Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 34
hagvangur.is
UMFÍ leitar að drífandi leiðtoga og öflugum liðsmanni í starf forstöðumanns
ungmennabúða.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stjórnun og ábyrgð á ungmennabúðum UMFÍ
• Daglegur rekstur
• Að stýra faglegu starfi og leiða starfsmannahóp
• Stefnumörkun, áætlanagerð og upplýsingagjöf fyrir starfsemina í
samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórn UMFÍ
• Ráðningar starfsfólks í samráði við framkvæmdastjóra UMFÍ
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. kennaramenntun, félags- og
tómstundafræði eða uppeldisfræði
• Starfsreynsla sem nýtist í starfinu
• Leiðtogafærni, frumkvæði og drifkraftur
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
• Uppfylla kröfur skv. íþrótta- og æskulýðslögum varðandi sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferliskrá
og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is
UMFÍ eru frjáls félagasamtök rúmlega 400
íþrótta- og ungmennafélaga um allt land.
Samtökin voru stofnuð árið 1907 og standa þau
fyrir ýmsum verkefnum ásamt því að styðja við
starf aðildarfélaga sinna. Rekstur ungmennabúða
er eitt af stærstu verkefnum samtakanna. UMFÍ
leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, jákvæð
samskipti og samstarf með sameinaða krafta að
leiðarljósi.
Forstöðumaður ungmennabúða UMFÍ
Innkaupa- og aðfangastjóri (Supply Chain Manager)
Starfsmaður ber ábyrgð á stjórnun aðfangakeðju BIOEFFECT
sem felur m.a. í sér skipulagningu og áætlanagerð, innkaup,
birgðastýringu og lagerhald. Starfsmaður sér um að samræma
ferli í aðfangakeðju félagsins og mæla árangur þannig að vöru-
flæði og verklag verði sem skilvirkast. Starfsmaður leitast við
að lágmarka birgðahaldskostnað eftir því sem best á við, metur
innkaupaþörf, á samskipti við birgja, annast samningagerð,
fylgir eftir innkaupum og að aðföng berist á umsömdum tíma,
gæðum og verði.
Um okkur
BIOEFFECT er í eigu ORF Líftækni. Framleiðsla BIOEFFECT
húðvaranna fer fram í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi.
BIOEFFECT vörurnar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viður-
kenninga fyrir virkni og gæði og eru seldar í um 27 löndum.
Menntun, þekking og reynsla
• Háskólamenntun á sviði vörustjórnunar og stjórnun aðfangakeðju,
viðskipta-, verkfræði eða sambærileg menntun
• Marktæk reynsla af samningagerð, innkaupa- og birgðastjórnun
• Mjög góð íslensku- og enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli
• Þekking og reynsla af AGR Dynamics and NAV bókhaldskerfi er kostur
• Greiningarhæfni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí nk. og skal fylla út um-
sókn á vinnvinn.is. Umsókninni skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur um færni.
Umsjón með starfinu hafa:
Hilmar Garðar Hjaltason, hilmar@vinnvinn.is
Hildur Jóna Ragnarsdóttir, hildur@vinnvinn.is
Hefurðu einstakt lag
á að halda góðu flæði?
ORF Líftækni I BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I Kópavogi I Bioeffect.is