sá fékk vinninginn greiddan út í gær. n Annar vinningur heim til Íslands Vinnigurinn nam tæpum 40 milljónum. 2 Fréttir 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.