Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 34

Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 34
hagvangur.is UMFÍ leitar að drífandi leiðtoga og öflugum liðsmanni í starf forstöðumanns ungmennabúða. Helstu verkefni og ábyrgð • Stjórnun og ábyrgð á ungmennabúðum UMFÍ • Daglegur rekstur • Að stýra faglegu starfi og leiða starfsmannahóp • Stefnumörkun, áætlanagerð og upplýsingagjöf fyrir starfsemina í samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórn UMFÍ • Ráðningar starfsfólks í samráði við framkvæmdastjóra UMFÍ Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. kennaramenntun, félags- og tómstundafræði eða uppeldisfræði • Starfsreynsla sem nýtist í starfinu • Leiðtogafærni, frumkvæði og drifkraftur • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni • Uppfylla kröfur skv. íþrótta- og æskulýðslögum varðandi sakavottorð Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferliskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is UMFÍ eru frjáls félagasamtök rúmlega 400 íþrótta- og ungmennafélaga um allt land. Samtökin voru stofnuð árið 1907 og standa þau fyrir ýmsum verkefnum ásamt því að styðja við starf aðildarfélaga sinna. Rekstur ungmennabúða er eitt af stærstu verkefnum samtakanna. UMFÍ leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, jákvæð samskipti og samstarf með sameinaða krafta að leiðarljósi. Forstöðumaður ungmennabúða UMFÍ Innkaupa- og aðfangastjóri (Supply Chain Manager) Starfsmaður ber ábyrgð á stjórnun aðfangakeðju BIOEFFECT sem felur m.a. í sér skipulagningu og áætlanagerð, innkaup, birgðastýringu og lagerhald. Starfsmaður sér um að samræma ferli í aðfangakeðju félagsins og mæla árangur þannig að vöru- flæði og verklag verði sem skilvirkast. Starfsmaður leitast við að lágmarka birgðahaldskostnað eftir því sem best á við, metur innkaupaþörf, á samskipti við birgja, annast samningagerð, fylgir eftir innkaupum og að aðföng berist á umsömdum tíma, gæðum og verði. Um okkur BIOEFFECT er í eigu ORF Líftækni. Framleiðsla BIOEFFECT húðvaranna fer fram í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi. BIOEFFECT vörurnar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viður- kenninga fyrir virkni og gæði og eru seldar í um 27 löndum. Menntun, þekking og reynsla • Háskólamenntun á sviði vörustjórnunar og stjórnun aðfangakeðju, viðskipta-, verkfræði eða sambærileg menntun • Marktæk reynsla af samningagerð, innkaupa- og birgðastjórnun • Mjög góð íslensku- og enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli • Þekking og reynsla af AGR Dynamics and NAV bókhaldskerfi er kostur • Greiningarhæfni • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí nk. og skal fylla út um- sókn á vinnvinn.is. Umsókninni skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni. Umsjón með starfinu hafa: Hilmar Garðar Hjaltason, hilmar@vinnvinn.is Hildur Jóna Ragnarsdóttir, hildur@vinnvinn.is Hefurðu einstakt lag á að halda góðu flæði? ORF Líftækni I BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I Kópavogi I Bioeffect.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.