Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 74
stod2.is Kvikmyndin Dýrið, sem er frumraun leikstjórans Valdi- mars Jóhannssonar, er nú þegar orðin ein mest umtal- aða myndin á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes, þar sem hún keppir í flokknum Un Certain Regard og þykir svo líkleg til stórræða að bransabiblíurnar Variety og The Hollywood Reporter hvetja fólk til þess að láta hana alls ekki fram hjá sér fara. Íslenskættaða kvikmyndin Dýrið, eða Lamb, verður frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes á þriðju- daginn. Hún keppir í f lokknum Un Certain Regard og hefur þegar fengið mikla og gríðarlega jákvæða athygli á hátíðinni. Segja má að Dýrið sé eiginlega íslenskur heimilisiðnaður og fjöl- skylduverkefni, þar sem auk þess að leikstýra skrifaði Valdimar hand- ritið ásamt Sjón, og eiginkona hans, Hrönn Kristindóttir, og stjúpdóttir, Sara Nassim, framleiða myndina undir merkjum framleiðslufyrir- tækisins Go to Sheep. Óvenjulegt drama Þær mæðgur eru einmitt í brenni- depli hjá bransabiblíunni Variety, sem flokkar þær með framleiðend- um í fremstu víglínu þetta árið og segir þær hafa hitt í mark með Lamb sem er lýst sem „óvenjulegu drama“. The Hollywood Reporter eys Lamb einnig lofi og telur hana upp með nokkrum fjölda mynda á Cannes sem þykja líklegar til þess að blanda sér í kapphlaupið um Óskarsverðlaunin með vísan til þess að Un Certain Regard f leyta oft myndum í þann slag. Blaðið mælir með því að í ár hafi fólk auga á „nýliðanum“ Valdimar Jóhannssyni frá Íslandi og Lamb sem státi af Noomi Rapace „sem helmingi pars sem tekur að sér barn sem er hálfmennskt og hálft lamb.“ Hættuleg hamingja Myndin segir frá sauðfjárbændun- um Maríu, sem sænska stórstjarnan Noomi Rapace leikur, og Ingvari, sem Hilmir Snær Guðnason leikur. Þau búa í fögrum en afskekktum dal og þegar dularfull vera kemur þar í heiminn ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, en þessi ákvörðun þeirra á eftir að hafa afdrifaríkar og skelfilegar afleiðingar. Lambið þagnar ekki í Cannes Noomi Rapace er komin til Ís- lands í Dýrinu. MYND/LILJA JÓNS Valdimar Jóhannsson kemur sterkur inn með Dýrinu. MYND/BJARNI EIRÍKSSON Noomi Rapace og Hilmir Snær í hlutverkum sínum í Dýrinu. MYND/GO TO SHEEP Þórarinn Þórarinsson thorarinn @frettabladid.is Björn Hlynur Haraldsson fer einnig með hlutverk í Lambinu, sem er eyrnamerkt Íslandi, Svíþjóð og Póllandi. Myndin var öll tekin upp á Íslandi og verður frumsýnd hér í septemberbyrjun. Noomi Rapace kemur síðan sjálf með enn eina Íslandstenginguna, en hún bjó hérna þegar hún var fimm til átta ára. Þá réðist framtíð hennar á Íslandi þegar hún lék barnung í sinni fyrstu kvikmynd, Í skugga hrafnsins. Þið verðið að horfa! The Playlist gerir heillandi stiklu úr Dýrinu að umtalsefni á vef sínum, þar sem myndin er sögð ein sú mest umtalaða á Cannes þetta árið. „Og ef þið þurfið frekari ástæðu til þess að vera spennt fyrir þessu nýja drama, berjið þá nýja sýnishornið úr mynd- inni augum,“ segir The Play list og bætir við að stiklan sé löðrandi í stemningu og andrúmslofti sem staðfesti að Lamb er „must-see“ á Cannes í ár. The Playlist rennir síðan styrkum stoðum undir þessa yfirlýsingu með því að benda á að myndin standi vel undir öllu jákvæða umtalinu, þar sem bandaríska fyrirtækið A24 virðist þegar hafa tryggt sér dreif- ingarréttinn á myndinni í Banda- ríkjunum. ■ Ef þið þurfið frekari ástæðu til þess að vera spennt fyrir þessu nýja drama, berjið þá nýja sýnis- hornið úr myndinni augum. The Playlist. 42 Lífið 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.