Fréttablaðið - 10.07.2021, Qupperneq 8
Þotuhreiður á Reykjavíkurflugvelli
Talsverð umferð einkaþotna hefur verið um Reykjavíkurflugvöll upp á síðkastið og greinilegt að borgin og landið höfðar til þeirra sem eru loðnir um lófana.
Undir hádegi í gær voru fjórar þotur á stæðinu norðan við skrifstofubyggingu Icelandair á vellinum. Sumar nýlentar og aðrar að ferðbúast. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
gar@frettabladid.is
SPÁNN Saksóknari á Spáni hefur
dregið til baka ákæru á hendur 72
ára gömlum manni fyrir að hafa
aðstoðað eiginkonu sína við að
deyja og var hann þá sýknaður. Er
það gert vegna nýrra laga um dánar
aðstoð, að því er segir á vefútgáfu El
País.
Eiginkona Ángel Hernández var
með MSsjúkdóminn á lokastigi,
að sögn El País. Í apríl 2019 hafi
hann uppfyllt ósk hennar um að
aðstoða hana við að deyja. Hún var
þá 61 árs gömul. Lög sem heimila
slíkt tóku ekki gildi á Spáni fyrr en
25. júní síðastliðinn, en saksóknar
inn bað í síðustu viku dómstólinn
að fella mál Hernández afturvirkt
undir nýju löggjöfina. Kona hans
hafi liðið óbærilegar þjáningar og
hann hafi verið í rétti er hann veitti
henni dánaraðstoðina. ■
Sýknaður vegna
dánaraðstoðar
Nýju lögunum hefur verið mótmælt.
Nett rafskutla sem hægt er að brjóta
saman með fjarstýringu og því
auðveldlega hægt að taka í ferðir.
Verð aðeins 249.000 kr.
JBH
RAFSKUTLA
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is
JBH
Samanbrjótanleg rafskutla
FRÍ HEIMSENDING
á höfuðborgarsvæðinu
ef pantað er í vefverslun
www.bl.is/vefverslun
180W mótor – 288 wH rafhlaða
125 kg burðargeta – Fallvörn að aftan
Eigin þyngd 31 kg
Passar
samanbrotin
í flest bílskott
Halldór G. Hálfdánarson,
bóndi á Molastöðum, segir
heyskapinn ganga vel á
fyrstu dögunum.
thorgrimur@frettabladid.is
LANDBÚNAÐUR Heyskapur stendur
nú yfir í sveitum landsins og heyið
að safnast í heyrúllur. Halldór
Gunnar Hálfdánarson, bóndi á
Molastöðum í Fljótum í Skagafirði,
hóf slátt á miðvikudag og segir hey
skapinn hafa farið vel af stað. „Ég er
nú bara búinn með um 25 rúllur af
500, þannig að þetta er rétt að byrja
en útlitið er mjög gott. Það er mikið
og gott gras.“
Halldór telur að reynsla annarra
bænda af byrjun heyskaparins í ár
hafi sömuleiðis verið góð. „Þótt það
sé eitt og eitt undantekningartilvik
virðist þetta almennt líta vel út. Við
búum yfir svo góðum vatnsbúskap
hérna í Fljótum og svo er snjórinn
að bráðna og rennur niður hlíðarnar
og því er ágætis væta í jörðinni þótt
það hafi ekkert mikið rignt.“
Sauðfé hefur fækkað nokkuð
á landinu undanfarin ár og Halldór
segir að dregið hafi úr heymagni í
samræmi við það. Þá hafi bændum
í Fljótum fækkað nokkuð og sum
býlin lagst í eyði. „Allar göngur og
önnur samvinnuverkefni okkar
sem tengjast smalamennsku verða
alltaf erfiðari og erfiðari með
hverju árinu. Svo eldumst við, vit
leysingarnir sem erum hérna enn
þá. En það eru önnur umsvif, það
er náttúrlega hótel í sveitinni og
ferðaþjónustan er sterk og alltaf
að aukast. Það eru aðrar áherslur
kannski. Svo breytast neysluvenjur
og markaðskröfur landsins alltaf og
ein okkar helsta áskorun er að sjá til
þess að afurðirnar okkar eigi erindi
til nútímalandsins.“
Halldór segist stundum finna
löngu týnda hluti í gömlum hey
rúllum. „Það er ýmislegt sem
kemur í ljós í rúllunum, eins og
verkfæri og fatnaður sem hefur
týnst fyrir ári. Það er mjög fyndið
þegar maður opnar rúlluna og
finnur svona gamalt tímahylki frá
því í fyrra.“
Að sögn Halldórs kemur fjöldi
aðkomufólks til að taka þátt í hey
skapnum. Eru þar sumir nýir af
nálinni og skapast þá skemmtileg
stemning í kringum starfið. „Næstu
skref eru bara að halda áfram ef
veður leyfir. Þá verður bara farið af
fullum þunga í sláttinn og reynt að
gera þetta eins hratt og unnt er svo
við komumst í frí í ágúst.“ ■
Heyskapur hafinn í Fljótum
Halldór Gunnar Hálfdánarson ásamt dóttur sinni, Magdalenu Ellý.
Heyskapur hófst á Molastöðum í Fljótum á miðvikudaginn og að sögn Hall-
dórs hefur verkið gengið vel, bæði þar og á öðrum bæjum. MYND/AÐSENT
Næstu skref eru bara
að halda áfram ef
veður leyfir.
thorgrimur@frettabladid.is
MEXÍKÓ Forseti Mexíkó, Andrés
Manuel López Obrador, liggur undir
ásökunum um spillingu vegna birt
ingar myndbands frá árinu 2015 þar
sem yngri bróðir forsetans, Martín
Jesús, sést taka við peningagreiðslu
frá embættismanni.
Í myndbandinu heyrist Martín
Jesús segja að peningarnir séu fyrir
bróður sinn. Þetta er annað mynd
bandið af þessu tagi sem hefur birst,
í hinu fyrra var það eldri bróðir for
setans, sem sást taka við reiðufé.
Forsetinn hafnar því að hann hafi
nokkurn tímann tekið við fénu. ■
Mexíkóforseti í vanda með litla bróður
Andrés Manuel
López Obrador,
forseti Mexíkó.
8 Fréttir 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ