Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 4
Lucie Samcová- Hall Allen sendiherra ESB á Íslandi. Í ljósi þessa gleður það mig mjög að geta kynnt nýtt Covid-vottorð Evrópusambands- ins, sem gildir í öllum 27 ESB-ríkj- unum, auk EES-ríkjanna Íslands, Noregs og Liechtenstein. Reyndar voru Íslendingar frumkvöðlar í þessu verkefni þar sem þeir voru meðal fyrstu ríkjanna til að taka þátt í tilraunum með móttöku stafrænna vottorða. Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráð- herra. Sundabraut er komin af byrjunar- reit en næstu skref voru römmuð inn í vikunni með yfirlýsingu ríkis og borgar um lagningu brautarinnar. Yfir- lýsingin markar tímamót um að Sundabraut verði að veruleika og hún staðfestir sameiginlega sýn og skilning á hvaða skref eru næst. Hanna Katrín Friðriksson þingflokksfor- maður Viðreisnar. Besta leiðin til að draga úr mengun er að tryggja að þeir sem valda henni greiði kostnaðinn af henni. Samhliða því að virkja atvinnulífið með grænum hvötum þarf að gæta þess að hagrænir og grænir hvatar leiði ekki til skatta- hækkana heldur tilfærslu á tekju- stofnum með samsvarandi lækkun annarra gjalda. n Að ætla að stuðla vísvitandi að aðgrein- ingu fatlaðra ung- menna frá öðrum í samfélaginu er algjör- lega galið og óásættan- legt. Bryndís Snæ- björnsdóttir, formaður Þroskahjálpar. BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND, SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM. ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI RAM 3500 BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK. 9.202.300 KR. M/VSK. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 n Tölur vikunnar n Þetta sögðu þau 200 milljónir, ætlar Kaupfélag Skag- firðinga að gefa til samfélagslegra verkefna í Skagafirði. 23 milljarðar voru teknir út úr séreignarsjóðum í fyrra. 4 sinnum fleiri lúður voru veiddar í fyrra en 2012. 890 þúsund eru erlendu ferðamenn- irnir sem Ferðamálastofa áætlar að komi hingað í ár. 4 nætur er meðaltal fjölda gistinátta Bandaríkjamanna í Reykjavík. Formaður Þroskahjálpar segir það ganga gegn samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks að aðgreina það frá samfélaginu með sértækum úrræðum. Foreldri í Mosfellsbæ furðar sig á því að hafa ekki val um frístundaúrræði á höfuð- borgarsvæðinu. urduryrr@frettabladid.is SAMFÉLAG Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fimmtudag að setja á fót frístundaklúbb fyrir fötluð ung- menni tíu til tuttugu ára. Stefnt er að því að starfsemin fari fram í Skála túni. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formað- ur Þroskahjálpar, segir að nærtækara væri að byggja upp þjónustu fyrir öll ungmenni í bæjarfélaginu og gera í leiðinni nauðsynlegar ráðstafanir til að fötluð börn geti tekið þátt. „Mér brá heldur betur í brún því ég fæ ekki betur séð en bæjar- yfirvöld í Mosfellsbæ ætli sér að viðhalda áratuga aðskilnaðarstefnu sem viðgengist hefur,“ segir Bryndís í færslu á Facebook. Hún telur sérstaklega óviðeigandi að úrræðið skuli vera í Skálatúni, þar sem er rekin svokölluð altæk stofnun. Samkvæmt Bryndísi hefur fólk innan þannig stofnana lítið sem ekkert einkalíf og er svo til einangr- að frá samfélaginu. Hún segir fyrir- komulagið vera mjög úrelt. Hún segir í samtali við Frétta- blaðið að sértæk félagsþjónusta fyrir fötluð börn stangist á við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þar sem er kveðið á um að ekki skuli mismuna á grundvelli fatlana. „Að ætla að stuðla vísvitandi að aðgreiningu fatlaðra ungmenna frá öðrum í samfélaginu er algjörlega galið og óásættanlegt,“ segir hún. Hún bendir líka á að það sé raun- verulegur vilji fatlaðs fólks að vera þátttakendur í samfélaginu og vera ekki sett til hliðar. Margt fólk hafi slæmar minningar af því að vera sett í sérdeildir og tekið úr almennum úrræðum. Það er þó jákvætt að gerð sé til- raun til að búa til þjónustu fyrir þessi börn í bæjarfélaginu, segir Bryndís. Hingað til hafa þau neyðst til að keyra í Hafnarfjörð til að sækja þjónustuna. „En þetta er ekki rétta aðferðin,“ segir hún. „Ég skora á bæjaryfirvöld í Mos- fellsbæ að koma inn í nútímann, endurskoða ákvörðunina og fylgja þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist,“ segir hún. Benedikta Birgisdóttir er foreldri fatlaðs barns í Kjós. Hún furðar sig á því hversu lítið stendur til boða fyrir son hennar, sem er nú að byrja í framhaldsskóla. Hann hefur verið í grunnskóla í Reykjavík og sótt frístundaheimili þar. Nú er hann að byrja í fram- haldsskóla og myndi helst vilja fara í Hitt húsið, þar sem vinir hans eru margir. En úr því að fjölskyldan býr utan Reykjavíkur þá neyðist hann til að fara í Hafnarfjörð. Benedikta segir það fínt framtak að stofna miðstöð í bæjarfélaginu, en segir það ekki henta hennar fjölskyldu. Hún telur líklegt að fáir muni mæta þangað og litlar líkur á að sonur hennar þekki nokkurn þar. Hún segir félagsmiðstöðvar og ungmennahús vera stóran hluta af félagslífi margra fatlaðra barna og því mikilvægt að þau geti sótt þær miðstöðvar sem henta þeim best. „Af hverju megum við ekki sem fjölskyldur velja það sem við teljum henta best fyrir okkur?“ spyr hún. n Sértækt frístundaúrræði fyrir fötluð börn sagt viðhalda aðskilnaðarstefnu Stefnt er að því að hafa nýjan frístundaklúbb Mosfellsbæjar fyrir fötluð ungmenni í Skálatúni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 4 Fréttir 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.